Færsluflokkur: Lífstíll
28.10.2007 | 13:33
tímamót næstsíðasti kafli...
Allt í rúst!!!!!!! Ég er eiginlega alveg búin að jafna mig. Það lagaðist heil ósköp, eftir að hafa setið við tölvuna í tvo daga 4 tíma í senn, við það að reyna að selja þetta sem losnaði um í eldhúsinu.
Eftir þær niðurstöður að ekki nokkur maður vildi kaupa þetta, og heldur ekki "fá gefins", þá er þetta bara til þess eins að setja út á pall. Þessi pallur snýr útað götu, svo núna er ég bara eins og allir aðrir með búslóð úti og aðra inni. Ég er eiginlega núna fyrst að vera manneskja með manneskjum sem er að fleygja. Þetta er mjög ólíkt okkur hjónum. Það sem fylgir þessari stöðu hjá mér, er að fleygja bara ekki öllu út, en reyni að passa mig.
Baldvin kom áðan, og er farinn að stauta. Hans uppáhaldsstundir eru að fara á bókasafnið, og er enginn smástafli sem hann fær lánað. Tommi og Jenni hafa vikið.
Sólveig Anna lærði nýtt orð í leikskólanum, ég er "hugmyndamanneskja".
Salvör Sesselja er farin að ganga.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2007 | 10:51
TÍMAMÓT KAFLI III.
Það er ekkert sem heitir eldhús í dag, þetta eru niðurbrot og rústir einar.Fór á hamborgarastað í gær með Bibba og Jóhönnu, það var bara ágætt en frekar dýrt. En það lagast. Ég er mezt hrædd um að ég þurfi alltaf að vera elda eitthvað svakalega fínt, sem ég er eiginlega hætt að nenna, en kannske ég fari bara að gera það uppá nytt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2007 | 23:29
TÍMAMÓT framhald......
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2007 | 22:48
TÍMAMÓT....ELDHÚSINNRÉTTINGARSKIPTI...HANDRIÐAKAUP....
Eitthvað ógnvænlegt er á seyði, ótrúlegt verkefni að takast á við, von er á tveim kraftmiklum mönnum á miklu betri aldri en ég sem koma og massa niður þetta eldhús, sem hefur verið hér síðan 1959. Ég hefi fengið langan umhugsunarfrest, heilar 6 vikur, farið í marga hringi með hitt og þetta, og stærst var að horfast í augu við það að hafa verið bara nokkuð sæl með þetta eldhús þó það sé eitt af því hallærislega sem ég hef séð í lengri tíma.
Er að vísu nýbúin að sjá eitt sem er hallærislegra, og hefði gjarnan viljað bjóða þeirri konu þessa innréttingu, sem auglystar eru fjálglega í fasteignablöðunum, sem "Upprunalegar innréttingar", jahá, mjög upprunalegar, þess eðlis að krafta þarf ungrar konu eða manns, beint úr líkamsræktinni, til að til dæmis að geta opnað skúffur.
Hrygg 10 ára barns til að geta náð í bökunarformin (Sem blessunarlega er búið að grisja), en þar eru ennfremur geymd sigtin, og þarf að fara í þessar hryggbeygjur, grunsamlega oft í kringum hátíðar. Svona hryggur sem ræður við þessar beygjur er ekki lengur til á heimilinu, því miður.
Skyndileg vöntun á hveiti eða sykri, veldur ófremdarástandi, stóll nauðsynlegur og mjög þjálfaðir fætur, sem koma beint frá sjúkraþjálfara, eftir langar og strangar tröppuæfingar, (ég er auðvitað að miða við fleiri en tvo í mat)að ég tali nú ekki ef eitthvað fleira vantar, sem húsmóðurinni hefur engan veginn tekist að forskipuleggja áður, þar sem hún er "þetta reddast týpan", sem það hefur yfirleitt gert.
Þessar leikfimisæfingar sem stundaðar hafa verið í tugi ári, er semsagt að ljúka.
Hér hefur verið svona eyja, í brúnni, en það er eldhúsið, þar sem skipstjórinn stendur með sleifina, svona eyja sem enginn getur verið án, en var smíðuð 1959 hér, og hefur alltaf farið í taugarnar á mér, mér hefur alltaf fundist ég vera með sýnikennslu í matreiðslu fyrir Kvennaskólastelpur, og vekur það upp afleitar minningar, þar sem ég var frámuna léleg í matreiðslu. Mig minnir að ég hafi aðallega verið í því að nappa nokkrum sveskjum úr búrinu, og komist upp með það. (Ég hef alltaf verið fyrir sveskjur). Það er alltof hátt uppí hilluna yfir eyjunni, þar sem ég geymi, salt og tilheyrandi bragðefni, og er matur þessvegna oft mjög bragðdaufur hjá mér, svo ekki sé meira sagt, þar sem ég sé þetta ekki heldur, þar sem ég er ekki nema 162.
Við þessa eyju hef ég fengið væg hysterisköst við hátíðamáltíðir, þar sem þröngt er frá eyju að hinum veggnum, þar sem fjölskyldumeðlimir hafa ekki grennst á undanförnum 35 árum. Og myndast gífurleg umferðarteppa þegar kjallarameistarinn (Húsbóndinn) opnar rauðvínið, en það er nátturulega gert með stæl, sem ég kann ekki, og verður helst að vera hljóð líka, sem hentar ekki í eldhúsi, held ég.
Það er vísir að borðkróki, en húsmóðirin sem smíðaði húsið var bara 155, svo hann er sniðinn fyrir hana, síðan voru þau bara 2, en við lágmark 6, svo þetta hefur engan veginn gengið, en hefur eins og svo oft "reddast", og enginn spekulerað í hvort hægt væri að breyta þessu til virkilegra úrbóta, heldur hefur verið endalaus bútasaumur á okkur hjónum í Kópavoginum. Og við hjónin bara nokkuð ánægð með okkur og allar góðu minningarnar og myndirnar og rjúpurnar og svínasteikina og allan ættbogan og öll partýin. Ég segi nú bara Jeminn, (Þó ný Biblíuþýðing sé komin......). Maður hefur bara verið þreyttur í fótum og hrygg eftir góðar máltíðir og ekkert spekulerað í af hverju.Borðkrókurinn hefur því verið gagnslaus, nema fyrir hitt og þetta sem við öll vitum hvað er.
En er bylting, okkur áskotnaðist innrétting, kom bara svona uppí hendurnar á okkur si svona, og það gerist ekki alltaf, og svei mér þá, þetta kollvarpaði lífinu, þannig að við þurftum alltíeinu að fara að hugsa um hvernig þetta væri eiginlega hægt. Það komu svona trésmiðir, og þetta var ekki mikið mál, koma bara eftir eina viku og "massa allt draslið" eins og Siggi í spaugstofunni, eins og ég hefi alltaf verið nervös þegar hann byrjaði að massa bílana á bílaverkstæðinu.. Bara massa allt draslið heitir þessi innrétting sem búinn er að þjóna, eða við þjónusta hana, sem eitthvert óbreytanlegt. Það er ekki eins og hún sé steypt. En það er semsagt komið að því, og ég veit að ég verð að standa eins og vargur í hurðinni svo borðstofan verði ekki bara mössuð líka,og allt draslið sem er þar,,,,eða þannig, svo nú er að taka sér taki, fara í framkvæmdargír, sem ég veit ekki alveg hvar er þar sem hlutlausi gírinn hefur verið talssvert lengi í mér. En við höfum ákveðið að búa hér um sinn, og í tilefni af því fórum við litla Gunna og litli Jón, niður á Laugaveg í gamla húsið Brynju, og vorum ósköp eitthvað samrýmd og báðum um "Króka fyrir handrið"!!!!!, ég sagði við manninn, eiginlega hálfafsakandi, "Við ætlum nefnilega ekki að flytja", þetta var ungur strákur, sem brosti grunsamlega góðlega (Paranoian fór í gang), en auðvitað þurfum við handrið í stigana, maður veit aldrei....En í leiðinni þar sem ég er Laugavegarverndunarsinni, spurði hann hvort nokkuð ætti að rífa þeirra hús, en það fær að standa.Auðvitað var ég svona að bjarga situationinni þar sem nægjusemin geislaði frá okkur og ég keypti einn hurðarhún (smátt og smátt aðferðin......) en þetta verður bara gaman og þökk sé Soffíu og Friðbert.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2007 | 12:11
FORSÍÐUFRÉTT Í MBL. Í DAG..... HEFUR TRYGGINGU FYRIR.......
Mikið var þetta nú annars ánægjulegt að þessi ungi drengur þarf ekki að tapa neinu af þessu lítilræði sem hann keypti í REI, það er svo ánægjulegt til þess að vita að blessaður ungi drengurinn verður ekki hlunnfarinn, að ég tali nú ekki um hvað það er dásamlegt fyrir okkur hin að geta tekið þátt í þessu með honum, við erum svo ánægð fyrir hans hönd, ég veit að þið trúið því ekki hvað þetta gefur mér góðan dag, eftir lesningu blaðanna í rúminu mínu í morgunn með kaffisopann minn, þetta er ennfremur óskaplega upplífgandi fyrir sóknarstúlkuna á elliheimilinu, sem flettir dagblöðunum í kaffitímanum sínum að vita af þessu, hún hlýtur að fyllast miklu stolti og samkennd, nema hún kannske fari að spekulera í að það hefði verið betra að fjárfesta í REI með þessum 10 þúsund krónum sem hún leggur fyrir í hlutabréfakaup, sem hafa hríðfallið, hún sem er svo mikið að reyna að eignast eina og hálfa milljón, til að hafa í handraðanum þegar hún er orðin sextug.
Er það skrýtið að sóknarstarfsmenn séu sárir??????????
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2007 | 10:40
ORKUVEITAN??????
Ég svarið það að í dag lenti ég í heilmikilli klípu, skrúfaði frá heitavatnskrananum, og var bara ekki allt heitavatnslaust. Um leið datt mér í hug að þetta væru nátturulega samantekin ráð veitunnar að loka nú bara fyrir allt draslið, og ég eftir að handþvo blómavasana frá því í dömupartýinu.
Nohh, það er aldeilis, loka bara fyrir vatnið þó maður hafi skrifað smávegið klausu um þetta fyrirtæki, þetta væri nú heldur gróft. Maður getur nú stundum gert smáskissur, og þeir þurftu allsekki að verða svona móðgaðir......
Nei það var ekki það, heldur örugglega að við vorum ekki búin að borga hitareikninganna. Svei mér þá þetta fyrirtæki lætur mann aldrei í friði, ef ekki á gjalddaga, þá bara sekt á sekt ofan. ´Útvarpið ekki í gangi, svo ég týndi saman reikninga einhverja sem skiptu máli, en ákvað að borga ekki allt, svona í smáandófi við veituna.
En ekki kom vatnið fyrr en 16oo, en svona getur maður brugðist við þessum pólitísku deilum, ef eitthvað fer í hugann, maður verður obsessivur.
Ég mun halda áfram að andmæla hinu og þessu.
Og ég mun halda áfram að greiða ekkkkkkki á gjalddaga, þeir hjá orkuveitunni, senda tildæmis, ítrekun á gæðapappír, í gæðumslag, fyrir 350.-
Ja það er ekki verið að spara á þeim, bæ. Í einu sparnaðarkasti heilbrigðistofnana, fengum við ekki krassblöð, við sátum við að klippa í mátulega litla búta til að hafa svona minnismiða, af notuðum pappír öðru megin.
Þetta voru ágætismiðar, og þeir glötuðust ekki merkilegt nokk, ég mæli með þeim hjá hinni nýju borgarstjórn.
Ég var yfirleitt haldin þeirri áráttu að rífa þá mjög snemma, svo ég snéri mér að gömlum umslögum, ráðlegg nýjum borgarstjóra það, annars held ég að hann sé minnugur. Ég er feginn að hann var ekki aðalmaðurinn við súluna hennar Yoko, einhver annar. Og ég vona að kraninn í Smáralindinni fari ekki í sundur allavega á svona viðkvæmum hitaveitutíma, meðan verið að vinna þar við byggingar. Svo vona ég bara að hann fari ekki í skemmtiferð til Kína. Og óska honum til hamingjumeð yfirlýsinguna í dag. Þetta var mjög grand, ekki nokkrum hefur dottið þetta í hug, að meta börnin einhvers, sem á leikskólum eru, og leikskólakennara, það hefur aldrei gerst áður.
Og gott væri að þurfa ekki að hlusta á þetta eilífa væl um elliheimili fyrir alla. Elliheimili sem enga veita þjónustu, þannig lagað. Ein góð kona hefur sannað fram á það, að best sé að fara á skip þegar hún geti ekki hugsað um sig sjálf. Á elliheimilinu fengi hún enga þjónustu, allavega ekki einstaklingsmiðaða, ef hún færi Miðjarðarhafið endalaust fengi hún fyrstaflokks þjónustu. Hún þyrfti ekki annað en að hringja bjöllu. Og þegar hún væri að borða væri hún með þjón á hverju strái, og fengi kampavín þegar henni sýndist , og alltaf fordrykk fyrir matinn. Hún mundi búa á herbergi þar sem hún hefði sitt wc. Hún gæti farið á hárgreiðslustofu þegar henni sýndist. Hún gæti synt í upphitaðri laug þegar henni sýndist í sólinni, og það yrði stjanað við hana. Þarna þyrfti hún ekki annað en að tala ensku. Og þetta á hún að geta með því að selja húsið sitt og er það nú svona frekar flott, en þetta er möguleiki, og eiginlega til að hugsa um. Þarf ekki að fara að endurskipuleggja hvernig við viljum hafa þetta þegar við erum virkilega orðin það stór að geta ráðið einhverju um þetta. Hvað er það sem við viljum....... Ég er orðin soldið leið á hinum þreyttu klisjum kosningaloforðanna, ég vil helst vera með í ráðum, í hvernig vistarverum ég verð............
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2007 | 20:58
Gott hjá Bush.
![]() |
Bush fundaði með Dalai Lama þrátt fyrir hörð mótmæli kínverskra yfirvalda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.10.2007 | 22:20
GOSI í Borgarleikhúsinu.
Við vinkonurnar fórum á forsýningu að sjá leikritið Gosa. Leikskólanum hennar var boðið, og ég amma fékk að fara með henni, sem er eitthvað það skemmtilegasta sem ég geri, er að fara með börnum í leikhús, og þó ég segi sjálf frá (eða þannig), jú ég segi það, þá var ég dugleg að fara með börnin mín, ennfremur var móðir mín dugleg að fara með mig.
Hún var viss um að hún ætlaði að heimsækja Gosa, ég var soldið efins með þá skilgreiningu hennar en lét vera með útskýringarnar. En yndisleg er barnslega einlægnin í börnunum, og það er það sem er svo ómetanlegt að upplifa með þim. Ljósin í salnum voru slökkt snögglega og við vorum rétt kominn inn í salinn, henni brá töluvert, svo við þurftum að vera í smáfaðmlögum, en sitja vildi hún í sætinu, enda situr maður í sætinu, í leikhúsi, þó tæpra tveggja ára sé. Þetta byrjaði auðvitað með mjög stóru atriði og ég hafði valið og faðir annars barns að vera á 3ja bekk, sem var frekar framarlega fyrir svona lítil börn.
Eftir að hafa jafnað sig á þessum ósköpum, hendurnar orðnar spennulausar, fór smá líkamsstarfssemi í gang. Vindgangur í maga með úleysanlegu pústri og ilmi. OK það lagaðist, síðan losnaði um umframvökva, en var með græjur svo það var Ok, og leit hún þá til mín og sagði nokkuð myndarlega "Amma ég pissaði", nú það var eðlilegt, að síðustu kom "Amma ég ropaði", í kjölfar ropans kom strax "Afsakið", ég fann á þessu að það er mjög misjafnt og persónubundið hvenær á að nota svona orð eins og afsakið, en þetta var mjög flott, og við flottar þarna báðar tvær, og sigrihrósandi flottar stelpur eftir smákvíðakast í byrjun...........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2007 | 18:41
ORKUVEITAN......
Það voru slæmar fréttir til Berlínar að heyra frá stjórnarbyltingunni í Reykjavíkurumdæminu, ég var eiginlega mjög fegin að vera í Berlín. Bara si svona, flokkurinn felldur. Alger skipti innan stjórnar. Ekki er annað sjáanlegt að allir séu voða kátir með að vera komnir með völdin í sínar hendur. Snýst kannske pólitík um það eitt að vinna, sigra andstæðinginn, svona rétt eins og í kappleik, hvaða kappleikur sem það er, og er ég ekki að finna að keppnisanda. Bara fella þá og taka svo við.
Það veit sá sem allt veit að ég hefi fulla samúð með nýrri stjórn, það getur ekki verið neitt varið í það að taka við undir þessum kringumstæðum, en ekki er það að sjá á nokkrum manni, skv. myndum, allir í banastuði yfir lottóvinningnum.
Ég hefi ekki hundsvit á pólitík, því miður, eiginlega alltaf öfundað þá sem um hana geta rætt með góðum og gildum rökum á báða bóga, Er mjög oft sammála síðasta ræðumanni, og vil helst kjósa alla eftir þeirra ræður þegar á eldhúsdagsuræður er hlustað.
Kannske er það þessvegna sem maður er bara allsekki sama, hallærislegt að henda út stjórn, sem átti eftir að sanna sig, og missa Dag úr stjórnarandstöðu, sem stóð sig mjög vel...... að mínu mati, tek enn fram að ég hefi ekki vit á þessu. Dagur fínn þar sem hann var og Vilhjálmur þar sem hann var.
EN ég verð að gera orð góðs vinar míns að mínum HVERS VEGNA ER ORKUSTOFNUN Í SVONA ÚTRÁSARHUGLEIÐINGUM Í ÞAÐ HEILA, Á HÚN EKKI BARA AÐ HUGSA UM SITT FRUMHLUTVERK? Og ætla bara ekki leikskólarnir að huga að útrásarmöguleikum, þeir eru hvort eð er reknir með halla, leikskólakennarar eru hvort eð er svo ílla launaðir, að það mundi margborga sig að athuga útrásarmöguleika þar, og bjóða síðan kennurunum að gerast hluthafar, og taka þátt í leiknum, matadorinu. Skiptir ekki máli með krakkana, þau koma hvort eð með að leggja útrásar stefnuna á oddinn, hvað annað, það getur ekki verið að það þurfi að kenna þeim neitt bull, þau geta bara lært matador og það almennilega......
Það verða að koma einhver mörk, stórkostlegt hvað okkur hefur tekist hvað varðar útrásina og vonandi höldum við lygnum sjó í framtíðinni, hvað varðar þau mál. En verndum vatnið okkar og orku og hinn almenni vísitöluíslendingur greiðir bara alltof mikið fyrir þessa orku, og við höfum ekki efni á þessari útrás, og hryllingur til þess að hugsa ef þessi orka færist yfir á nokkra einstaklinga.
PS Skyldi skúríngakonan hafa fengið tilboð um að eignast hlut í OR???????????
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2007 | 17:59
NÍU AF HVERJU TÍU..........
![]() |
Níu af hverjum tíu starfsmönnum Orkuveitunnar kaupa í REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)