30.5.2008 | 20:09
LÍFSBARÁTTA
Án hennar, er ekki líf, eins og orðið ber með sér. Og ég vissi sem var, að fleiri yrðu ánægðir með ánamaðkana en ég. Mikið líf á lóðinni, smáfuglarnir að reyna að hafa í sig og og aðra familíumeðlimi, yfirsetan alger. Krákuhljóðið sem þeir gefa frá sér þegar köttur er nærri, er hljóð sem fer í mig. Vatnsbyssan mín er ónýt, svo nú verð ég að kaupa aðra á morgunn, en lét mér nægja að henda með mjög góðri sveiflu að þessum gulbröndótta dósarloki, sá varð hræddur, hann fékk einnig meðfylgjandi skammir, eins og "farðu til h......" osfrv. Það hefur ekkert að segja hann kemur örugglega á morgunn. En ég bara ræð ekki við þessa áráttu mína að fylgjast grannt með þessu, þegar ég er heima, á þessum árstíma. Sjálfsbjargarviðleitnin er greinilega ekki bara í manneskjunni heldur fylgir því að vera lifandi, og þegar ég sá þröstinn toga orminn uppúr moldinni, með flottri sveiflu, var ég svo viss um að það var ánamaðkurinn sem ég sá í gær, sem olli mér þessari ánægju í gær yfir sönnun lífsmarks í moldinni. En ég sá líka í hvaða átt hann flaug, svo nú veit ég hvar hann á heima, og ég veit líka að þar eru ungar í hreiðri, eða upptekin þrastamamma, því ekki át hann orminn sjálfur.
Ég vil að kattareigendum verði sett sömu viðurlög og öðrum gæludýraeigendum..........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2008 | 22:35
SUMAR, sumarskap, morgunnsól..
Ég er haldin endurvinnsluáhuga, þó ég standi mig afar ílla í endurnýtingu á pappír, fer aldrei í pappírsgámana, aldrei með flöskur, aðrir gera það í familíunni. Mundi sjálfsagt gera það ef ekki væru aðrir til þess. En.. það sem mér finnst eitthvað svo pirrandi, ef svo má að orði komast, er að setja garðúrgang í plastpoka, sem eru eins og heysátur í röð. Gera stóra ferð í sorpu, sem er óttalegt fyrirtæki. Hvolfa þar úr plastpokum, svo yfir mann og aðra þyrlast upp rykið. Bílarnir verða óhemju óhreinir, og mér finnst þetta eigi ekki að vera svona, allavega ekki þegar fólk býr við svona kringumstæður sem ég geri. Þessvegna fór ég að búa til hauga hér og þar á lóðinni á lítið áberandi stöðum, nema tveir þeirra eru beint fyrir framan eldhúsgluggann.
Ekki nokkur lifandi sála hefur dáðst að þessum haugum, ekki manneskja.. Var um tíma alltaf skítnervös ef ég varð vör við að fólki var litið út um eldhúsgluggann, svo ég reyndi að hafa þetta "blandað bakdyramegin", svona til að, ja svona bara til að hafa þetta blandað.Aldrei fékk ég neinar jákvæðar athugasemdir frá fjölskyldunni, varðandi þessar hrúgur, og sértillagðar körfur.
Í morgun var ég svo óheppin að vakna fyrir allar aldir, í þessu fína veðri, algert logn, og varð ég hreinlega að bíða, og drekka amk 3 kaffibolla áður en sómasamlegur tími kom til garðagrams. Hunangsflugan var vöknuð, og mig langaði að moka, bara moka, það er svona tilfinning, eða árátta sem enginn skilur, nema sá sem er haldinn þessari áráttu, eða þrá eftir að vera með skóflu. Og ég fór eitthvað að skoða hauginn, tína ofan af honum greinar, og viti menn, í fyrsta skóflutakinu er ég með þessa fínu mold í höndunum, sko, bókstaflega í höndunum, dökkbrúna og þessi sérstaka lykt. Þetta var greinilega minn dagur, ný handavinna, ný jörð, sem ég hafði vaktað og ætlaði eiginlega að fara að planta í þessar ómyndir mínar.
Ég fann þarna í leiðinni netskúffu úr frystiskápnum gamla, og mokaði í´og síaði, hvað þetta var skemmtilegt, ekkert nema fínerý kom úr grindinni, og það er alltannað að sjá "baghaven" allavega í bili. Aldrei hefi ég séð svona flotta ánamaðka, sem komu upp með moldinni. og ég vona bara að einhver fulglinn hafi fundið þá, ef hann hefur þá mátt vera að því að fara frá hreiðrinu, þar sem yfirsetan er í fullum gangi núna...............
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2008 | 11:04
MINNINGARMESSUR, mættu vera fleiri!!!!!!
Það verður minningarmessa í Fríkirkjunni á morgunn, minnst verður látinna einstaklinga sem létust úr Hiv veirusjúkdómnum. Við lestur tilkynningarinnar, kom mér í hug draumur minn um að konur kæmu því í gegn að ganga ljósagöngu niður laugaveginn að tjörninni, leggja kerti í tjörnina og sækja messu á eftir. Markmið þeirrar göngu í draumi mínum, væri til að minnast allra þeirra barnssálna sem myrtar hafa verið af "pervertum" þessa lands. Barnssálna sem víða eiga heima í landinu. Það nægir ekki æsifréttamennska dagblaða og frásögur kvenna í vikuritum, það nægir ekki...... Það er rætt um þetta af miklum hita í ca. 1/2 mánuð, síðan er löng þögn, og enn lengri tími í hlægilega stutta dóma.
Niðurlægingin alger, fyrst glæpurinn, síðan dómurinn. Konur hafa alltaf haft lag á að hrinda í framkvæmd atburðum af þessu tagi. Og ég er viss um að karlmenn kæmu jafnt sem við í svona göngu, konur hafa baráttuskap af öðru tagi. Að segja ekki neitt, að sýna bara afstöðuleysi, er miklu verra en allt annað þegar að umfjöllun þessara mála er svona mikil, eins og verið hefur í landinu undanfarið ár.
Konur hafa alltaf haft hæfileika til að láta hlutina gerast, bæði heima og heiman.
KONUR !!! GERUM EITTHVAÐ !! SÝNUM SAMSTÖÐU!! SÝNUM AÐ VIÐ GLEYMUM EKKI!!!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2008 | 14:17
SÓLARFERÐUM AFLÝST......
![]() |
Sólarferðum aflýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2008 | 23:55
SÖGULEGT ÁR 1938
VINSÆLASTI DANSINN KALLAÐIST "LAMBETH WALK"
VINSÆLUSTU LÖGIN VORU "SEPTEMBER SONG", A TISKET A TASKET" OG "JEEPERS CREEPERS"
MJALLHVÍT OG DVERGARNIR SJÖ VAR VINSÆLASTA BÍOMYNDIN.
MARGIR HÉLDU AÐ MARSBÚAR HEFÐU LENT Á JÖRÐUNNI ÞEGAR LEIKRITIÐ "WAR OF THE WORLDS" VA FRUMFLUTT Í ÚTVARPI.
ADOLF HITLER VAR KOSINN MAÐUR ÁRSINS AF TIME MAGASINE,
FYRSTA VOLKSWAGENBJALLAN VAR FRAMLEIDD,
KOFI ANNAN, KENNY ROGERS, LIV ULLMAN, SUPERMAN OG " AFMÆLISBARNIÐ" KOMU Í HEIMINN.
ER HÆGT AÐ HAFA ÞAÐ SKEMMTILEGRA, EN AÐ SENDA MANNI SVONA BOÐSKORT" ÉG SEGI NÚ BARA ÞAÐ, EN SVONA FÉKK ÉG INNUM PÓSTLÚGUNA Í GÆR, OG SVO SANNARLEGA ÆTLA ÉG AÐ MÆTA Í ÞETTA AFMÆLI. þAÐ VEIT SÁ SEM ALLT VEIT........................................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2008 | 02:27
HEIMKOMA ÍSLENDINGS
Ég hefi alltaf haldið því fram að það sé einskær tilviljun að ég sé Íslendingur. Það er svo lítið af mér af honum. En ég er ekki þannig að ég sé spennt að koma heim nema til fjölskyldunnar minnar, sem ég ætti að hvíla soldið á mér, þannig lagað. Stundum skammast ég mín fyrir að vera Íslendingur og þar fram eftir götunum. Ég hefi ekki fjallatignunarhólfið í hjarta mínu eða heila. Það vantar svo margt af þessu í mig. Mér þykir þó frekar vænt um Reykjanesfjallgarðinn af því hefur eitthvað svo fallegt form héðan úr glugganum mínum, mér finnst gaman að syngja Ísland ögrum skorið, í góðum hópi.
Ég er Íslendingur bara af því að mér finnst það vera skylda mín, af því ég fæddist hérna, en í mig vantar alveg þjóðernishyggjuna, lengi tengdi ég tungumálið við að vera Íslendingur, en nú er það að breytast.
En samt er það nú svo, að þegar heim er komið eftir smáferðalag, upplifi ég nær alltaf hversu mikil forréttindi það eru að hafa fengið að fæðast hér. Verð ég þá blendin í trúnni, og held að það hljóti bara vera til bráðabirgða, ég hljóti að hafa verið einhverntíma á verri stað, eða jafnvel í undirbúningsdeild fyrir annað, en auðvitað er þetta bull.
Forréttindi Íslendinga eru stórkostleg. Það eru ekki stríð, við þurfum ekki að senda börn í her, ekki að sofa með byssur, höfum getað valið um vinnu, bloggum án afláts, rifist um hvað eru tildæmis góð og léleg blogg, og er þá spurning, hver dæmir bloggið.
Ég sjálf er forréttindamanneskja, og ég vona að ég geri mér grein fyrir því það sem eftir er ævi, og þá ekki bara vegna þess að eiga heima hér, það er jú mitt val. Það eru forréttindi að geta fært sig úr stað, og það að færa sig úr stað, fara frá landi sínu smátíma, er eiginlega nauðsynlegt, og helst nokkrum sinnum á ári. Þarf ekki alltaf að vera langt. Að færa sig úr stað er einnig að hreyfast, hreyfast í aðrar áttir og nægir stundum Borgarfjörðurinn. Það er misskilningur að þetta þurfi að vera dýrt, þannig lagað, það hefur alltaf kostað að ferðast þó bara út á land sé, hefur bara alltaf verið síðan ég fór að færa mig úr stað.Hægt er að láta þetta kosta nokkuð ákjósanlegt.
Aðrar sýslur og önnur lönd opna huga manns, ef maður nær hinni góðu hvíld sem hreinsar hugann, fær okkur til að geta sorterað eitthvað þreytugrufl, sem er kannske í einhverjum hrærigraut í huga manns. Og til þess eru ferðalög, gott að sjá annað, aðrar þjóðir, sjá til dæmis nægjusemi annarra þjóða. Og til þess eru frí. Og þessvegna upplifi ég mig forréttindamanneskju. Ennfremur eru lífsgæði hér betri en annars staðar skv rannsóknum, og við hljótum að finna það.
Túlípanarnir mínir eru komnir í klösum, ég hélt ég hefði gleymt að setja þá niður, vorblómin skarta sínu fergursta, ég hef náð að taka til á skrifborðinu mínu, eftir margra mánaða drasl, grasið er grænt, eiginlega svakaleg spretta, þakka það korninu sem ég gaf í fyrra lagi. Mér fannst fallegt að horfa til stóru húsanna í Garðabæ, sjálandshverfið heitir það, þá finnst mér ég vera svo nálægt Manhattan, mér líkar vel að sjá ljósin á kvöldin, því þau minna mig á New York. Falleg form, formuð af fólki.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.5.2008 | 15:17
HEILSUBAELID BERAGERDI SYDRA
Bloggvinkona mín Gudnyanna hefur sent mér heilmikinn innkaupalista til apotekanna hér sem ég mun af kostgaefni athuga á morgunn. Innkaupalisti tessi er med eindaemum hugmyndaríkur, og legg ég til ad hún sñkji um einkaleyfi á tessum nofnum. En ég yrdi ekki hissa á ad tetta vaeri til herna, e vel yrdi leitad. En nu er tessu ad ljuka hja okkur her, og bídur bara betri tima.
Tad sem ekki er áberandi í bodi af terapiustofum, er t.d. psykoterapi, og ég hefi ekkert séd um AA samtokin en sjálfsagt er tad ad sjá í dagblodunum, svo tad maetti baeta tvi vid...........
En eitt rakst ég á skemmtilegt í skandinaviska mánadarbladinu, tad var vidtal vid konu jafngamalli mér, hún hafdi ekki efni á ad búa heima í skandivaviu, hafdi verid jasssongkona tar, og lagdi hann á hilluna tar, tegar hun ákvad ad flytja til Alicante, tar sem hún er 8 mánudi ársins. Hún aetaldi semsagt ad setjast í tennan margumtalada helga stein, sem ég hefi stundum nefnt ádur. En tad er komid svo ad hun er mitt sig eigid band og syngur núna í Alicante, er aldeilis ekki haett. Gaman ad tessu.
Hér á kaffihúsa og barhornum kemur sídan kona rúmlega 70 ára, uppdressud í spanioludansbúning, og tilheyrandi, stormar um med ferdataekid sitt og syngur med taekinu og dansar. svona eins og hún getur. Hún faer smátóknun í hatt, en tetta laetur hún sig hafa, og er ekkert verri en upptunnir gaejar med gítar.
Engar verslanir eru hér sem eru bitastaedar í Albir, taer eru bestar í Alicante og Valencia sagdi mér hollenska fótsnyrtidaman, tannig ad ýmislega vinnu er haegt ad setja í gang hér ef fólk vill, fara med kasettutaekid sitt til daemis, og rápa á milli stada, margir íslendingar eru allsekki búnir ad missa roddina. Hér er tildaemis engin spákona, enginn sem svona auglýsir.. spái í bolla, og gef fótanudd í leidinni, einn kínverji er á strondinni og bídur fótanudd, og háls og herdar, ég hélt ad hann taeki konuna úr hálslidunum, sem sat vid hlid mér á str0ndinni, tad hefdi ekki tott gott á Íslandi ad fara svona med hausinn.
Svo gaeti Gudny Anna sett upp vidtalsskrifstofu, og hún tyrfti nátturulega ritara og audvitad er ég sjálfskipud, vid gñtum líka spád, og Fridbjorn gaeti sungid nokkra slagara, ítalska, og Hjálmar séd um reksturinn, og vid mundum nátturulega allsekki taka krítarkort, frekar en adrir hér á strondinni..................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2008 | 14:50
VARDHALD FRAMLENGT
![]() |
Varðhald yfir Fritzl framlengt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 17:44
ER EKKI ALLT Í LAGI Á ÍSLANDI
Hér sydra er rólegheitalíf á fólki. Vid gengum ein reiàrinnar býsn í gaer, sem virkilega -ufti a`vinna úr í dag, en fórum samt í hinn hefdbundna gongutúr okkar uppúr hádeginu, sem er med hvíldum, ca. 2 tíma, og er tá virkilegur haegagangur. Athyglisvert er hversu Nordmenn hafa komid sér fyrir hér, teir eru med medferdarstofur bókstaflega fyrir alla, margar tegundir af medferdarstofum, og hñgt vaeri ad dingla sér hér allan daginn vid ýmislega hluti. Tannvidgerdir, tannplantationir, bakmedferdir, hálsmedferdir, allar medferdir sem hugsast getur. Í dag sá ég einkarekna stofu, rekna af hjúkrunarfraedingum, eftirmedferdarstofa eftir ýmsar adgerdir. Ég var grídarlega ánaegd med tad. En ég veit ekki hvort ég mundi nenna ad tiggja alla tessa tjonustu, eitthvad tómlaeti finnst mér vera yfir tessu, og mikid tarf madur ad vera upptekin af sínum skrokki, ef madur gaeti ekki valid úr tessu ollusaman. Tad er svo mikil markadsetningin á sjúkdómum, verkjum, tásveppum, iljanuddi, fjarsýni, rangeygu, ad tad er med ósk0pum. Tetta er natturlega alveg kjorid, ad taka bara allan pakkann. Apotekin eru mj0g frjálsleg vardandi lyfjasolu, og er gott rád ad birgja sig upp ef tess tarf, med hitt og tetta........................
SEM KOSTAR HJA OKKUR FYRST VIDTAL HJA LAEKNI, SIDAN LYFSEDIL, OG SVO AFTUR APOTEK, OG VERID GÑTI AD SÉRFRAEDINGSVIDTAL TYRFTI EINNIG. ÚTKOMAN HJÁ OKKUR VARDANDI KOSTNAD TRYGGINGASTOFNUNAR GETUR OLTID Á TUGUM TÚSUNDA.
TURFUM VID EKKI AD FARA AD SETJA ÁBYRGDINA Í HENDUR EINSTAKLINGANNA SJÁLFRA..
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.5.2008 | 19:40
beragerdi sydra
NÚ ER ÁSTANDI`ORDID TANNIG Á FRÚNNI AD HUN ER HÑTT AD SJA APPELSÍNUHUDINA, VÑNGINA A HANDLEGGJUNUM, AEDAHNUTANA Á FOTUNUM, EDA TANNIG, EIGINLEGA HAETT AD SJA HLUTINA I RÉTTU LJOSI, HELD ÉG, KOMIN MED EINHVERJA OSKAPLEGA TORF FYRIR AD KAUPA STUTTBUXUR, FARIN AD GANGA I ÍTROTTASKOM OG HALFSOKKUM JAFNVEL VID PILS.
sEMSAGT A GODRI LEID MED AD MISSA DOMGREINDINA A MJOG MARGA HLUTI, EN SVONA ER TETTA GOTT AD FARA I FRI, EN EKKERT ER AEGT AD FLYJA I INNRI MANNINUM, TAD ER ALLTAF MED I FARTESKINU, OG GOTT ADMAETA YMSU I ODRU UMHVERFI, TILDÑMIS A STR0NDINNI. sEM ER SVO NAUDSYNLEGT FYRIR KRABBANN.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)