Færsluflokkur: Lífstíll

JOSE SARAMAGO portugalskur rithö. úrdrættir á aðventu.

Þeir strangtrúuðu töldu sig finna ilminn af Jerúsaleg, þegar þeir nálguðust Ramah. Símon gamli og félagar fóru sína leið, þar sem, eins og áður sagði átti Símon að skrásetja sig í sinu eigin héraði. Tilbáðu þeir Drottinn og þökkuðu honum, ferðalangarnir og kvöddust.  Giftu konurnar gerðu Maríu alveg áttaavilta með sínu mörgu ráðum, ávöxtum reynsu þeirra.  Einn hluti félaganna ákvað að hvílast í dalnum, eftir fjögurra daga göngu, og aðrir leituðu sér skjóls í úlfaldalestinni þar sem brátt mundi skyggja.  Hópurinn sem tók sig upp í Nasareth, fór aðra leið, þar sem þeir settu stefnuna á Beersheba. Það voru tvær dagleiðir, en trésmiðurinn og kona hans fóru í átt að Bethlehem.

   Það var ringulreið í hópnum er þeir kvöddust, en Jósep náði að draga Símeon afsíðis til að ræða frekar sýnina sem birtist honum á dögunum. "Ég hef sagt þér það Jósep, það var ekki sýn",   Jósep svaraði honum "Hvað sem það var, þá verð ég að vita hvaða örlög bíða barnsins mín sem í vændum er", Símeon var ákveðinn við Jósep "Meðan þú stendur hér og spyrð mig spurninga, og veist ekki þín eigin örlög, hvernig geturðu þá búist við að vita örlög barnsins þíns?"


Í BYRJUN AÐVENTU

   Á leið suður, komust þau gegnum alla Samaríu og fóru mjög greitt. Þau höfðu augun á stígnum, og kvíðin fylgdust þau vel með nánasta umhverfi. Þau áttu von á einhverskonar fjandskap frá hópum sem hataði þau sem lifðu í þessum landshluta. Afkomenda hinna fornu Assyríumanna, sem þekktir voru fyrir sína syndugu hugsanir og fornu trúararfleifð. Þessi fjandsamlegi hópur hafði sest hér að þegar Shalamazer Konungur Ninhevé hafði sölsað undir sig héraðið, eftir árás hans á ættflokkana tólf og splundrað þeim.     Þessi hópur var jafnvel miklu heiðnari en Gyðingarnir, þeir tilbáðu Mósebækurnar fimm, þær voru þeirra heilögu lög, og Guð hefði úthlutað þeim Samaríu.   Þeir tilbáðu ekki Musterið í jerúsalem heldur Gerizim fjall sem var á þeirra landssvæði.    Galíleuleiðangurinn fór hratt yfir, en komust ekki hjá því að gista tvær nætur undir opnum himni  í þessu fjandsamlega umhverfi, þessir villimenn í Samaríu áttu sér engin mörk, og voru vísir til að neita þeim um vatn til drykkjar, jafnvel þó að sannur Hebrei væri að dauða kominn vegna vatnsþarfar.          Slíkur var ótti leiðangursmanna að þvert ofan á venjur sínar, skiptu karlmennirnir sér í tvo flokka, og var annar hópurinn fyrir framan konur og börn, en hinn hópurinn aftan við, til að varna þeim ágangs, eða einhverju enn verra.    En Samaríumenn, samtsemáður, hljóta að hafa verið í meira jafnavægi, þar sem Galíleuflokkurinn mætti engu íllu frá þeim þetta skiptið.  Engir ræningjar komu úr hæðunum og grýttu þau.


SKILABOÐASKJÓÐAN

   Alveg var þetta stórkostleg sýning, við örkuðum þetta við þrjár, amman,mamman og 3ja ára telpan, í þessu líka veðrinu sem var um eftirmiðdaginn. Heildarvinna sýningarinnar alveg afspyrnu góð. Átrúnaðargoð mitt í gegnum árin Jóhann G. þarna í eigin persónu. Mikil stemning í salnum og börnin tóku þátt af mikilli gleði.  En í allri slagveðursrigningunni varð Sólveigu Önnu á orði  "Amma mín, þú verður að hjálpa mér að taka aumingja jólatrén inn þeim er svo kalt".

ÞAÐ SEM ÞRIGGJA ÁRA BARN GETUR KENNT MANNI..........................Halo


BISKUP íSLANDS VÍGSLUVOTTUR.....

Þetta er mjög ánægjulegt.


mbl.is Biskup Íslands vígsluvottur í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKREKKUR KEPPNI SKÓLANNA

Það var mér mikil ánægja og okkur öllum í fjölskyldunni að fylgjast með SKREKK á SKJÁ einum, á dögunum, og það var stolt amma og stoltur afi sem fylgdust með dóttursyninum leika þarna listir sínar, það verður að viðurkennast.   En mikið átak er í gangi hjá þessum unglingum bæði sem taka þátt og svo hinum sem styðja, og sem örugglega eru að gera eitthvað annað á meðan en að æfa fyrir SKREKKINN.   Þetta hlýtur að leiða mjög gott af sér, vegna þess.... að þau hugsa "að mínu mati" mjög breitt og djúpt.  Allir skólarnir vildu hafa boðskap, mismunandi mikinn, mér fannst mest gaman að sjá hina leikrænu tjáningu, sem boðið var uppá og alla þessa hæfileika sem maður varð var við, og alla vinnuna. Þetta er gífurleg menntun sem lærist á þessu að mínu mati, og þá helst TILLITSEMI við náungann, og virðing fyrir annara verkum, þetta samspil sem þau geta borið með sér til framtíðar.

     Við eigum mjög gott fólk, góða unglinga, og ég einhvernveginn treysti þeim til að takast á við framtíðina.  Framtíðin held ég, að sé ekkert sérstaklega auðveld, en þau virðast gera sér grein fyrir því. Þau þurfa að takast á við svo margt, sem hefur farið aflaga hjá okkur.


UMSKIPTI HAMSKIPTI

Það hafa orðið gífurleg umskipti á eldhúsinu okkar, svo mikil að ég sé ekki annað en að ég verði einhvernveginn að hafa hamskipti.. Mér var gefin svunta, ljómandi falleg, og hélt ég að það yrði svona nokkurnveginn nóg, en ég sé ekki fram á annað en að nú þarfnist þetta eldhús húsmóður, sem kemur sér um alklæðnaði, og þá ekki bara einum, heldur til skiptanna.  Til að aðlaga Bónda minn, svo honum líði vel meðan hann er að "hellauppá" í morgunsárið, hefi ég lagt fyrir hann þau áhöld sem til þarf.  Ég held að hann sé bara ánægður með sig þarna í skotinu, sem er bara notalegt umhverfi. Vegna aldurs þolum við ekki mjög sterkt kaffi á morgnana, en drekkum því meira af "sálarkaffi", það er kaffi sem er með töluvert af kærleik í. En hann hellir alltaf uppá, fyrir sína skapstyggu konu, og það er kærleikur í hverri einustu vatnsbunu. Þessi skapstygga kona skánar heilmikið eftir tvær könnur, sú þriðja er drukkin þegar smá jafvægi er komið, þe eftir blaðalestur. Bóndi minn þarf ekki að skipta um klæðnað, þetta klæðir hann bara ljómandi vel, hann á bæði fljólubláa peysu og rauða, svo þetta er allt saman í góðum gír.   Það hafa komið fram skoðanir á þessum breytingum, meira að segja eru til einstaklingar (fáir, ef ekki bara einn!!!) sem hafa farið í viðkvæmniskast vegna fráfarandi innréttingar, en ég held að það lagist, eftir nokkrar máltíðir sem boðið verður uppá.

Kemur það einhverjum á óvart???????????

Er ekki hissa á því... Svo miklar eru pælingar hans á þessum sviðum, stundum hálfgerður uppúrveltingur.
mbl.is Þórbergur ekki við eina fjölina felldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þessi betri????

IMG_0926

Bæjarferð....

Mikið er nú annars gott að geta séð veðurspána svona fram í tímann.  Nú bara verður skundað af stað niður Laugaveg og upp Skólavörðustíg, á morgunn, það er spáð góðu. Vinkona mín ætlar að kaupa kápu, hún segist vera búin að leita aaaalsssstaðar..... En ekki á Laugaveginum, svo ég auðvitað bauð mig fram til aðstoðar, ( stórnsemin varð ofan á hjá mér.), og það verður svona haustveður á morgunn. Kannske kem ég við á Skólavörðutígnum og kaupi mér Jólabol.  Eiginlega er full þörf á þessu, við eldhúsinnréttinguna, ég sé eiginlega ekki annað en það sé bráðnauðsynlegt, það verður að vera eitthvað samræmi með húsmóðurinni og eldhúsinu, hún getur ekki verið þekkt fyrir að vera þarna til dæmis í einhverjum fötum sem hún hefur verið í áreftir ár.  Eiginlega hefur þetta verið smáhöfuðverkur hjá mér, hvað mundi til dæmis klæða mig í væntanlegu hlutverki mínu innan um þessar útdraganlegu skúffur, Auðvitað yrði óskaplegur stíll í að vera í svona flaksandi pilsi meðan hún tekur danssporin á milli nýju tækjanna, (eru síðan 97, sem betur fer), það verða svona quik step sem hún tekur á milli Ískáps og eldamaskínu, og svo þarf nátturlega að teygja sig fallega að viftunni, og draga svo út skúffuna á hjólunum í bakaleiðinni, sveifla pottinum, upp úr og smella á eldamaskínuna með mjög faglegum hreyfingum.  Já ég er eiginlega alveg staðráðin í því að æfa mig í þessum húsmóðurdansi, ég hefi verið alltof þunglamaleg og stynjandi undanfarin jól.

   En ég held að nýr bolur geti nú alveg bjargað þessu......Svo er auðvitað fullþörf á nýjum varalit við


AFREKSVERK ÓTRÚLEGS KVÖLDS.

Hef setið hér við og reynt þessi ósköp að koma inn bæði færslu og mynd, en ekkert gengur, reyndi að vista hana en kemur ekki hjá mér. Ég mun reyna áfram að eyða vinnu í þetta ef ekki eru einhverjir svo elskulegir að hjálpa mér við þetta.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband