7.11.2008 | 14:17
Þú ert þó ekki komin í lopann...............................
Svei mér þá ef ég nenni þessu eina ferðina enn," sagði vinkona mín eins sem er 11 árum yngri en ég. En ég veit að hún nennir því, en ég hlustaði enn frekar. Ég nenni ekki að fara spara eina ferðina enn.
Ég sparaði fyrir 40 árum þegar ég fékk vasapeningana mína, sparaði áður en ég fékk bílprófið, sparaði nýgift, sparaði þegar ég eignaðist börnin, sparaði þegar við byggðum íbúðina, sparaði þegar ég fór í sérnámið mitt, og svona heldur þetta endalausst áfram, sagði hún við mig í símann, en þessi kona hefur alltaf kunnað "að fara vel með", gætt hófs, og ég hef oft reynt að taka hana mér til fyrimyndar. En ég hafði tekið eftir ákveðnum tilslökunum hjá henni í þeim efnum, hún var til dæmis farin að fara í nokkuð góð sumarfrí, sem máttu samt ekki styttri vera.
"Ég nenni þessu ekki eina ferðina enn" sagði mín kona.
Hún var samt ekki eins mikið reið og þegar kerfið hrundi, þá talaði ég við hana frá Noregi, þar sem ég treysti oft hennar pólitíska nefi. Hún var samt ekki alveg eins reið,núna, og var í raun komin í sparnaðargírinn, þar sem hún er ábyrgur einstaklingur, osfrv.
Ég heyri Sigga mín að þú ert komin í gírinn, gengur í það að bjarga málunum, allavega reynir þú eins og þú ert vön, Sigga mín. ´Ég þekki þig ekki af öðru.
ÞÚ ERT ÞÓ EKKI FARIN AÐ PRJÓNA ÚR LOPA'????????? varð mér að orði, eftir lopapeysuviðtalið fræga sem ég las, mér fannst langt gengið ef hún Sigga mín færi að prjóna úr lopa.
Konan sú arna, er farin að prjóna úr lopa, og það meira að segja kjól.
Hún virðist vera snögg að fara í gegnum andlega kreppuferlið.
En ég veit samt að hún er pirruð............................
Og ég veit að hún nennir þessu eina ferðina enn....................
Undirrituð er ekki komin á lopastigið, er samt að myndast við garnið áfram, með smátt og smátt aðferðinni, það eru litlar flíkur í senn.
Hentar mér.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2008 | 21:57
PATTSTAÐA.......
Það er greinilega pattstaða í landinu. Það eru hreint út sagt hörmulegur fréttaflutningur í fjölmiðlum, sem segir mér það, að það er bara ekkert í fréttum hér í heiminum, til okkar annað en þessi óværa. Æsingur í einstaka spyrlum sjónvarpsins, þannig að halda mætti að við verðum fyrir sprengjuáras ekki bara á morgunn, heldur strax, og spyrill á góðri leið með að fá asthmakast í beinni.
Ég er ekki að segja að ríkja eigi þöggun í fjölmiðlum, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera, það er ekki verið að gefa þeim einstaklingum sem mest þurfa á að halda núna, neina einustu bjartsýni, akkurat enga, það er allt kjaftað í kaf, algerlega. Ástandið er slæmt, og biðtími núna afarslæmur fyrir skuldsett ungt fólk. Ég upplifði kastljósið í kvöld ótrulega "simpilt". Hvaða stigi erum við á??????
Í pattstöðu verðum við að vona, allavega reyna að verið sé að bæta eitthvað með viðræðum hingað og þangað, ég vil allavega reyna að trúa því í dag. Auðvitað er búið að koma okkur á kaldan klakann, í orðsins fyllstu, en ég fyllist einhverjum kvíða þegar ég finn að unga fólkið er enn svona vonlaust og reitt, ekki bættu tölfræðilegar upplýsingar kvöldfrétta fyrir ýmsum í kvöld.
Þessi pattstaða er allsstaðar, og eiginlega staða sem við verðum einnig að fara öll í, ef fólk á að hafa þetta af, þá er ég enn að vísa til yngri kynslóðarinnar, sem því miður er enn á reiði og áfallsstiginu. Það er skiljanlegt, "Hefur hún tíma til að bíða?????" Eða hvað????
Ég kom á hárgreiðslustofuna mína í dag, og hitti mínar yndislegu konur, sem spurðu um leið og ég kom inn "Hvað segirðu gott??" Og ég svaraði þeim til "Að ég segði bara allt gott", nú það var eins og þær hefðu ekki heyrt þannig tilsvör í marga daga, og ég sjálf var bara búiin að gleyma ástandinu, það var flott veður, og svo margt sem var í lagi, sem afvegaleiddi mig frá pattstöðu sem ég gat engan veginn ráðið við, og verð að vera í, að mínu mati.
Auðvitað hefur unga kynslóðin engan tíma til að bíða lengi í þessari pattstöðu, hún þarf jákvæðar upplýsingar einnig, hún á kröfu á það, ekki bara að allt sé að fara fjandans til.
Að gleyma á þessu stigi ferlisins, og ætlast til þess að fólk gleymi, er óréttlátt, og virðingarleysi, við megum til með að muna, og halda áfram að muna þessi ósköp. Unga kynslóðin er ábyrg kynslóð, og hún á ekkert að gleyma strax hvernig komið er fram við hana. Ég þekki ekki óábyrgt ungt fólk, og ég eiginlega finn soldið til sektar gagnvart henni, að ég skyldi einmitt vera af þeirri kynslóð, sem olli þessum ósköpum, og eins og margir trúði og treysti. En hún verður að fara í pattstöðu um sinn.
En það sem mér fannst slæmt að heyra að Jón Ásgeir ætlaði að kaupa svona stóran hlut í Árvakri.
Ekkert almennilegt pólitískt blað er til, vantar Þjóðviljann, Tímann, og eiginlega vantar alveg Morgunblaðið líka.
Svona var þetta víða, til dæmis á Spáni og Portugal endur fyrir löngu, svona hreinsunarstefnu hjá dagblöðum.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 15:29
ER NÚ BLESSAÐUR DRENGURINN AÐ KOMA ÚR VINNUNNI........
Hugsaði ég í hvert skipti sem þotan flaug yfir húsið mitt, en það er í beinni fluglínunni. Þetta var daglega, og oft fleiri en ein. Þetta voru bara ekki svo ljótar flugvélar, en þær ollu töluverðum hávaða og mengun, en þetta var bara eitt af því sem komið var, menn unnu í útlandinu, og þurftu auðvitað að komast til og frá.
Á sumum dögum flugu margar, stundum fáar, en alltaf einhverjar, og ég vissi alltaf hversu lengi þeir unnu þann daginn, hjá því var ekki hægt að komast, ef ég var á annað borð heima.
"Ja eitthvað hefur verið að gera í dag, sagði ég við sjálfa mig, þegar seint var komið, að ég tali nú ekki um þegar flogið var utan á laugardögum líka. Ég hugsaði hversu einföld persóna ég væri mitt í þessum látum, kannske bara stundum í mínum eigin litla heimi að moka.
Þetta pirraði mig aldrei, einhvernveginn vandist maður þessu, og í hæsta lagi með hótfyndni, í þá áttina, að það væri nú aldeilis munur, sérstaklega þegar ég var með gesti sem komu kl. 1700 og voru eitthvað frameftir, á góðviðrisdegi úti á grasi.
Það virðist vera hægt að venjast öllu, en ég vandist aldrei rykinu sem safnaðist í norðurgluggana hjá mér og sá að þetta var alltaf að versna.
Nú er svo komið að hér má aftur heyra í betur í fuglunum frá Kópavogs og Fossvogslæk, og gott ef ekki er, minna ryk í gluggum, og þessi plasthúsgögn hvítu hjá mér eru eitthvað skárri þarna úti.
Og ég finn svo greinilega muninn, ég heyri betur í þögninni.................
Og annað, að einhverju er lokið, vonandi, ekki bara vegna hávaða frá flugvélunum, heldur einhverju miklu stærra sem skiptir okkur öll máli.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.11.2008 | 13:59
HÖNNUR..
Þetta heitir Hanna á ströndinni, ekki er þetta nú Hanna mín, en henni fannst gífurlega gott að fara í sólbað.
Þessi heitir einnig Hanna en ég veit ekkert hver sú Jóhanna er.
En þessi er af Hönnu Dís, þar sem við erum í eftirmiðdagskaffi úti á róló.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.10.2008 | 15:52
Minnisvarðar............
Og tónskáldsins Grieg.
Að láta sér þykja vænt um listamenn sína, er góður menningararfur´. Hjón sem voru að fara í óperuhúsið þetta kvöld lögðu blómsveig við minnisvarða þessarar konu.
Friðbjörn aftur á móti hneigði sig fyrir Edward Grieg fyrir framan gamla Frímúrarahúsið í Osló, sem nú er notað sem tónleikasalur fyrir kammermúsik.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.10.2008 | 15:44
HAUST
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2008 | 17:54
ORÐSNILLD EINARS MÁS............
Finnst mér með eindæmum, ég held að enginn núlifandi rithöfundur hefði getað skrifað slíka grein, sem nú kom í Mbl. í dag. Það er búið að fella svo marga dóma umdanfarna daga, með allskonar orðalagi, og oft mjög lélegu og illu. Það eru margir sem ekki hafa getað leynt biturleika sínum, og ekki öllum gefið að skrifa þegar svona stendur á hjá þjóðinni. Góðir skribentar hafa misst sig, látum vera með okkur hin sem erum að skúbba þetta, en allir búast við góðu frá viðurkenndum einstaklingum. Pistlahöfundar nokkrir gengið aðeins of langt, svo langt að spurning víkur að manni eftir lestra, að um óvönduð vinnubrögð séu að ræða hjá viðkomandi blöðum. En skrif Einars Más sögðu okkur að þarna var orðsins maður, og aldrei er Íslenskan jafnfalleg, og þegar hún er jafn ljóðræn,sem hún var, í greininni hans í dag.
Ég vona að allir lesi þessa grein, sér til ánægju, þess efnis, hversu máttugt er,að eiga slíka listamenn orðsins. Ég kann ekki að fjalla um þessa grein pólitískt, en ég get sagt tilfinningu mína, þess efnis að hún er falleg.
Við eigum marga listamenn, og það er þannig núna með mig, að ég held að ég hafi sjaldan orðið jafnmeðvituð þess sem ég er þessa dagana.
Við þurfum svo sannarlega á þeim að halda NÚNA......................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.10.2008 | 16:35
FÓLKIÐ Í BLOKKINNI.......................
Þegar við og stelpurnar mínar vorum að lesa Áróru í blokk X, sá ég alltaf svona umhverfi fyrir mér, fallega blokk með gróðri og grasflöt. Stelpunum mínum fannst þetta sveipað ævintýraljóma, og vildu endilega flytjast í blokk eins og Áróra átti heima í. Þeirra líf var eitthvað svo einfalt, og fullorðna fólkið í þeirri bók hafði virtist vera meiri tíma en við foreldrarnir þá, þeas mín kynslóð, sem hafði í mörg horn að líta eins og vitað er, og skrifað hefur verið um.
Um þessar mundir er verið að sýna leikritið FÓLKIÐ Í BLOKKINNI, eftir Ólaf Hauk Símonarson, og má ég til með að fara.
Sögusvæði Ároru í blokk X, er að vísu Svíþjóð, en þessi mynd er auðvitað Noregur, úthverfi í Osló.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2008 | 00:50
KVÍÐI....
Eins og svo margir kvíði ég fyrir því að lesa viðtalið við Bjrögvin, sem við eigum von á í fyrramálið í Morgunblaðinu. Ég er ein af þeim sem dáðist að þessum manni, og geri raunar enn. Ég hefði keypt Landsbankann eins og hann gerði ef ég hefði getað. Það hefur enginn gefið jafnmikið til lista á Íslandi eins og hann gerði. Studdi eitt og annað, sem aldrei hefði verið hægt að gera án stuðnings þeirra félaga í Landsbankanum. Honum og hans liði var aldrei neitt illt í huga gagnvart þessari þjóð. Björgólfur viðraði þá hugmynd að við þyrftum að stofna varasjóð.
Bankinn var til sölu á þessum tíma. Ísland vildi einkavæða allt, símann, orkuveituna, bankana og ég veit ekki hvað, fyrstur kemur fyrstur fær, það var bara þannig. Og hver grípur ekki gæsina, þegar hún gefst. Lögin voru bara röng. Og hvar voru allir þessir prelátar þá, sem núna eru að segja að allt hafi verið rangt. Þeir þögðu bara þunnu hljóði...... Hvað var Steingrímur? Hvar var Ögmundur???, hvar var þessi og hvar var hinn?????????
Við erum eiginlega frekar grimm, nú á bara að drepa einstaka mann fyrir verk stjórnsýslu landsins, er ekki einum of mikil kúrekastemning í landanum núna?????
VERÐUM VIÐ EKKI AÐ HLUSTA ALMENNILEGA Á JÓN BALDVIN NÚNA?????
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2008 | 17:14
KK, í Kópavogi í gær.
Það var húsfyllir í salnum, og alveg gríðarleg stemning, í gærkvöldi á konsert KK, magnað stuð, og KK tókst að toppa sjálfan sig eina ferðina enn, og var með úrvalsið með sér í gær. Sessunautur minn sem er trymbill, tjáði mér að Kristján væri svo magnaður kassagítarleikari, að hann léti kassann allan hljóma, gæti ennfremur alveg eins verið án trommuleikara þar sem hann hefði svo fullkominn rythma, og hljóm. Sagði ennfremur að KK væri að öllum líkindum besti kassagítarleikari landsins.
Sjálf varð alveg upptendruð af þessu öllu saman, allri þessari gleði, og frábærum ljóðum Kristjáns, það er eiginlega langt síðan ég hef hlustað á jafnguðfræðilegan texta frá þessum geira tónlistarinnar. Ekta blues, bluegrass, rokk og rokkaður jass. Allt á einu kvöldi, því tónleikarnir voru langir, og þeir félagar tóku ekki langt hlé.
Kristján í útliti eins og þjóðvegasöngvari í útliti, og eiginlega mjög svipuð týpa og Clint Eastwood leikari, og var það ekki verra, fyrir minn smekk, ég veit samt ekki til þess að Clinti hafi reynt fyrir sér á tónlistarsviðinu, en sama alúðin lögð við það sem verið er að vinna með.
KK er greinilega ekta listamaður, sem bætir við sig hvert ár.
DISKUR KOM ÚT Í GÆR, SEM HEITIR : SVONA ERU MENN.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)