Færsluflokkur: Lífstíll
26.9.2007 | 11:16
ÍSLENZKAN Í SINNI EINFÖLDU MYND
HAUSTMORGUNN Í VESTURBÆNUM, SKÁLDIÐ FIMM ÁRA.
Sérðu
hvað trén eru tómleg.
Jóh. Hjálmarsson 1978
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2007 | 10:52
Nýbúinn og Íslenskan.
Sem betur fer er umræðan um Ástkæra ylhýra málið mikil á blogginu. Ómar skrifar langar athugasemdir á blogginu sínu, og er síðast í gær með alveg einstaklega góðar skilgreiningar.
Sem nýbúa-amma, er ég soldið dolfallin yfir því álagi sem þetta er fyrir þau að fara í gegnum, og þetta gerist ekki fyrirhafnarlaust. Við erum öll að reyna leggjast á eitt með að leiðrétta þau og er það heilmikið fyrir þau að fá þessar endalausu leiðréttingar.
Baldvin Þór sem er 4ra ára sonarsonur, er aftur á móti ekki nýbúi, en er alveg ákveðinn í að læra að lesa, hann er að mínu mati, "óskaplega skemmtilegur", og er núna að lesa fyrir foreldra sína á kvöldin. ´´Eg er ekki viss um að ég hefði haft þá þolinmæði, en hann er mjög vandvirkur í lestri sínum og er mikið í mun að vera með áhersluríkan framburð... Ég hlakka til að heyra í honum, og held að gott væri fyrir nýbúana mína að hlusta á hann.
Í gærkvöldi fór ég yfir Guðspjöll s.l. Sunnudags, og ætlaði pæla í hveð Vilhelm þyrfti að fara í gegnum í Hallgrímskirkjunni, þau voru með eindæmum þung, og ég fór að spekulera í hvernig presturinn mundi fara í gegnum þetta með krökkunum. Ég hugsa ennfremur um hvað það er mikið sem er tyrfið, í Íslenskunni. Mér dettur í hug hvort ekki sé tímabært að huga að t.d. Íslenskukennslunni, allsstaðar, í Sunnudagaskólanum, í fermingarundirbúningnum, í skólanum og allsstaðar, líka í fótboltanum. Við erum öll ábyrg, og umfram allt að vera almennileg við fólkið sem vinnur hér og þar, pirringur gagnvart þeim er slæmur gjörningur.
Jóhanna Dís, heldur áfram að læra um hvað er brum, ljóstillífun, súrefnisefnaskipti, og koltvísýringur, það er ekkert smávegis að takast á við. Veit 9 ára barn hvað súrefnisefnaskipti eru.
Það er bara ekkert ólíkt orðinu Þjóðræknisflokkur sem til var upp úr aldamótunum, ekki seinustu heldur næstseinustu............
Nauðsynlegt er að vita hvað súrefnisefnaskipti eru, en mér persónulega kemur ekkert við hvað var þjóðræknisflokkur, hvað þá 14 ára unglingi......
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.9.2007 | 19:46
FYRRVERANDI SPAUGSTOFA.
Ég gaf mig á laugardagskvöldið, ég hafði ætlað mér að vera í fýlu í vetur vegna uppstokkunar vina minna spaugstofumanna. En eitthvað voru þeir máttlausir mennirnir þrír, það vantaði eitthvað upp á stemninguna hjá þeim sjálfum. Þeir voru Randverslausir, það var ekki hjá því komist að sjá það.
Ég vona bara að þeir komist í gegnum þessa kreppu sem þeir eru í. Þetta er svo áberandi, blátt áfram pínlegt. Sigurður Sigurjónsson komst klakklaust frá þessu, fannst mér, blessaður karlinn, hann heldur greinilega utanum þetta allavega í útsendingu.
Ég sakna rónanna á Arnarhóli......, Arnarhóll er ekki svipur hjá sjón, eftir að þetta var kllippt út, Ingólfur Arnarson ósköp einmana þarna á hólnum, en svona er þetta samt........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.9.2007 | 22:59
Nýbúi
Það er örugglega ekki það einfaldasta að vera nýbúi á landinu okkar. Ég fer að trúa því að tungumálið okkar sé eitt af því fallegasta á jörðunni. Margir hafa haldið því fram, ég hefi reynt að vera sveigjanleg í þessu, þar sem ég veit ekkert um austurheiminn. Kínverska hlýtur að vera falleg ef maður er svo lánsamur að skilja ritmálið þar. En latneskur drengur, sem fer í skyndipróf í samfélagsfræði, og á að skýra mun á "þjóðræknisflokki og heimastjórnarflokki", hvernig getur hann það? Mér varð ekki um sel, þegar ég las þetta ég verð að segja "torf".
Þessi samsettu íslenzku orð eru útaf fyrir sig afar falleg, þegar betur er að gáð, en ég er ekki viss um að þetta sé til í latnesku máli, en mun athuga það, en falleg orð eru þetta það vantar ekki, en kannske er það ekki nóg, ef við viljum áfram halda íslenzkunni að nýbúum. Einhverntíma hefði það þótt gott að hafa orðaskýringar með þessu, eða bara einfalda glósubók. En það sem var einhverntíma er ekki núna..........En alla vega er tungumálið flókið. T.d. er orðið "ljóstillífun" orð sem 10 stelpan mín var að skrifa, en flóknara var að skilja þetta orð, sem komið er úr nokkrum orðum, þar hefði þurft glósur...En baráttan heldur áfram.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2007 | 01:13
MARTA MARTA ÞÚ MÆÐIST Í MÖRGU...
þap soldið skemmtilegur sunnudagurinn hjá mér, nú var Vilhelm Þór við sína fyrstu messu á Sunnudaginn, ég hafði sem fyrr mæðst í mörgu, og fannst þetta engan enda taka. Fjölskyldumynstrið heldur betur að breytast, en guðspjall dagsins var Lúkas 10.38-41.
Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkuð og kona að nafni Marta bauð hon um heim. Hún átti systur er María hét, og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. En Marta lagði allan hugá að veita sem mesta þjónustu. Og .hún gekk til hans og mælti: ;Herra hirðir þú eigi um það, að systir mín lætur mig eina þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér."
En Drottinn svaraði henni: Marta, Marta þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu, en eitt er nauðsynlegt María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki af henni tekið.
EN erum við ekki margar Mörturnar, sem gefum okkur ekki nægar friðarstundi, einverustundir til að hlúa að hugðarefnum
Erum við ekki líka margar Mörturnar sem erum svo oft að bjarga einhverju finnst okkur og redda og stjórna. Ég er mjög viss um það. Og við Mörturnar erum svo flottar líka, og alveg eins guði þóknanlegar ég er alveg viss um það. Ég ætla að taka mér frí frá Mörtusyndrominu í nokkra daga, Fá hana litlu Sólveigu mína sem vil að ég sé bara með henni í afslappelsi hér heima að horfa á barnaefni fyrir 3ja ára börn. Kannske hrærir hún í ommelettu sem ég brasa, en hún er nýbúin að læra að hræra omelettu á leikskólanum. Svo fær hún líka súkkulaðikúlur örugglega Þe Kókopuffsið, sem foreldrum hennar finnst óhollt, en ég segi að megi koma í stað súkkulaðis eða annars narts. Hún gæti viljað fara sópa pallinn, og drífa sig í eitthvað annað, og þetta er svo gott afslappelsi svo gæti hún viljað að fara kúra og kela yfir þessari dýrð með ömmu í að gera ekki neitt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2007 | 22:32
SALTFISKUR ALA GÚSTI
Saltfiskur, útvatnaður, með beini.
Rasp.
Olía eftir smekk.
Lárviðarlauf mulin.
Nokkrir tómatar, og laukur smátt skorinn.
Litlar kartöflur skornar í fernt eða sneiddar., settar á milli fiskstykkjanna, lítið salt og vel af pipar..
1 peli rjómi til tveir, fer eftir magni fisks og stærð forms, og pláss sem eftir er í formi......
Pipar, salt, olívur eftir smekk (mér finnst gott að hafa mikið af olívum)
Viský, sem er mjög nauðsynlegt, ekki er hægt að nota annað vín finnst mér, ég hefi stundum reynt að nota annað, þegar viský, er ekki til, en þá klikkar þetta. 175 m
Fat smurt m.olíunni, laukurinn settur í botninn (eða púrra ekki verra). Fiskinum velt upp úr raspinu
og lagður ofan á. Inná milli fiskst .er kartöflunum raðað og tómötum ennfremur lárviðarlaufinu, helst ekki að láta það standa uppúr, það hitnar of mikið,. Ofan á eru settar olívur, síðan rjóminn.
Sett inní ofn ég man ekki í hvað langan tíma, en að lokum er viskíinu slett útí, og haft inni í 7 mínutur. Þetta er frekar vinsælt. En með þessu er best að drekka rauðvín, allsekki hvítvín það passar ekki. Ef ekki rauðvín verður bara hver og einn að hlusta á sína bragðlauka, eitthvað gos, mér dettur bara í hug Pepsy Max, með klaka útí, það er líka ágætt, þegar útí það er farið..
Grænsalat með sem er með osti í. Pipar og salt á borði, ekkert gott að nota annað krydd,mér finnst best að nota spinat í salatið, er bragðgott með þessu, passar vel.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2007 | 20:59
SAMSTILLT ÁTAK GEGN ÁSTANDINU, HÚRRA FYRIR BORGARSTJÓRA
þetta var nú aldeilis skemmtilegt að sjá, ekki lítil viðbót við nýja kvosarskipulagið, þetta er almennilegt, og sé ég ekki betur en að við ætlum að verða á undan Norðmönnum með átak í miðbæjarmálum. Vilhjálmur nefnir óásættanlegt ástand, þetta er fínt að þora að nefna þetta, það sem hann nefnir er tæpitungulaust. Vilhjálmur segir borgaryfirvöld gegna lykilhlutverki í verkefnum sem þessum, hann er að taka á sig heilmikla ábyrgð í orði. Er tilbúinn að kaupa fleiri myndavélar, og hefur fjölgað löggæslu. Við sem talin eru vera næstbesta samfélag í heiminum, erum bara mjög flott.
Eitt sem er eftirtektarvert að mínu mati er hugmyndin að kalla fleiri til ábyrgðar t.d. rekstraraðila, íbúa, og þjónustustofnanir í miðborginni.
Það var ánægjulegt að opna Moggann í kvöld.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.9.2007 | 17:25
RANDVER
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2007 | 17:16
OF STÓR SKAMMTUR........
Madeleine-málið er að verða mjög átakanlegt og stórt um sig. Ég verð að segja það að ég er mjög óánægð með hvernig íslenskir fjölmiðlar fjalla um þetta mál, í rauninni alltof lítið, núna þessa dagana. Ég er nýkomin frá Noregi þar sem mjög ýtarlega er fjallað um þetta, ekki daglega en þegar það er þá er það skv. nýjustu heimildum. Aftenblaðið norska er með mjög stóra grein, þar sem rök beggja landa fá jafnstórt rými í blaðinu, sitthverja síðuna, samtals ein opna á besta stað í blaðinu. Þjóðirnar nota aðferðafræði síns eigin lands, sem er skiljanlegt og eru þjóðirnar mjög ólíkar. Vitað er að Bretar eru harðir í horn að taka, þeir eru alltaf með stórveldisattitudið, það er ljóst, og Portugalar oft í vörn þegar um Breta er að ræða, þar sem þeir eiga stóran hluta í Algarve, og einhver andleg togstreita er milli þessara landa.
Ljóst er að þessi tvö lönd áttu strax að vinna saman að þessari rannsókn, en ekki í sitthvoru lagi. Ég skil ekki vegna hvers hjónin voru ekki strax sett í stöðu grunaðra einstaklinga, nema vera skyldi vegna hjartagæsku Portugala, sem er mér kunnug. Með öllu er óskiljanlegt vegna hvers tvíburarnir vöknuðu ekki við skarkala lögreglunnar þegar hún var kölluð til vettvangs, þeir hafa örugglega ekki farið mjög hljóðlega, sem mér er einnig kunnugt, það heyrist vanalega í þeim. Fram kemur í Aftenbladet að Móðirin hafi hringt strax í fréttastofuna bresku, áður en hún hringir til lögreglu staðarins. Það kann að vera að hún hafi ekki treyst þeim... en það er ekki mitt að spekulera í, en það er alveg vita ómögulegt ef heimsfréttir eins og þessari eru ekki gerð meiri skil. Okkur kemur þetta við. Það fór það mikið í gang í fyrstu, með söfnunina hér og þar, og framhaldið verður að vera eftir því. Dagblöðum ber skylda til þess.........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2007 | 18:26
Miðbærinn
Stórkostleg tillaga sem lögð er fram varðandi Kvosina. Hurra
Reiser til Oslo i morgen, det vil blive kæmpegodt, at se min familie dere. Blir pa Karl Johan pa tirsdag, og vil være der omkring 1700, fordi pa den tid samles narkomanern dere og det er fredsomlgt det hele der.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)