HVERAGERDI SYDRA

   Tetta er afbragdsstadur,baerist varla blad a grein, eins og sagt var ljodinu goda, gott ef madurinn minn Fridbjorn song tad ekki hér í eina tíd med Karlakór Rvíkur.   Albir kemur mér talsvert ó óvart, hér má ekki byggja fleiri haedir er 6, og allt er óvenjulega hreint.

   Tad er mjog audvelt fyrir mig ad gera ekki neitt, akkurat ekki neitt, og gott ad fara á stad sem tennan tegar tannig stemning er í manni.  Nordmenn vinir okkar hafa byggt hér mjog mikid og eru margir.  Tad sagdi mér norsk stúlka ad hingad kaemu margir Nordmenn á veturna, okkur hjónum finnst tad soldid undarlegt. Og varu her lengi. Okkur hjonum finnst tad skrytid, tar sem fallegt er i Noregi a vetrum.   Hér er skítkalt á vetrum, og ekki mikid um menningu, nema vera skyldi í Benidorm, sem tñmist af solarfartegum.  Tar fimmfaldast mannfjoldinn á sumrin.  Vid skruppum tangad i straeto, og leid mer halfilla tar, eiginlega fannst mer tetta hraedileg ortrod og eg vildi ekki vera med born tar.

   Kvedja til teirra sem lesa.

   Kvedaja til tim Anna mín sem byrd í Drammen og tinna.


ENN ATHUGASEMD VIÐ HUGMYND BJÖRGÓLFS.

   Morgunblaðið hefur talað við hagfræðinga, sem meta hugmynd Börgólfs þannig  að útfæra þurfi hugmyndir um svokallaðan þjóðarsjóð áður en hægt er að taka afdráttarlausa afstöðu um ágæti hugmyndarinnar...(leturbr mín.),

   Ég hef áður skrifað færslu varðandi hugmynd Björgólfs, en er svosem ekki hissa á að hagfræðingar komi með skoðanir sem þessar, og allt í lagi með það, en afhverju hafa hagfræðingar ekki komið með athugasemdir sem gætu tildæmis eitthvað leyst í fjármálum landsins.

   Rætt er um að útfæra þurfi hugmyndina betur, til að segja til um ágæti hennar, og þar fram eftir götunum.

   Það er vitað mál, þetta gerist ekki á einum degi.   En afhverju grípum við ekki fegins hendi þessa hugmynd Björgólfs, og segjum bara " Takk fyrir Björgólfur", "það var mikið".

   Á að leggja þessa hugmynd til samþykkis nefndar, sem ekki hefur sagt neitt sérstaklega stórtækt undanfarin ár, alla vega hefi ég ekki orðið vör við það.

   Einhvernveginn finnst mér þetta hallærislegt, og sem fyrr eitthvað heimóttarlegt, að svara með þessu móti, eitthvað vandræðalegt, eins og "það er auðvelt að vera vitur eftir á......"

   Er viðskiptadeild háskólans svona lengi í kaffi eða hvað??????

   Það er semsagt ekki hægt að stofna svona sjóð "Í augnablikinu"...........

   Megum við vera að því að bíða?????, útfæra þarf hugmyndina strax.....

   Bendi á grein Bjarna Ólafssonar í Mbl. í dag. ágæt grein.


AÐ KOMA Á ÞJÓÐARSJÓÐI.

Bitastæð frétt í Mogganum í gær, frá Björgólfi. Það eru akkurat svona menn sem eiga að taka að sér fjármál landsins, og mér er búið að finnast það í mörg ár. Maður með gífurlega reynslu, minnisstæður mér frá Hafskipsmálinu svokallaða, og svo er ekki hægt að láta manninn hafa garðinn umhverfis Fríkirkjuveg 11. Ég skil það ekki alveg, nema vera skyldi vegna bílapláss sem hann mundi vanta, og hvað með það. Ef ég treysti einhverjum, þá treysti ég Björgúlfi til að gera það á þann smekklegasta hátt sem einstaklingur mundi gera.  Hann hefur sýnt það.

   Ég veit ekki til þess að nokkur hafi styrkt (sponsorað), verkefni af listrænum, menningarlegum toga eins og hann.  Okkur vantar viðskiptamenn í stjórnun fjármála landsins, með mikla reynslu, en ekki einhverja dillidanta sem hafa verið að vinna sig upp í hinar og þessar stöður, og þær eru margar stöðurnar, og margir, mjög margir sem hafa grætt einum of mikið, og þá ekki vegna sinna eigin verðleika, heldur tækifæra sem líkjast lottói, eða bingói.

   ÞJÓÐARSJÓÐUR er eina vitið, til að geta tekið þátt í viðskipti við umheiminn, og sjálfstæðri efnahagsstjórn, eins og Björgólfur segir.  En stóra málið með okkur hér, að við viljum alls ekki leggja fyrir, og gerum stórt grín að Norðmönnum fyrir að eyða ekki olíusjóðnum sínum.  Olíusjóður Norðmanna er þeirra þjóðarsjóður, eins og við vitum, ef við viljum bara horfast í augu við það að við erum ekki þau klárustu í heiminum.  Gríðarlegur fjöldi af Norðmönnum fer á eftirlaun eftir nokkur ár, þá verður að taka af olíusjóðnum, annars geta þeir ekki greitt þau eftirlaun sem búið er að semja um við launþega, þegar vinnu sleppir.   Norðmenn hafa hækkað stýrivexti sína, þó ekki sé það nema brot af okkar.  Við verðum hreinlega að eignast þjóðarsjóð, margt tekjuhátt fólk er víða vinnandi, og ég er stundum að hugsa, hvar ætlum við að taka eftirlaunin sem búið er að semja um.   Þar er víða misrétti.

   Ég vil:   ´BJÖRGÓLF GUÐMUNDSSON Í FJÁRMÁLARÁÐHERRAEMBÆTTIÐ, OG ÞAÐ STRAX....


KRISTJÁN 100 ÁRA

Gríðarleg stemning var í götunni í morgunn kl 1030, hluti af skólahljómsveit Kópavogs mætti í götuna til Kristjáns, sem býr "ská á móti" okkur hér.  Það var auðvitað Erla vinkona mín sem stóð fyrir að þetta yrði gert.   En það var fallegt að sjá þennan aldna mann, svona vel á sig kominn. En hann hugsar sjálfur um garðinn sinn, sem er einn snyrtilegasti garðurinn  í okkar götu, Hlégerðinu í Kópavogi.  Gatan hefur eiginlega alltaf verið kölluð fyrir ofan brekku og í brekku, eiginlega tvær götur í huga fólksins í götunni.  Bragi maður Erlu sagði nokkur orð.

   Undirrituð keypti ódýrar munnhörpur handa smáfólkinu sínu og kastaníettur, svo hægt væri að framleiða fleiri hljóð.  Vöfflur hjá okkur á eftir.  Eftir stækkun fjölskyldunnar (4 fluttu heim frá Portugal) hefi ég eiginlega ruglast eina ferðina enn á uppskriftarstærðum, en það er alveg að koma, ég hef gott af því að endurhugsa smáhluti í heilanum mínum.

  Eftir erilsaman vetur er gott að halda á suðlægari slóðir, og eiginlega óskaplegur luxus að geta veitt sér það.  Ég verð að segja eins og skáldið T.S. Elíot, (man ekki hvar, get þessvegna ekki tilvitnað), en hann sagði að apríl væri erfiðasti mánuðurinn í hans huga.  Ég tek undir það, en ég hélt að enginn hefði þessa hugsun.  Mér líður ekki vel þegar jörðin er ber, og köld, og hrjóstrug, eftir veturinn.  Þessvegna hefi ég valið þennan tíma mjög oft.

   Seinustu ár hef ég plantað út reiðannar ósköp af túlípönum, eitthvað minna setti ég niður í haust, en mér sýnist þetta vera að skila sér.  Þegar ég kem heim sé ég hvaða litir eru, og þeir gefa mér ómælda ánægju þar til annað lifnar við.

   Mæli með allskonar laukjurtum fyrir þá sem hafa hvorki garð né svalir, hafa nógu mikið t.d. af Amaryllis í pottum, helst fleiri en 3 potta.

   Túlípana í marga potta á svalirnar, þar sem eru svalir.

   100 túlípana þar sem er garður.

   Sumarkveðjur til allra, jafnvel þó rigning verði.   Nú er það bara álpappírinn í svefnherbergisgluggann fyrir okkur sem sofum ekki í sumarbirtunni, það dugar eiginlega ekkert annað, þó ekki sé það fallegt......


NEIKVÆÐAR UMRÆÐUR LEIÐA AF SÉR NEIKVÆÐA UMGENGNI

   Ég hefi verið svo ánægð með umræður þess eðlis að taka þurfi í gegn hús Laugavegarins, en ég hefi verið óanægð með þær aðfarir sem gerðar hafa verið að húsum og húsamálningu. Það hefur síðan bókstaflega verið ráðist á húsin með málningu, sem eiga ekkert skilt við Graffiti, heldur eru hrein skemmdarverk, Ég sá eitt hús á Hverfisgötunnii sem var alls ekki svona fyrir 3 vikum. Það eru allt fullt af óþverra þarna núna, og sér maður varla almennilegt graffiti, bará sóðaskap.

   Á Hliðarvegg blokkarinnar minnar í miðbænum, var reglulega falllegt graffiti, og ´égvar svo ánægð með það, eiginlega var það meiriháttar, en einn daginn var búið að mála yfir alltsaman hýlja þetta alveg, síðan kom annað og það er forljótt. En hið fyrra var svo þétt sprautað og ég upplifði það algert listaverk.   Borgin lét mig ekkert vita að þarna ætti að mála yfir, en ég vona að borgin máli yfir núna.....


SUMARDAGURINN FYRSTI.......

  • svei mér þá var ekki bara sumardagsfyrstaveður í dag, gott ef ég komst ekki í gríðarlegastemningu og stuð, lágskýjað, rok, og grámygluleg. Eins og svo oft er.Ég er alveg ákveðin að mæta kappklædd út og með fána og hitt og þetta, dugar ekkert annað en að leika leikritið, SUMARDAGURINN FYRSTI, ...
  • Ég rauk út í garð í dag með poka og réðist að skriðsóleynni sem virðist vera eina plantan sem fattar þessi tímamót, tók gamla stöngla sem óprýði er að  tók til að framan verðu. Jújú það eru að koma upp fjölær blóm, en ósköp er nú jörðin köld, einhvernveginn var þetta samt auðveldara þar sem ég gallaði mig í rauðan galla og hvít stígvéli, til að lífga upp á þetta litaleysi tilverunnar í dag.
  • Fór auðvitað á kaffihús og sat lengi eftir ósköpin,  En eitthvað lítur þetta nú betur út hjá með eftir moksturinn, og einhverjir túlípanar kíkja nú bjartsýnir upp, það er gott, en eru samt gamlir laukar svo ekki er víst með blómstrunina.
  • Horfi útum gluggann....... jú það sést soldill munur, sem betur fer og nokkrir pokar eru komnir.
  • Best finnst mér þó að geta flúið landið mitt á þessum árstíma, til að upplifa hita, svo ég dríf mig bara til Spánar um helgina, svona aðeins á meðan gróðurinn er að taka sig það er svo erfitt að bíða eftir honum.
  • Hann er allavega kominn þar, og ég get prominerað strandveginn, og kannske gengið í fjöruborðinu, og hlustað á öldurnar þar, sem eru mér mikils virði, að finna þær brjótast á löppunum mínum, og þá fæ ég sand milli tánna, þetta er einhver fílingur sem hentar mér.

VOR

   AMMA, ÉG FANN GRAS Í HÚFUNNI MINNI,

   ÞAÐ ER KOMIÐ VOR.


ERU STJÓRNMÁLAMENN LAGÐIR Í EINELTI ?

   Já, ég held það. Það er krökkt af einstaklingum sem bókstaflega nærast á því að taka fyrir, einn og einn stjórnmálamann, konur sem karlar. Einkennilegt að sjá ekki í gegnum það, að þarf fleiri en einn til að mynda eitthvað tiltekið ástand.  Það þarf einnig oft einhverja viðburði utan Íslands til að setja af stað ferli sem óhagstætt er almennum borgara.  Við gleymum svo oft að líta á okkur sem hlekk í keðju, þegar ílla árar.  Þegar aftur á móti vel árar, er auðvitað allt okkur að þakka.

   Er þetta ekki einhver heimóttarskapur smáþjóðar, sem gæti svo hæglega verið stærri um sig innan heimsins, ef hún vill?  Ætlum við aldrei að vaxa uppúr þessum ósköpum?, eða látum við svona vegna þess að við erum eyþjóð? Ég vil ekki trúa því að það séu einhverjir hálfvitar við stjórnvölinn, það er bara ekki rétt.   Það er nú einnig að einhver sterkur þarf að taka á sig skellinn, hver sem sá skellur er, og þá reynir á greind og þor einstaklingsins.

   Við erum óvart með alþingi, ég er alltaf soldið efins um að þeir vinni vinnuna sína, hvorki heima né niðri í þinghúsi.  ´´A dimmum vetrum, fer ég oft inná þingið í sjónvarpinu, og blöskrar mér mætingin þar oft á tíðum, sem getur varla skilað miklu.  Húmorsansinn er oft ansi tæpur, svona heimóttarlegur, hvíslast á eins og smákrakkar, þannig að ég fæ á tilfinninguna að þeir séu frekar ábyrgðarlausir, allavega flækist ekki ábyrgðartilfinningin fyrir þeim sýnist mér.

   Oft finnst mér þingmenn mælskir, það vantar ekki, en er nóg að vera mælskur?

   Það er agaleysi í þinghúsinu, sem þingmenn læra þegar inn er komið hversu góðir sem þeir eru áður en að þingsetu kemur. Það er einhver "blessaður karlinn minn" stíll í þinghúsinu.............


AÐ LÆRA TIL RÁÐHERRA, OG ANNARRA ÁBYRGÐAREMBÆTTA

   ÞAÐ MÁ SEGJA AÐ STJÓRNMÁLAMENN VINNI SIG UPP Í AÐ VERÐA Í STÆRSTU EMBÆTTUM LANDSINS, VINNI SIG UPP Í PÓLÍTÍK. ÞAÐ ER VINNULAG SEM VIÐ BÚUM VIÐ, EKKERT FLÓKNARA EN ÞAÐ.  TÖLUVERT LANGT ER SÍÐAN ÞAR SEM MÉR FANNST ÞETTA EKKI VERA RÉTT, OG ER ÞÁTTUR Í MÍNUM PÓLITÍSKU VONBRIGÐUM, SEM YFIR MIG KOMA.  EFTIR KOSNINGAR, ERU ÞESSIR ÓSKAPLEGU SÁTTAFUNDIR SEM ENDA MEÐ FAÐMLÖGUM OG KOSSUM ALA RÚSSÍA, Á DÖGUM STALINS.   LIGGUR ÞÁ VIÐ AÐ KRINGUMSTÆÐUR SÉU AFAR HLÆGILEGAR. EN ÞAÐ GENGUR YFIR EINS OG ANNAÐ. SÍÐAN ER ÞETTA VINNA Á LEIÐ UPP Í SÆTI, SEM TAKA MISMUNDANDI LANGAN TÍMA, OG MISMUNANDI HEIÐARLEGAN, OG MISMUNANDI ER ÁNÆGJA KJÓSENDA.  VIÐ HÖFUM SEM BETUR FER OFT VERIÐ HEPPIN, OG MARGIR VENJAST, OG VIÐ REYNUM AÐ FYLGJAST MEÐ GANGI OG STARFSAÐFERÐUM OG STEFNUM, T.D. RÁÐHERRA OG ÆÐSTU STJÓRNENDA.

   EN ÉG VIL OG ÞAÐ ERU 5 ÁR SÍÐAN AÐ ÉG  FÓR AÐ SPEKULERA "HVAÐA MENNTUN VILJUM VIÐ AÐ HEILBRIGÐISRÁÐHERRANN HAFI"? TIL DÆMIS.

   HVAÐA MENNTUN VILJUM VIÐ AÐ UMHVERFISRÁÐHERRA HAFI?  OG ÞAR FRAM EFTIR GÖTUNUM.

   NÚ Á DÖGUM ERU MJÖG MARGIR EINSTAKLINGAR ÞJÓÐARINNAR Í NÁMI, TIL MEISTARA OG DOKTORSGRÁÐU Í ÝMSUM GREINUM, ER ÞAÐ TRÚLEGT AÐ ENGINN ÞAR HAFI ÁHUGA Á PÓLITÍK??   NEI ÞAÐ ER EKKERT TRÚLEGT, ÞETTA ERU EINSTAKLINGAR MEÐ MIKLAR SKOÐANIR, OG RÉTTLÆTISHUGSJÓNIR SEM VÆRI SVO GOTT AÐ NÝTA INNI Á ÞINGI.

   HVAÐA NÁM VILJUM VIÐ AÐ SEÐLABANKASTJÓRI HAFI? ( ÉG ER EKKI AÐ FINNA AÐ DAVÍÐ, HANN ER MINN MAÐUR), EN VERÐUM VIÐ EKKI AÐ HAFA ÞAR HAGFRÆÐING Í FRAMTÍÐINNI, SEM ER MEÐ MEÐ MASTERSNÁM EÐA DOKTORS NÁM Í VIÐKIPTAFRÆÐI EINNIG.

   VIÐ VILJUM EINNI SAMSKIPTAHÆFILEIKA TIL DÆMIS Á ALÞINGI, VIÐ VILJUM SIÐMENNTAÐRI HEIM ÞAR, VIÐ VILJUM EKKI AÐ VERIÐ SÉ AÐ BJÓÐA OKKUR EITTHVAÐ SVÍNARÍ Í KOSNINGUM, ( ÉG NEFNI EKKI NEITT SÉRSTAKT.) VIÐ VILJUM HEIÐARLEIKA ALLAVEGA.

   KOSNINGABARÁTTA OKKAR ER SÉRSTÖK EINS OG ANNARRA, EN Í MÍNU BRJÓSTI BLUNDAR ALLTAF SÚ VON AÐ VERA ÞJÓÐ TIL FYRIRMYNDAR ÖÐRUM, ÞAR SEM VIÐ ERUM FRIÐSÆL Í EÐLI OKKAR, OG EIGUM AÐ STÍGA FRAM SEM SÉRSTAKIR MÁLSVARA FRIÐAR,  ARFLEIFÐINN ER ÞANNIG.

   ÞESSI SÉRSTAKA KOSNINGABARÁTTA OKKAR LÍKIST FÓTBOLTAKEPPNI ÞAR SEM KJÓSENDUR HALDA ANNAÐ HVORT MEÐ EÐA ERU Á MÓTI, OG ÞÁ ALLT LÍFIÐ. ÞETTA GERIST Í KOSNINGABARÁTTUNNI, OG AUÐVITAÐ VERÐUM VIÐ SIGURGLÖÐ ÞEGAR UPPÁHÖLDIN SIGRA.  EN ÉG VIL EITTHVAÐ ANNAÐ Í ÞJÓÐMÁLUNUM, EINHVERN MEIRI STÍL


ÞORGERÐUR KATRÍN..........................KONA SEM KANN!!!

   Að koma orðum að hlutunum. Ég sé hana alltaf fyrir mér sem forseta, það yrði okkur til mikils láns, að standa saman um hana ef hún færi í framboð í framtíðinni. Þorgerður færir að mínu mati sterk rök fyrir því að skreppta til Kína, og það er fínt að vita af henni þarna. Það eru ekki margir ráðherrarnir sem tala venjulega íslensku, þegar á þarf að halda. SUS kemur þetta bara ekkert við, það er slæmt finnst mér ef ungliðahreyfing er að gefa einhverjar yfirlýsingar um svona mál.

   Það er, eins og Þorgerður Katrín segir "Mikilvægt að alþjóðaólympiunefndin geti staðið í lappirnar gagnvart kröfum stjórnvalda, kínverskra sem annarra", og talar um árangursleysi sniðgengni, eins og gert var í Moskvu 1980, og dró dilk á eftir sér eins og vitað er.

   Ég treysti því að Þorgerður fordæmi mannréttindabrot Kínverja, hún þarf ekki að sniðganga opnunina, þó hún geri sér önnur mál fyllilega ljós.

   Flott manneskja hún Þorgerður Katrín.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband