Viðburður í Gamla Bíói, á Sunnudagskvöldið.

   Það er eins með sönglistina og leiklistina, að erfitt er að lýsa hughrifum augnabliksins, en ég held að enginn hafi gengið úr þessu húsi samur og inn.  Þannig var það.  Við eigum gífurlega góða tónlistarmenn, og þessi sýning var afburðagóð.  Allt svo samstillt, og listrænt.  Það vill ansi oft gleymast að upplýsa okkur um þá tónlistarmenn sem starfa erlendis, eiginlega alveg ótækt að ekki eru fréttir endrum og sinnum af þeim listviðburðum sem þeir eru að taka þátt í.   Mig langar að nefna til dæmis Tómas Tómasson, sem þarna söng stórt hlutverk.   Ég minnist þess ekki að um hann hafi verið fjallað í blaði hér, en svo kann samt að vera, ég missi oft af ýmsu, en það má geta þess hér að blaðið OPERA sem kemur út mánaðarlega í Evrópu, og er nánast fjallað um allar óperur sem einhver metnaður er í og auðvitað mest frá stóru húsunum.

   Við höfum lesið um Tómas í þessu riti, og það góða umsögn.  Að fá tækifæri til að heyra Kristján Jóhannsson og sjá, er tækifæri sem ekki alltaf gefst og það í svona mikilvægu hlutverki, og dramatisku.  Það gleymist aldrei.  Maður fyllist einhverri einskærri lotningu fyrir svona túlkun, og spyr sig "Er þetta hægt???"

   Já það var nefnilega það, þetta var hægt, og það söng í eyrunum á mér allan mánudaginn.

   Að komast á svona einhverskonar upphafningarstig,er gott öllum, þegar það gerist, er um afburðafólk að ræða, því tekst eitthvað sem er óútskýranlegt.Því tekst að róta upp í tilfinningum mannsins.

   Þau voru öll góð, en ég nefni aðeins þessa tvo.


AMMA ER HANN AFI HEIMA????

AMMA, ER HANN AFI HEIMA?  spurði Baldvin í símann í gær, ég þarf nefnilega að segja honum brandara.  Bara ekkert annað sagði amma, sem var minnug þess að pabbi hans var mjög fljótur að tileinka sér hina alkunnu Hafnarfjarðabrandarabók.

   "Afi ég þarf að segja þér brandara"

   "Nú, hvernig er hann?"

   "Kennarinn spyr, hvaða spendýr er það sem er alveg tannlaust?"

   "Er eitthvað spendýr sem er svoleiðis?" sagði afi.

    "Já það er langamma".....

    Og var það þetta sem þú varst að læra í leikskólanum í dag.  Þetta er nú meiri munurinn að vera í svona skóla, ég hélt að þú værir komin í trölladeild, og maður væri að læra að lesa og svoleiðis, sagði afi.   En Baldvin var alveg gáttaður á afa sínum, sem var með svona asnalegar athugasemdir, AFI,   ÉG ER AÐ LESA BRANDARABÓKINA.............................

   Baldvin Þór er nýlega 5 ára.2007 Island011


Sendiherra í Noregi..

sumar08 1106   Messa var í kirkju Íslendinga í Osló, og bauð söfnuðurinn Sigríði Dúnu velkomna til sendiherrastarfa sinna þar.  Sigríður Dúna er þarna við ræðupúlt, og Arna prestur stendur við hlið hennar og blessaði hennar komandi störf.

   Öflugt starf er í Íslendingarfélaginu þar og fannst mér Íslendingar þó nokkuð áhyggjufullir vegna ástandsins heima.

   Ennfremur er öflugur kór, sem æfir amk einu sinni í viku, og æfir nú stíft fyrir aðventmessurnar sínar.

   Sigríður Dúna er góður fulltrúi Íslendinga hvar sem er, og er hún ein af þeim sem ég hefði viljað sjá í Forsetaembætti okkar.  Hún gæti orðið næst. Diplomat fram í fingurgóma.sumar08 1103                                                        

 

 

Selma og afi í andyri kirkjunnar.


MEIRI MENNING........

í forsal óperuhúss óslóaroslokaffiteria óperuhússinsvið auðvitað fengum okkur súpu eftir þessa löngu sýningu, þó að norska krónan stæði í 20 kr íslenskum, en við höfðum verið nægjusöm, vorum tildæmis í stæði, þessa löngu sýningu, en gekk bara vel, það var hægt að hreyfa sig það mikið.osloþessi mynd sýnir enn eitt verk Ólafs Elíassonar, þetta er einhverskonar textil og ljósið kemur í gegn. Viðburður að sjá það.

FRÍTT Á SINFONÍUTÓNLEIKA Í KVÖLD OG Á MORGUNN........

sumar08 1174Hérna erum við mæðgur í Norsku óperunni. Ekkert jafnast á við að njóta menningarinnar þegar hart er í ári, og dáðst að þrekvirkjum mannsandans, eins og þessu húsi,það má ekki gerast hjá okkur að bygging tónlistarhúss stöðvist, og standi hálfkarað. Vonandi kemur aldrei til þess.sumar08 1163

SAMSTADA........

   Tad er alveg serstakt hversu mikla samabyrgd Nordmenn syna okkur. Frettaflutningur med eindømum godur, tad hefur svosem alltaf verid, teir eru godir fagmenn i hverju sem er,eg er mjog hrifin af tessu tjodfelagi.  Einn radherrann fjalladi um studning a medal annars teim forsendum ad Islendingar hefdu somu rætur og Nordmenn. Nuna er Nordm0nnum alls ekki sama hvernig fer hja okkur.

   Sjalf hef eg skammast min fyrir okkur, eg hef svosem ekki gengid med veggjum, en eg hef ekki reynt ad tala norsku, og tadan af sidur ensku, eg hef bara dregid mina gomlu donsku upp ur handradanum, og gengid flydende godt, tar sem neydin skerpir mann, tad er svosem ekki erfitt fyrir mit tar sem eg er 15% dani, en svona er tad. En her tarf lika ad spara, en Nordmenn kunna tad, og ad gera grin ad radvendni, hefur verid soldid i kjaftinum i okkur, svo liklegast verdum vid ad fara ad læra af Dønum og Nordmønnum nuna.

   Stolt okkar Islendinga er eiginlega of mikid og eg hef verid ad spekulera i hvort til se syndrom, eda heilkenni i okkur Islendingum, og vil eg nefna tad "Haralds harfagra heilkennid", eg held tad bara ad tad se enn i tjodinni.

   300.000 manna tjod getur ekki haft altjodlega fjarmalapolitik, vid turfum adstod, ekki bara peninga, heldur tarf ad styra tessu einnig ad utan. Ad hegda okkur eins og stortjod gengur ekki lengur, .......................

   'I Sydri Trændalogum her bua 300.000 manns..........


var g'odæri??

   Tv'i midur f'or tad fram hj'a okkur, sogdu ungu hjonin, sem voru ad kaupa ibudina sina, med bornin sin i skolanum, og itrottunum, blessad godærid hafdi bara alveg farid fram hja teim. Godærid hafdi ekki skilad neinu til teirra, nema sidur væri, bankinn hafdi ju alltaf verid frekar almennilegur vid tau, ju, ju, tad var hægt ad redda tessu fyrir tau, nu og benti teim audvitad 'a ad vedsetja vøri hægt i odrum husum en teirra eigin, og tau voru bara farin ad halda ad tau væru einhverjir vesalingar vid ad na ekki alveg endum saman, og datt ekki til hugar ad mjog margir væru i teirra sporum, tannig lagad.  Tad var lika svo leidinlegt ad vera alltaf ad tala um tetta vid allt og alla, svo tad var bara pudad afram.  Tau voru ennfremur farin ad vanmeta sjalf sig tar sem tau voru ekki verdgildi einnar og halfrar milljonar a manudi, og sau engan veginn fram a starfslokasamninga, nema i hæsta lagi, eftir kjarasamningum, og ta af stripudum launum. Tad var svo stutt sidan ad teim hafdi verid sagt ad kronan væri gifurlega sterkur gjaldmidill, og bankinn teirra var ad kaupa banka her og tar i Evropu, svo tetta hlaut ad koma hja teim, bara ef tau legdu ennta meira a sig, tetta bara hlyti ad fara verda besta land i heimi, gangandi bjartsynisfolk.

   Hvad segja tau i dag?  'I dag eru tau 'oskaplega reid, tau eru reid yfir tv'i ad tad var logid ad teim, hreint og beint, tad var buid ad heilatvo unga folkid, telja teim tru um ad tad væri svakalegt godæri.

   Tad er eiginlega tad s'arasta 'i tessu ollu. Vid gomlu s'aum tetta svo sem, en h'eldum 'i von sem vid erum b'uin ad tj'alfa upp med okkur 'i gegnum 'arin, og vonudum 'afram teirra vegna, sem ætludu ad taka vid stjorn landsins, sem vid vonum ad geri, verdi ekki svo uppgefin ad teim s'e alveg sama um tetta allt.

   Tad væri slæmt ef svo endadi, tv'i ekkert er eins slæmt eins og skeytingaleysi, um tetta eda hitt, ad yppta øxlum tegar svona er komid er s'u stada sem er verst skodanalega s'ed.Vonandi trauka tau tetta en:   en vid verdum ad ætlast til tess ad bankar og lanakerfi komi til mots vid einstaklinga sem enga 'oradsiu hafa synt adra en ad vinna, hugsa vel um børnin sin, og reynt ad koma yfir sig lagmarkshusnædi,   mer finnst bankarnir skulda okkur tad, og allir teir 40 einstaklingar sem hafa hreinlega svindlad a teim, bara endurgreidi i bankana tad fe sem teir hafa fengid ad valsa med, og eins og stjornin segir nuna, "sorry, ballid er buid", vid tau, t'a er tad bara til teirra aftur.   SØMULEIDIS


VÍÐA KREPPA

   Ég var síst að skilja í því í dag að sjá ungþrestina sitja bara og horfa á reyniberin, minntist orða mágkonu minnar að þeir ætu ekki reynniberin fyrr en frosin væru.  En ´mikið voru þeir í miklum viðbragðsstellingum í dag.  Þeir fara alveg að komast í þetta, datt mér í hug þegar að það snjóaði. Ég minnist þess ekki að hafa séð snjó á laufguðum trjám , en óneitanlega fannst mér þetta fallegt kvöld.  Líklegast geta þrestirnir birgt sig upp næstu daga. En ég lauk ekki við að setja niður túlipanana.

SPURNING TÍMANS..

   Þó forseti hafi verið góður í gær er ég bara ekkert viss um að þetta land eigi að hafa forseta.  Við höfum ekkert síður en aðrir mikla þörf fyrir að hafa einhvern einn til að líta upp til, og við erum, þrátt fyrir allt, með alveg eins mikið af tilbeiðslugeninu og aðrar þjóðir. Sem til dæmis hafa kónga eða drottningar.  Ég hef alltaf verið veik fyrir Danmörku, og hefði ekkert haft á móti því að vera undir Dönsku krúnunni, er semsagt konungssinni.    Af praktískum ástæðum, er ég alveg að hallast að Norsku krúnunni, en góður Norðmaður sagði mér, að þeir væru ekkert æstir í það, þeir hefðu bara nóg með sig.

   Gagnvart forsetaembættinu erum við alveg eins og aðrar þjóðir gagnvart konungsdæmum, ég se´ekki neinn einasta mun. Og svei mér þá ef kveðjan sem Jóhann lögreglustjóri fékk, minnti mig bara ekki á her í ýmsum löndum, og þá sérstaklega í USA, og þá er ég ekki á móti Jóhanni, alls ekki. Það er nauðsynlegt að eiga lögregluhóp, en svei mér þá, maðurinn var nú bara að hverfa úr starfi, það var ekkert sorglegra en það, þeir gátu ekki starfað saman, Björn og hann. Þurfti þetta vera svona gífurlegt, þetta var eins og heiðursvörður jarðarfarar.  Greinilega höfum við þörf fyrir svona embættissýningar, ég persónulega er gífurlega á móti þeim, í landi sem þessu.  En er með þeim, ef við værum með konungs- og herhefð.   En oft er tvískynungur hjá þjóðinni.

   En þar með er ég ekki að segja að ég sé ekki með því að eiga góða Víkingasveit.


Æ HVAÐ ÞETTA VAR NÚ ANNARS ÁGÆTT......

   Hjá forsetanum okkar, ég hreinlega komst við, það hefði einhvernveginn ekki verið nógu gott ef hann hefði farið hina leiðina.  Það er gífurlegur kvíði í ungum landsmönnum, og í fréttum útvarpsins kl. 1800, voru álíka þrúgnar æsingi, og fréttaflutingarnir frá Viet Nam stríðinu.   Þetta er að verða heldur leiðinlegt, og jaðrar við lágmenningu að vera að staglast á þessu endalaust.  Það veit hver heilvita maður að gífurlega hefur þrengt að fólki, illa framkvæmanlegt hjá mörgum fjölskyldum að skera niður hjá sér, þar sem börn eru.   Eina og hálfa millionin sem sóknarkonan var búin að öngla saman í gegnum ævina,  og var eiginlega ánægð með, er nú heldur betur rýr.

   Það væri kannske ekki úr vegi að hækka launin allverulega hjá Eflingarstarfsmönnum (fyrrum Sókn),  hækka alla aukavinnu hjá þeim sem unnin er umfram 40 stundir.  Mér hefur oft sýnst þegar starfsmaður leggur á sig aukavaktir, tekur svona smárispu, afkastar hann betur, þó það sé ekki rétta hugsunin, þá minnist ég þess.  Starfsmaðurinn er í stuði, veit sjálfur að hann er betur launaður, og duglegur starfsmaður vill ævinlega skilja eftir sig eitthvað aukalega þegar hann tekur að sér umframvinnu, og þetta skilar sér til stofnunarinnar, margskilar sér.

   En þetta var gott hjá forsetanum, en ég veit líka að fleiri hefðu farið þessa leið, og Davíð hefði einnig skilað þessu vel.

   En það hlaut að koma að þessari dýfu, og verst er hún fyrir unga fólkið, eins og margoft hefur verið talað um, en kannske þarf hún að fara í gegnum þetta eins og aðrar kynslóðir.  Og dettur okkur þá ekki í hug draumurinn um mögru kýrnar sjö osfrv.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband