Færsluflokkur: Lífstíll
27.6.2008 | 14:12
YFIRVINNUBANN??? Á HJÚKRUNARFRÆÐINGA ?? VAL EÐA VALDBEITING
Þetta eru kellurnar mínar úr hjúkruninni, við þekkjum lítið til yfirvinnubanns sem nú er mesta umræðan um í okkar stétt. Kannske erum við bara hættar að hugsa um samninga, réttindi, yfirvinnubann, 100 stunda vinnuviku, alveg blanka vinnuskýrslu í ágúst, og allt það heila. En svo sannarlega vonum við að manneskjuleg réttindi stéttar okkar nái fram að ganga.
Hjúkrunarfræðingur hefur verið núið um nasir í gegnum ævina, þegar þeir hafa verið að tala um launin sín, "já, en þið fáið svo margar aukavaktir!!!!!!", jú það er alveg rétt, við höfum getað mokað inn aukavöktum, en það er ekki það sem við höfum viljað. Auðvitað hafa margar okkar séð tekjumöguleika í þessum aukavöktum, en vel að merkja, vorum við fastráðnar flestar okkar til að ná lífeyrisréttindum okkar. Aukavaktir voru ekkert annað, en Bjarnargreiði við okkur, þetta var ekki það sem við vildum, alls ekki. Margir hjúkrunarfræðingar voru þannig gerðir og má það vera stór galli, en þannig var það, að þeir fóru helst sem lengst í burtu til að losna við tengsl sín við stofnun sem þær unnu á, þar sem þeir vissu að, vaktaskýrslu voru meira og minna "blankar" yfir háannatíma vinnustaða sinna. Þeir sem ekki voru utan vinnustaðaumhverfis, höfðu ekki frið, það er staðreynd, sem ég veit ekki hvort er enn við lýði, hef ekki kynnt mér það, en þannig var það og ég get nefnt, bæði ár og stofnanir.
Það er þannig, að alltaf er höfðað til samvisku kvenna og það hefur verið gert við okkur hjúkrunarfræðinga, ég þekkti ekkert annað þegar ég var í starfi. Deildarstjórar voru mismunandi flinkir við að "leika þann leik", en voru alltaf í neyð, svo þetta var leið sem varð að fara
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2008 | 10:07
Sólskin.
Nágrannakonan mín, hún Ingibjörg, er einnig hversdagshetja, sem vert er að taka eftir. Við erum á sama aldri, og hún er einnig með garð. Maður hennar féll frá fyrir nokkrum árum. Ingibjörg er svo sannarlega með þessa margumtöluðu grænu fingur, hjá henni lýsir það sér í því að það er alveg sama hvaða plöntu hún kemur nálægt, sú planta bara fer að vaxa og vaxa. Það hefur verið mér rosaleg ráðgáta hvernig hún endist í garðinum, þar sem ég veit að hún er mjög slæm í skrokknum.
En hún er með ákveðið kerfi, svona sjálfsaga. Það er ekki sami bægslagangurinn og í mér, hún er bara alltíeinu búin að þessu og hinu. Hún hefur oft setið í stólnum sínum, með kaffi, meðan ég er stynjandi af vökvaskorti, algerlega án skipulags hér í mínum garði.
En leyndarmálið opinberaðist hér á dögunum, þegar ég var að dáðst að seiglu hennar.
HÚN ER MEÐ TÍMAKLUKKU Á KAFFIBORÐINU Á SÓLARSTÉTTINNI SINNI
Tímaklukkan hennar sem hún stillir, vekur hana af ákafanum, og hún sest í góða stólinn sinn við garðborðið sitt og drekkur vökva og kaffi og hvílir sig í ákveðinn tíma, og slappar af.
Ég er ekki farin enn að kaupa tímaklukkuna, en ég er svona að íhuga þetta, og kem örugglega til með að reyna þetta.
En þetta er lærdómsríkt, og gott að tileinka sér.
Garðurinn hennar er Hlégerði 16, Kópavogi.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2008 | 23:24
sólskin.
Hitti nágrannakonu mína í dag, sem ber út póstinn, hún er ótrulega skipulögð. Hún er með þrjár götur og sést aldrei bera poka, heldur á nokkrum bréfum, og ég hefi stundum verið í vafa um að hún sé póstur. Ég hafði það nú af að spyrja hana í dag, og ljóstraði hún upp leyndarmálinu, ég held því leyndu, en mun gefa Íslandspósti upplýsingar ef þarf.
Það er enn sólskin sunnanlands, og víst er fallegt að horfa út, og kvartaði póstkonan mín sáran undan misræmi, eða miðsjöfnum skoðunum á hvenær nóttin byrjar á þessum tíma, og hvenær hún endar, og hvenær eiginlega er kominn morgunn.
Hjá manninum hennar byrjar nóttin kl.2300, alveg sama hversu bjart er, aftur á móti byrjar nóttin hjá henni ekki fyrr en í fyrsta lagi 0200, þarna er heilmikill munur, þegar hún leggst til svefns, er maðurinn hennar í fastasvefni, kominn í djúpa svefninn, og erfitt að hlusta á þannig einstaklinga, sem jafnvel eru komnir langt í handanheim, að athuga ástandið þar,
Víst er gífurlega fallegt, og það er 13. í svölum, eða palli, og snemmsyfjaðir einstaklingar alveg í essinu sínu að þetta helst í marga daga, og´ég svosem líka. Allt verður eitthvað svo fallegt, jafnvel rabbbarbarinn sem er ekki sérstaklega falleg ´jurt, er eiginlega þolanlegur fyrir augað
Það er gífurlega fallegt að horfa yfir til Manhattan (Sjálandshverfið), það speglast kvöldsólin, sem hún Guðný Anna sér útum stofugluggann sinn, í gluggum blokkanna þar. Það er ekki einleikið hvað grastið hjá mér er grænt, og ég held að ég hafi aldrei séð sýrenurnar svona pattaralegar, þrátt fyrir brotsjó vetrar.
Það eru akkurat 15 ár síðan fyrsta barnabarnið mitt fæddist, þá gróðursetti ég lítið tré, gullregn, hér í garðinum, og í dag, er það algult, Fyrst blómstraði það bara annað hvert ár, en nú er það í blóma hvert ár, og átti ég allsekki von á þessari blómgun, þar sem vöxtur allur ruglaðist í blíðviðri fyrrvetrar og slæmu vori.
En svona er þetta allt óútreiknanlegt, gullregnið hefur blómstrað, og Villi líka, ég get ekki betur séð. Enn eru strákar úti í fótbolta, og ég minnnist næturinnar sem ég gekk Öskjuhlíðina, þá Jónsmessunótt, í fornöld.
Ég skil í dag, vegna hvers það veittist mér svona auðvelt að vaka á næturna, best fannst mér að vaka á sumrin, margir voru hissa, en þetta átti gífurlega vel við mig. Ég á margar myndirnar frá Spítulum Rvíkurborgar sem ég tók við sólsetur og sólarlag, fór ég þá útá svalir sem snéru til austurs og vesturs til skiptis, eftir því hver tíminn var.
En ég er svo innilega sammála póstkonunni minni, nóttin byrjar kl. 0200, og dagurinn byrjar kl. 0400, þetta er ekkert flóknara en það.
En ég má til með að benda fólki sem er með serotonintruflun í heilanum um þessar mundir, að reyna að ná í kvikmyndina "INSOMNIA", hún er örugglega 10 ára ef ekki meira, aðalleikarinn er Al Pacino, endilega kíkið á þá mynd, ef hægt er að ná henni.
Reynið ekki að þröngva henni uppá snemmsyfjaða, þýðir ekki nokkurn skapaðan hlut...............
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2008 | 22:28
SÓLSKIN.....
Veldur ákveðnum æsingi hjá landanum. Því er öðru ´vísi farið hjá suðurlandafólkinu. Suðurlandafólkið verður bara ánægt, með umhverfið, sig og sína, svo kemur kvöldið og það verður ágætlega hlýtt, og það sem meira er, þannig lagað, að það kemur nótt.
Hér kemur aldrei nótt í 6 vikur, það er kvalræði fyrir mig, þessi óskaplega birta. Er eiginlega alveg sama hvað maður gerir, nema það er nátturulega hægt að byrgja með álpappír, sem ég geri þar sem ég sef, en það nægir bara ekki. Heilinn fattar ekki þennan endalausa dag. 50% af fjölskyldunni þjáist af þessum ósköpum, 10% voru hjá mér í pönnusteiktum kola, (ala amma Hanna), og héngu þessi 10% haus. Ég var ekki viss um hvernig þessi fiskur var, ég var sjálf ánægð með hann, en fékk engin komment, alger sljóleiki sveif yfir kvöldverðarborðinu. Þar sem þessi óskaplegi sljóleiki er víðar en hjá mér, hef ég verið að reyna að skilgreina, afhverju þessi æsingur er, og er eiginlega bara komin með prýðisgóða niðurstöðu, svona til að skilja lífið 260608. Þunginn er það mikill að við getum eiginlega ekki verið í umferðinni, verðum bara æst, flautum, og ýmislegt leiðinlegt.
Suðurlandabúar aka að mínu mati alltaf eins og ég veit ekki hvað, rífast og pexa, með allskonar handapati, og eru bara með aðra hönd á stýri. Þeir eru alltaf þannig, allar árstíðir, ef þeir eru bara ekki tárfellandi yfir smágolu og yndislegheitum.
Ekki hafa allir Íslendingar jafnaðargeð á þessum árstíma, það getur verið að fýlan sé aðeins vægari, eins og sagt er um jafnaðargeðseinstaklinga, (eru alltaf í sömu fýlunni.......). En ég verð nú að segja eins og er með mig að ég er í óskaplegu jafnaðargeði, er svo ílla sofin, að ég sigli í gegnum þetta eins og sauður, viðbragðalítil. Ég sjálf verð ekki einu sinni æst í umferðinni, gott ef ég er bara ekki soldið hættuleg, mér fannst það einhvernveginn í dag, en vel að merkja það var dökkur maður sem lagðist á flautuna sína.
En ég slapp. Hitti kvennaskólakonurnar í dag, hjá Guggu í Grafarvogi, sat í glerskála, og kaldur andvarinn kom inn um hurðina, og það sem meira var, það var tjörn og grjót á að líta út um gluggann, ekkert gras, bara hraungrjót, sem leit út eins og stuðlaberg. Stórkostlegir 3 klukkutímar. Á morgunn á Villi afmæli, 15 ár síðan hann fæddist með miklu brambolti hér í Rvík.
Á fimmtudaginn koma til mín 10 skólasytur mínar úr hjúkkó, svo það er bærilegt fyrir utan þessa miklu birtu sem inn kemur 0400..................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2008 | 00:20
HVAÐ VITUM VIÐ KONUR UM ROKKMÚSKIK?????? (v/greinar Árna Matt.)
Árni byrjar grein sína á því að mikill kynjamunur sé í rokkheiminum. Að það teljist til tíðinda að stofnuð sé kvennahljómsveit og fáar sem fjalli um tónlistina. Segir okkur ennfremur að það sé ekki kynjamunur á blaðinu þeas rokkrýna.Það er nú áætt, en ósköp hefur mér fundist þetta eitthvað einsleit gagnrýni í blaðinu á rokkið, eiginlega svo einsleit að ég nenni oft ekki að lesa þetta a til hlýtar. Hins vegar sá ég þessa stóru mynd af Dolly Parton, sem kannske hefur bara verið markaðssetning á greinina, en ég allavega stansaði, "Hvað kemur til"???. Allavega virkaði þessi markaðssetning á mig. Árni er í greininni aðallega að tala um tónlistargagnrýnendur, sem ég fylgist með.
Ég get ekki séð að til þurfi endilega kvennahljómsveitir, til að fjölga konum í rokkheiminum, rokkheimurinn er alger karlaheimur, og konur ílla komist að. Það hefði verið skemmtilegt að sjá blandaðar sveitir, sem hefði ennfremur verið ílla framkvæmanlegt, þar sem töluverðan kraftaskrokk þarf í böndin. Svosem eins og einn gítarista, en líklegast gengi það heldur ekki upp, svona moralskt, strákarnir yrðu eitthvað feimnir við þetta allt saman. Karlarnir hafa átt rokkið hér á Íslandi, það er ekkert flóknara en það.
Dolly Parton, er auðvitað kapituli útaf fyrir sig. Markaðssetti með útlitinu, þar sem hún var svo klár að sjá, að annað dugði ekki til, Dolly er auðvitað stjarna country rokksins, sem einhvernveginn hefur orðið útundan í rokkstefnunni, þar sem spekulöntum fannst það ekki rista djúpt. Frú Parton veit semsagt hvað varð að gera, það hefði ekki verið hlustað á hana ef hún hefði ekki komið fram undir kynbombuútliti sínu, ala May West og fleiri. Margir "kritikerar", hefðu sagt sem svo að hún væri að selja sálu sína, einhvernveginn kaupi ég ekki þá skýringu.
Mrs Parton, hefur bara þorað, lét sig hafa það.
Aftur á móti, er hún fangi, útlitsdýrkunar sinnar, það er svo annað mál, hún er ekki ein um það. Hefur örugglega mikið að gera í þeim efnum eins og sést. Og ef þetta virkar á karlmenn, þessar siliconblöðrur, nokkrum númerum og stór, þá bara virkar þetta. Ég held með henni, þar sem allir eru að halda með öllum núna í fótbolta.
Vitnað er í námskeið tónlistarblaðamanna í Árósum. Ég hrökk soldið við, "er eitthvað gagn í því??", þetta er nú meiri námsskeiðsdellan. Þarna eru ýmsir fyrirlesarar greinilega á námskeiðinu, en hvað kemur útur því annað en umræður um hluti, af fólki, sem er að gera rannsóknir, en hefur ekki hundsvit á rokki. Útur svona löguðu koma bara tölfræðilegar niðurstöður, sem teknar verða til athugunar þar til næst.........
kom fram að rokkkonur fengju aðra meðhöndlun. Það er skömm að því að umfjallanir um rokkkonur skuli vera útlitstengdar, bláttáfram ókurteisi.
Ég vona að Árni Matthíasson, skundi nú á ritvöllinn sinn, og fari nú að skrifa um konur, og vona ég að það verði vel gert. Það gerir ekkert til að hafa þau skrif soldið útlitstengd, og kannske væri alltílagi að svona rabba soldið um goðið Mick Jagger, hans útlit, og performationshreyfingar, sem við þekkjum öll, hann hefur jú markaðssett töluvert út á sínar hreyfingar.
Allir hafa jú sinn stíl, hvort sem það er í rokkinu eða annarri tónlist. Hitt er svo annað, hvað er að vera gagnrýnandi, hvaða stefnu hefur gagnrynandi? Ég hef talsvert fylgst með þeim um ævina. Tónlistargagnrýnendur eru ekki alveg réttlátir alltaf. Alltof hlutlægir. Maður veit ansi oft hvernig þeir ætla að skrifa..........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2008 | 10:58
FERÐAMANNAMARKAÐSSETNINGIN.......
Er mikið mál á Íslandi, bæði hvernig við markaðssetjum Ísland, svo og þegar sólarferðirnar eru annars vegar. En ég fékk yndislegar ábendingar frá ungum vinkonum um hvernig tildæmis væri hægt að markaðssetja Skagafjörðinn, nú í kjölfar Ísbjarnarblúsins sem á dagana dreif, eiginlega alger gullgúrka inní fréttir landans. Þetta var mál málanna í nokkra daga, og var bara heilmikil lyftistöng fyrir okkur.
Það er soldið áberandi, hvað við grípum svona skarpt. Vantar okkur einhverja spennu í þetta allt saman? Getur verið að ´landinn sé ekki eins hamiingjusamur eins og hann er sagður vera, skv rannsóknum?????
En bréfið sem ég fékk var alveg ótrúlega fyndið, sem ég þori engann veginn að birta í fullri mynd sinni. Spurningin mundi þá snúast um t.d. "HVERNIG VÆRI AÐ SKELLA SÉR Í SKAGAFJÖRÐINN", þar sem boðið væri til dæmis uppá ratleik á Skaga. Boðið færi uppá "ÆVINTÝRALEGAR ÓLÖGLEGAR FLUGFERÐIR UM SVÆÐIÐ". ónefnt flugfélag °" MUNDI BJÓÐA UPPÁ BEINT FLUG FRÁ KAUPMANNAHÖFN" yfir svæðið. ¨¨TVEGGJA DAGA SKOTNÁMSSKEIÐÍ YRÐI Í BOÐI", SÖGUSTUNDIR Á SAFNINU, OG UMHVERFISRÁÐHERRA KÆMI Á SVÆÐIÐ, MEÐ ÓLÖGLEGRI FLUGVÉL".
Það er eiginlega heilmikið adrenalinkikk, sem hægt væri að bjóða uppá, svo sem eins og allsstaðar er reynt. Og svona til að halda adrenalinkikkinu í góðri hæð, og tími væri nægur, mætti koma við í Strandasýslu, þeim miklu galdramönnum fyrr og síðar virðist vera, í galdrasafnið þeirra.
Ég segi bara það.
BENDI SÍÐAN Á GREIN ILLUGA JÖKULSSONAR Í 24 STUNDUM´Í DAG....
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2008 | 00:23
ÉG BARA TRÚI ÞESSU EKKI....
Það vill svo til að ég var að borða með líffræðingi í kvöld, vel að merkja, kvenkyns, og þar að auki Dani, sem var mér sammála með að það hefði verið alrangt að gefa ekki skepnunni að éta, og það heila kind. Birnan hefði verið orðiin snarrugluð vegna hungurs meðal annars. Það er mikið búið að spá og spekulera í aðgerðum varðandi Birnuna, en við erum eitthvað svo ófagmannleg í þessum málum.
Hræðsluhysterían alveg mögnuð, sem segir okkur hversu hallærisleg við erum, mér finnst ég bara vera komin 100 ár aftur í tímann. Mikið svakalega erum við annars aftarlega á merinni.
Hvað með einhver sár á þófum, ef hugsað er út frá fæð bjarnarins í heiminum ?.
Birnan, glorsoltin, lág í blóðsykri, slöpp, og ringluð. Hefði ekki haft nokkurn kraft í að gera nokkurn skapaðan hlut. Það var alveg hægt að varast hana, eins og hægt er að gera þegar ´von er á eftirskjálftum, eftir stóran skjálfta. Sama hysteríið í gangi. Það hefði verið hægt að flytja Skagabændur til Sauðárkróks meðan þessi ógn af Birnunni var. Þeir eru það fáir. Það hefði verið hægt að hafa vaktaskipti á bæjunum, þar sem ég geri ráð fyrir að einhverjir hefðu þurft að standa vaktir á bæjum sínum vegna skepna þar.
Hvurskonar æsingur er útaf þessari flugvél????+
Fréttamennskan og bollaleggingarnar um það mál, ef þetta og hitt, ef hann hefði og ekki hefði, þá hefði þetta og hitt gerst, sem er langt innan seilingar.
Það vantaði bara æti í þessa flugvél, sem hefði verið hægt að lóðsa til skepnunnar, og ennfremur er örugglega faglegra að taka mið af hvar og hvernig skepnan er, og er að gera, ef farið er með flugvél yfir.
En aumingja dýrið, eins og stundum er sagt, hefur líklegast ekki kvalist, vegna meðal annars sljóleika, og BETRA ER Í BURTU FARINN, EN Í BÚRI BUNDINN.
Hvað ætlum við að gera næst????????
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2008 | 12:05
NOVATOR VILL GREIÐA...
Það er ekki að spyrja að honum Björgólfi, maðurinn kann greinilega að "taka á því", ekki setið með spenntar greiðar í bið.
Annars eru áhyggjur mínar svo einfaldar núna varðandi þessa blessuðu skepnu, sem veit ekkert hvar hún er, örugglega lík ílla meðvituð um, hver hún er sem skepna, búin að gleyma því hvað er að vera ísbjörn, situr bara útí móum og borðar egg, eins og hver annar mávur. En mér datt bara í hug hvort ekki væri hægt að kasta svona eins og einu slátruðu lambi, afþýddur úr frystihúsi Skagfirðinga, ég þekki Skagfirðinga af fádæma gestrisni?
Er betra að hafa skepnuna banhungraða? Ég hef ekki hundsvit á þessu, en mér datt það bara svona í hug,hvort ekki væri betra að skepnan hefði magafylli, kannske er þessu alveg öfugt farið, en mér finnst einhvernveginn að hann þurfi að éta. Það liggur mikið program fyrir hjá honum.
![]() |
Novator vill greiða fyrir björgun ísbjarnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2008 | 12:48
Úr minnispokanum...
ÉG MAN ÞEGAR VIÐ STELPURNAR Í HVERFINU SÁTUM BAKVIÐ SUNDHÖLL Í SÓLBAÐI, AF ÞVÍ HVERGI VAR LOGN NEMA ÞAR, STRENGURINN UPP STÍGINN FRÁ ESJUNNI. þAR SÁTUM VIÐ INNAN UM ALLAN NJÓLANN, ÞAÐ VAR EINI GRÓÐURINN.
ÉG MAN HVAÐ MÉR VAR ALLTAF KALLT ÞEGAR MAMMA KLÆDDI MIG Í HÁLFSOKKA.
ÉG MAN HVAÐ ÞAÐ VAR ALLTAF KALT Á ENGJUNUM Í SÓLSKINI.
ÉG MAN ÞEGAR VALLA JÓN ÞÓR OG VIÐ FRIÐBJÖRN VORUM Í SÓLBAÐI BAK VIÐ HÚS, Á BARÓNSSTÍG, EIGINLEGA VAR ÞAÐ SOLDIÐ FYNDIÐ, Í RÖNDÓTTU SÓLSTÓLUNUM.
ÉG MAN ÞEGAR GUNNAR KAUPAMAÐUR Í KALDAÐARNESI FÓR ÚR AÐ OFAN ÞEGAR HANN VAR AÐ BINDA BAGGANA, ÞÁ VAR EINS OG HANN VÆRI Í HVÍTUM BOL.
ÉG MAN HVAÐ PEYSUR KAUPAKVENNANA VORU UPPLITAÐAR Á SUMRIN, ÉG BRÁ Á ÞAÐ RÁÐ AÐ VERA Í MINNI Á RÖNGUNNI.
ÉG MAN HVAÐ ÞAÐ VAR HRYLLILEGA LEIÐINLEGT AÐ GERA VIÐ NÆRFÖT, ÞEGAR ÉG VAR 10 ÁRA Í KALDAÐARNESI.
ÉG MAN HVAÐ MÉR FANNST GAMAN AÐ NÁ Í KÝRNAR.
ÉG MAN HVAÐ MÉR FANNST LEIÐINLEGT AÐ SKRÆLA KARTÖFLUR.
ÉG MAN HVAÐ MÉR FANNST KENNARINN MINN Í AUSTURBÆJARSKÓLANUM LEIÐINLEGUR.
ÉG MAN HVAÐ MÉR FANNST AFLEYSINGAKENNARINN MINN Í SAMA SKÓLA SKEMMTILEGUR.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.6.2008 | 13:13
ÁFRAM STELPUR....
Einhversstaðar stendur skrifað "halda skaltu hvíldardaginn heilagan", þetta eru yndisleg skilaboð til okkar um nauðsyn hvíldarinnar, vel að merkja, hvenær sem við tökum okkur þann dag. Í dag hefur sjaldan verið fallegra í kringum húsið mitt Sýrenurnar skarta fjólubláa litnum, og alparósin, sem ég hélt að ekki hefði af veturinn, er að springa út. Bróðir minn elskulegur á afmæli í dag, og það er bara miðvikudagur, svo ég er að hugsa um að taka mér hvíldardag og fara í sólbað, þó yfirþyrmandi rugl sé á þessu skrifborði mínu, sem er alltaf svo óskipulagt, ég held ég bara hafi það óskipulagt áfram. Ég fer svo í kaffi seinna í dag.
Það gæti verið að einhver uppákoma verði hjá mér á Sunnudaginn, svo ég tek daginn í dag fyrir mig, ég ætla ekki einu sinni að lesa, þaðan af síður að hekla. Mér fellur alltaf eitthvað gott til, þe það kemur alltaf eitthvað gott uppí hendurnar á mér, allt leysist á sinn hátt.
Fjölskyldan mín nennir stundum að borða með mér, ég er þakklát fyrir það, hún umber mig og fyrirgefur mér, það er nú aldeilis meira.
Hvíld og Bardós geta auðveldlega haldist í hendur, þegar hugarfarið er undir jákvæðum formerkjum. Mikið var rætt um streitu og streituvalda á vinnustöðum og heimilum, sem auðvitað er spurning um hvort við viljum hleypa þessari streitu inn í líf okkar. Það eru, og hafa alltaf verið mál til að takast á við, og þau eru stundum svo skemmtilega ögrandi, þó þau séu þrælerfið meðan eitthvað er að ganga yfir.
Þannig er það bara, en konur samtímans hafa verið óhemju "dugmiklar", og komið okkur útur moldarkofunum okkar, sem ég er svo þakklát forsjóninni fyrir að hafa ekki þurft að búa í, ég hefði eins og stundum er sagt í gömlu sögunum "´HÚN SNÉRI SÉR TIL VEGGJAR", og lá þar það sem eftir var lífs.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)