Færsluflokkur: Lífstíll
15.2.2008 | 17:33
HEILKENNIÐ FLUGFÝLA
Er frekar leiðinlegt. Kemur sérstaklega fyrir á leið heim. Sleppur svona nokkurnveginn á útleið, vegna þeirrar tilhlökkunar yfir að fara aðeins úr landi. Einkennin eru áberandi, einstaklingur getur ílla leynt þeim þar sem útlit einstaklings er gríðarlega fýlulegt, það mikið að maður heldur að einstaklingurinn sé í sorg, eða hafi elst alveg ótrúlega hratt síðustu misseri. Sjúklingurinn hefur allt á hornum sér í flugvélinni, hefur óvinveitta líkamstjáningu gagnvart starfsfólki vélar. Finnst almennt starfsfólk koma með hallærislegar athugasemdir, og er viss um sjálfur að allt væri betra, ef hann stjórnaði þessu öllu saman sjálfur. Athugasemdir starfsfólks einsog ef spurt er um gæði krema, "þetta hefur reynst henni ömmu minni vel" fara mjög illa í þessa sjúklinga, sem spyrja oft um hvernig langamma þeirra hafi það, ef sjúklingurinn er ílla haldinn. Sem betur fer tekst þessum sjúklingum að halda aftur af sér, umhverfisins vegna, og vegna þess að hann vill ekki komast á lista flugdólga. Þessir sjúklingar hafa mikið á móti því að þakka starfsliðinu við landganginn eitthvað sérstaklega, þar sem þeir eru bara að vinna sína vinnu að þeirra mati.
Þegar komið er á miðja vegu til Rvíkur, eftir Reykjanesbrautinni, réna einkennin talsvert þar sem sjúklingurinn notar þessa leið til að ergja sig á ýmsu, t.d. bölvuðu myrkrinu, og menningarleysinu í frágangi Reykjanesbrautar, fyrir utan það að skammast sín fyrir að sætta sig við að keyra þessa braut í því ásigkomulagi sem hún er núna.
Lækning er líklegast enginn, nema vera skyldi að stinga höfðinu í sandinn, og snúa sér að almennum málum landans sem eru borgarstjórnarmálin. Það má alltaf halla sér að þeim greinilega. Síðan má með vorinu ergja sig á náunganum sem ekki gerir þetta og hitt, svo það er af nógu að taka. Svo er bara það besta að leggja drög að næstu ferð, þar sem heimferð er ekkert verið að hugsa um í byrjun, enda tekur þetta fljótt af.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.2.2008 | 22:25
FERÐAFÉLAGAR
Það var eiginlega með þónokkrum kvíða sem ég settist í sætið mitt í flugvélinni, lenti í miðsæti, sá mína sæng útbreidda, með yndislega tvo norðmenn mér til sitt hvorrar handar. Gat ekki séð hvernig ég átti að geta sofnað flugblundi, en sjúkk, voru ekki bara þessi álitlegu Íslendingar, sem ekki eru alltaf bestir að mínu mati, þarna voru komin stúlka annars vegar og piltur hins vegar. Jeminn hvað ég var fegin að þurfa ekki að spandera minni lélegu norsku, sem rétt dugir til að biðja um bolla af kaffi, að ég tali nú ekki um þá næmni sem þarf til að skilja blessaða norskuna En þarna sá ég eins og skot að ég var afspyrnu heppin manneskja eftir törn mína í flughöfninni, hafandi verið gegnlýst vegna fljótandi vökva í formi Vanillusólu frá Freia í Norge. Fyrir utan auðvitað armböndin sem fylgja munu mér um aldur og æfi. Þetta voru skemmtilegir einstaklingar, sérstaklega miðað við það að þau voru íslensk, en þannig er mál með vexti að ég hefi alveg sérstakt dálæ´ti á Norðmönnum, og sérstaklega húmornum þeirra sem hentar mér mjög vel, léttur og átakalaus, betra að vera í formi til að geta haldið uppi samræðum þá..
En semsagt flugið heim var enga stund að líða, og gaman að vera innan um þetta góða fólk sem ég var í dag, ég er þeim þakklát,´þar sem ég er ílla haldin að syndrominu "flugfýla", en einkennalaus var ég í dag.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2008 | 14:20
ÓTRULEGT
Að það skuli vera hægt að senda tónlist til pólstjörnunnar, og akkurat þetta lag með Bítlunum skyldi verða fyrir valiinu.
Eru kannske Múmínálfarnir framtíðarveröld?????
Það skyldi þó ekki vera????
(Datt það bara svona rétt í hug, eins og annað spúkí)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2008 | 21:14
´ÞORRASTAPPA
Ég var soldið efins um að fuglarnir mínir myndu ekki þreyja kuldabolatíðina um dagana, þeir voru farnir að færa sig svo nálægt húsinu, leitandi á nýja staði, og kvaka svo nálægt gluggunum.Sjálf vorum við hjónin meðvitundarlaus í sólarhring vegna þorrapestar sem sækir á landann þessa dagana. Með súrrandi svima og ógleði, kraflaði ég mig í gegnum skápa mína, til að finna eitthvað virkilega gómsætt, fyrir þessi húsdýr mín, þeir voru að vísu komnir eitthvert í var, en ég sauð stöppu. Stappan sú arna samanstendur af ýmsum óhollum sætindum, sem ég hefi ekkert með að gera fyrr en næstu Jól, og sem betra er nýtist strax og er ekki að flækjast fyrir mér þar til ónýtt er. Uppskrift ef einhver vill
Döðlur, sem eru þurrar af elli, púðursykur sem er orðinn glerharður,
Möndlur sem eru farnar að þrána, Brauð sem gleymst hefur að borða.
Öllu sullað saman, ásamt vatni, og hitað varlega saman, ekki sakar að setja Sirius suðusúkkulaði samanvið, ef frost er ógurlegt. Síðan að skvetta í gusum út á stein. Þetta er með eindæmum lystugt sýnist mér, og er barist um bitann, þó ekki sé meira sagt. Hélt um tíma að ég væri eftilvill að steindrepa þá á þessu, en svo er ekki. Að vísu fitna þrestirnir soldið á þessu, og gárungar fjölskyldunnar segja mér að þeir haldi ekki jafnvægi nema í styrkustu greinunum, en ég vil nú ekki trúa þeim ( Friðbirni og Hannesi), en eitt veit ég að fuglasöngurinn svíkur ekki að vori.........
Á morgunn fer ég til Noregs að líta á mennsku smáfuglana mína þar, Selmu Ósk og Malínu Birnu, ennfremur að kíkja á krákurnar þar í garðinum sem mér finnst svo skemmtilegar..........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2008 | 20:07
KRÁAREIGENDUR LEYFA REYKINGAR Í MÓTMÆLASKYNI.....
EG ER EKKI HISSA Á ÞVÍ, þó fyrr hefði verið, miklu fyrr. En sjálfsagt hefur þetta tekið talsverðan tíma að bræða þetta með sér. Ekki er reykingamönnum bjóðandi að norpa þetta úti á gangstétt með tóbakið sitt, blátt áfram lítilsvirðandi. Tóbak er til sölu. Tóbak er viðurkennt neysluefni. Tóbak er efni sem einstaklingur velur eða hafnar. Er það nokkuð flóknara en það? Sjálfsagt mál, er að hafa aðstöðu fyrir reykingafólk, þeir sem hafna tóbaki eiga rétt á því að vera í reykfríu umhverfi bæði á veitingastöðum og annarsstaðar.
Þetta eru að verða óttalegar öfgar í tóbaksmálunum. Svo er komið að reykingafólk harðneitar að reykja inni hjá manni, rýkur bara út um víðan vang, allavega pall, og heimtar að reykja þar, dugar lítið að margganga á eftir fólki, hreint út sagt að þrábiðja það um að reykja inni, svo er búið að ala á sektarkenndinni.
Reykingamenn og konur eru hólfaðir inní bás, sem er annars flokks. Biðja mann afsökunar þegar þeir eru orðnir órólegir, og hörfa flóttalegir í eitthvað afdrep, þar sem hægt er að virkilega að skammast sín, og auka sektarkenndina. Inni sitja einn eða fleiri einstaklingar sem eru kannski þvílíkt mengunarvandamál vegna afspyrnu erfiðleika í umgengni, leiðinlegir, og skammast sín ekki neitt, langt í frá, sitja sem fastast, og maður óskar þess sem fyrst að þeir eða þau bara byrji að reykja, og það mikið, og það sem fyrst....
Eru það ekki sjálfsögð mannréttindi að afdrep sé á veitingastöðum fyrir reykingafólk?
Er það skv. lögum, að senda fólk út í frost, aðeins vegna þess að það notar efni sem er löglegt?
Ég styð Kormák Geirharðsson, og hans menn......
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.1.2008 | 12:54
GJALDÞROT HJÁ SPAUGSTOFUNNI ????????
Er kannske kominnn tími til að skipta út?????? Er kannske kominn annar áhorfendahópur ?????
Er kannske kominn yngri áorfendahópur ??? Er áhorfendahópurinn ekki 60 ára og eldri ??????
Á kannske spaugstofan að vera á lokaðri rás???
Mér datt þetta bara svona í hug, meðan ég var að elda stöppu fyrir smáfuglana....................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2008 | 19:57
Kuldabolaárstíð, ´hvíldartíð, útsöluvertíð.
Það er svo makalaust spennandi þetta veður okkar, alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt. Við vitum ekkert hvernig þetta verður á morgunn til dæmis, og það veit sá sem allt veit að ég er ekki að meina þetta í neinu háði. Dugnaðurinn alveg makalus í okkur Íslendingum, og hvað við tollum hérna, og stöndum af okkur þessa storma. Það þarf töluverðan húmor í hjarta til að vera Íslendingur, enda erum við ábyggilega langt frá því að vera húmorslaus.
Ég fór útúr húsinu í gær, mér fannst ég endilega þurfa að koma við í einni búð, og kom þá í þessa fínu lýsingu, sá allt í einu allt í réttum lit, síðbuxurnar mínar voru alveg hræðilegar, ég sá bara að þetta var alveg vita ónýtt, ekki bara orðið mjög þunnt efnið á stöku stað, heldur var gömul lítið áberandi málningarklessa í sama lit og þvottahúsið mitt er. Þetta varð til þess að ég fór að hugsa, sem er ekki mjög áberandi í fari mínu, en taldi árin, þau voru ansi mörg síðan ég hafði málað þvottahúsið, og mér ofbauð nýtnin, keypti buxur í snarhasti, þe "var ekki lengi að því", beint í nýju buxurnar, hinar í poka, og verða þær ekki notaðar nema í málningarmaníu. Hvað það er gott að vera í réttri búð á réttum tíma í réttu ljósi, og allt það......., en þetta var ágætt þar sem ég er ein af þeim sem haldin er útsöluáhuga, ein af þeim sem arka af stað, mjög snögglega til að slæða ýmis svæði. Kaupi til dæmis hluti með þessari aðferð, sem er aldeilis gott fyrir kuldabolann sem á næsta leiti er, og það sem mest er í þessu öllu og best, er AÐ HVÍLA SIG RÆKILEGA Á EFTIR.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2008 | 19:27
SORGLEG FRAMKOMA UNGLIÐA
Hverju eru ungliðar að mótmæla?? Eru þeir að mótmæla þeim foreldrum sem ólu þá upp í þessu annars besta landi heims skv. rannsóknum? Er ungt fólk að mótmæla þeirri velsæld sem umlukið hefur þessa kynslóð?? Ég verð að segja til viðbótar eru þetta þakkirnar, til foreldranna sem gefið hafa ungu fólki öll þau tækifæri sem þau hafa? Ég treysti mér til að taka þetta uppí mig af því ég er ekki af kynslóð foreldra krakkanna sem voru í ráðhúsinu í dag, ég gæti mjög vel verið amma þeirra, þannig að persónulega get ég ekki tekið þetta inná mig. En ég hefði orðið sorgbitin ef ég hefði átt barn þarna eða barnabarn. En vissulega er pólitíska baráttan einkennileg í borginni núna, mikið verið rætt um nýja meirihlutann, en sjálf verð ég að segja "Að ég hefi töluverða samúð með nýja meirihlutanum, og þá vegna þess hvernig hann kemur inn í stjórn borgarinnar, sem að mínu mati er í góðum málum" Það er einkennilegt með þjóð sem aldrei hefur verið undir stjórn einræðisherra, skuli bregðast svona við, með byltingarkenndum baráttuaðferðum. Er það ekki aðferðin til að kalla yfir sig einræði? Er það ekki aðferð sem er kunn, annarsstaðar frá?
Ég hefi ekki hundsvit á pólitík, skil hana mjög ílla, en þar sem við höfum enga glæpamenn í stjórnum okkar, hvorki borgar- né ríkis-, þurfum við þá endilega að búa þá til?? Er þörfin svona gífurleg að hengja einhverja einn eða tvo menn? Eða erum við kannske að hengja bakara fyrir smið?????
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2008 | 18:55
KVEÐUR FISHER MEÐ SÖKNUÐI (Orð Sæmundar Pálssonar mbl.18.1 s.l.)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.1.2008 | 20:50
UNGLINGUM AF ERLENDUM UPPRUNA....
![]() |
Unglingum af erlendum uppruna líður verr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)