21.5.2008 | 14:17
SÓLARFERÐUM AFLÝST......
Það hefur vonandi ekki farið fram hjá þeim farþegum sem fluttir hafa verið frá sólarlöndum hvers lags reiðileysi er í gangi í ég vil segja GRIPAFLUTNINGUM flugfélagana undanfarið. Ekki hefði ég viljað vera flugþjónn þegar ég kom með, einmitt svona reddingarsameiningu sem þá var. Sæti biluð í vélinni, alltof þröngt, flugvél ekki traustvekjandi, erlendur flugmaður, Ok með það, þannig lagað, allavega er það ekki vegna rasisma sem ég nefni það. Flugþjónum boðið uppá allt. Þrír í stað fjögurra í yfirpakkaðri vél. Undirrituð fór á snyrtinguna, og voru úrvinda hjón með ca. þriggja ára barn sitt, móðirin barnshafandi, og sváfu þau öll þrju þar á gólfi. Mér brá hastarlega, og fór í viðbragðsgírinn gamla, að ekki væri stætt á því að leggja sig. Hjón fyrir framan mig, á koníakstúr, jafngömul mér, spennan með eindæmum í vélinni, en það veit sá sem allt veit, að ég hafði samúð með flugþjónum, og farþegum var þetta ekki bjóðandi. Erum við að bíða eftir því að eitthvað alvarlegt gerist????????
Sólarferðum aflýst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.