MINNISVARÐI

Adam og Eva á bökkum Akerselva í OsloAdam og Eva, á bökkum Akersár í Noregi.

MISMUNANDI MINNISVARÐAR

P1010037Minnisvarði í Suður Noregi, athyglisverð túlkun, ég minnist ekki að hafa séð hér neinn minnisvarða þessum líkan, um verk kvenna, í gegnum aldirnar.  Við Íslendingar eigum það til að vera óraunsæ, Oft erum við svo upphafin eitthvað..IMG 3623Þessi er frá Portugal, falleg ég þarf að athuga hvað þetta er, en gæti verið óður til tónlistarinnar.IMG 3615 Frá Portugal, þarfnast ekki skýringa.

Fólk víða að.

IMG 9415IMG 3653  Á meðan Anna málar bílskúrinn sinn í Drammen, Noregi bláan, er Jóhanna að borða bláan ís í Portugal, og Vilhelm að fíflast með Antonío Anica fóstra Gullu í Leiria, Portugal.IMG 3765

Í PORTUGAL

IMG 3694    Á sama tíma, voru þau Jóhanna og Vilhelm, með föður sínum í Portugal, að kíkja á ættingja sína þar.IMG 3586Jóhanna syndur eins og selur.IMG 3592Þau systkin, með Joao Marío, og cotton candy  Og Villi hér, með nýju sólgleraugun sín, og candyfloss

HLAUPABÓLA

Salvör Sesselja brá útaf venjulegri hegðun, og fór að verða ergileg og lystarlaus. Skýringin var hlaupabóla sem út kom um allan skrokk.sumar08 531sumar08 598Hún var fljót að hrista af sér slénið, og brá á það ráð að setja upp þetta svitaband sem hún hirti upp einhversstaðar í íbúðinni. Við héldum henni inni í nokkra daga, en dvöldum úti á svölum í mátulegum hita, með þokuslæðingi, og var alltaf sami krafturinn í henni.sumar08 639sumar08 586Við ýmiskonar tiltektir, hér og þar.

AFMÆLI ....

sumar08 556sumar08 562Og ég átti afmæli þarna 15. júlí, var mikið tilstand á mér og Sólveigu Önnu, það var mikið mál að kaupa réttar serviettur, kökur og ístertu. Pabbi eldaði svo kvöldmatinn, og fengu þær systur mais, sem ógrynni er til á Canarieyjum, þar sem þeir rækta hann mikið.sumar08 561sumar08 560Salvör var bara státin, en eitthvað smástúrin þegar líða tók á kvöldið.sumar08 564um kvöldið lukum við svo við afmælistertuna. Salvör sofnuð, var eitthvað slöpp, en Sólveigu tókst að klára Mikka Mús af marsipaninu. Það hafði verið takmarkið hjá henni.

MYNDLIST

sumar08 646sumar08 648sumar08 648sumar08 536skoðuðum styttur

ÁFRAM VEGINN

sumar08 567sumar08 568sumar08 520Skoðuðum mikið af fallegum, gömlum húsum, sem var búið að gera gífurlega falleg.

PISTILL ÓLAFAR NORDAL 31.JÚLÍ Í MBL.

   Ég fletti auðvitað í gegnum öll dagblöðin eftir fríið mitt, og rakst meðal annars á þennan ágæta pistil Ólafar.  Ég varð kát að sjá að kornung manneskja skyldi velta málefnum eldri borgara fyrir sér.  Ólöf nefnir meðal annars að fólki finnist miserfitt að eldast, og skv. minni reynslu úr starfi mínu, eru það svo sannarlega orð að sönnu. Og sagt er að það fyrst reyni á manninn, þegar að því kemur.  Ég er sammála Ólöfu um að allir vilji væntanlega eiga áhyggjulausa daga, en einhvernveginn held ég að það sé hreinlega ekki hægt að eiga áhyggjulausa daga þannig lagað.  Eru ekki smááhyggjur merki um lifandi manneskju??, og er það ekki hinn venjulegi einstaklingur sem ber slíkar tilfinningar innra með sér??

   Ólöf bendir á að maður á áttræðisaldri sé í forsetaframboði í USA, og ég held að brýna verði fyrir Íslendingum, að það er ekkert samasemmerki á milli eldri borgara og hálfvita.  En ég verð að opinbera það hér, að stundum finnst mér framkoma við okkur, vera stundum í þeim dúr, þegar ég þarf að þiggja afgreiðslu og þjónustu hér og þar. Unglingadýrkunin hefur verið mögnuð, alveg ótrúlega, og það er vel skiljanlegt, þannig verður það.

   Ólöf talar um að við séum eitt mikilvægasta pólitíska verkefni nútimans, og að reynt hafi verið að byggja upp velferðarkerfi, og reynt hafi verið að auðvelda okkur að halda áfram á vinnumarkaði áfram.   Já við erum svo sannarlega pólitískt verkefni nútímans, og langar mig að vitna í grein Björgvins Sigurðssonar þann 14.júlí, þar sem hann talar um hið pólítíska loforð Samfylkingarinnar, þegar hún lofaði okkur 226.000 pr. mánuð í áföngum.   Hvar eru þessar hækkanir? Eru ekki margir aldraðir og öryrkjar sem rétt hanga í 100.000 ? og eru ekki margir aldraðir og öryrkjar sem nú fá seðil frá Tryggingarstofnun þar sem einstklingar eru hreinlega beðnir um að skila, svona eins og nokkrum tugum þúsunda?   Og varð ekki einhverjum öldruðum á að næla sér í einhverja aura, sem nú vinsamlegast hann er beðinn um að skila einnig, fyrir og utan ef einhverjum hefur tekist að vera með smá sjálfsbjargarviðleitni, þá er hann kyrfilega skammaður af almannatryggingakerfinu. Björgvin hefur þá skoðun að Samfylkingin eigi að slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn, þar sem þetta loforð hefur engann veginn verið efnt. Það hafa engar hækkanir að viti  orðið, allavega ekki sem pólitískt loforð, það er þannig því miður. Það er ótrúlegur bútasaumsruglingur á almenna kerfinu. Og það er almanna tryggingarkerfið sem er að bæla eldri borgara niður, ég vildi óska að eldri borgarar væru ekki bara pólitískt verkefni, nokkurs konar punt frambjóðenda í kosningum, heldur værum við  STERKT PÓLITÍSKT AFL...... ÁFRAM ELDRI BORGARAR..........


FORRÉTTINDI FRÚAR

sumar08 602Við fundum garðinn, og við fundum auðvitað róló.sumar08 539sumar08 502

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband