JÓLAFRÍI LOKIÐ.........................

   JÆJA, þá er jólafríinu lokið, hjá krökkunum, sem eru með "miklu ábyrgðina", þar af leiðandi með hin og þessi laun extra, svokallaðar nefndarsetur, fundarsetur og ég veit ekki hvað, sem einu nafni má bara nefna saumaklúbba.  Auðvitað þarf mánaðarjólafrí, skárra væri það nú, eiginlega alvveg óskiljanlegt að ég skuli vera að finna að því, sem ég er nú ekki beint að nema ef vera skildi finnst mér þetta afskaplega hlægilegt.

   Lengsta jólafrí sem nokkur hefur í þessu blessaða landi, og það á tímum stjórnarkreppu, "Er þetta hægt?".    Það er ekkert hægt.  Ekki sála á bakvaktinni, ekki kom það fram í blöðum.

   En auðvitað er erfitt að sundríða á milli skaga og nesja, alklæddir leðurfötum, og með birgðir til páskafrís, og með marga hesta til reiðar ásamt aðstoðarfólki þeirra í vinnunni þeirra.

   Auðvitað er þetta erfitt að setjast inn í vinnuna sína, eftir að hafa verið bara heima við að prjóna lopapeysur, og sauma vaðmálsbuxur.

   Auðvitað er erfitt að fara spekulera að fara leita að þjóðarvitundinni, hvar í ósköpunum er hún? Auðvitað er hún týnd. Týndist bara si svona, meðan lopapeysurnar sem sést hafa til dæmis á einni háttsettri frú, og einum ráðherra. Það er svo gott að gleyma sér við að prjóna, og maður hugsar mikið þegar maður prjónar, oft kemur margt gott úr þeim hugsunum.

   Og nú vil ég fara að sjá hvað kemur útúr jólafríi þessu.  Við vitum af þjóðum, sem hugsuðu meðan hér var allt í jólafríi, sem byggt er á hefðum, síðan við héldum Þing á Þingvöllum. Það eru þjóðir til sem komust að niðurstöðu í fríinu okkar, að ekki vildu þær lána okkur. Hvað kemur til?????   Ekki lána Íslendingum?????   "Er einhver hissa á því??"

   Við þurfum nefnilega að fá lánaða ráðgjafa, með þessum lánum sem við erum að taka, okkur vantar ábyrgðarmenn fyrir þessum lánum, við ráðum ekki við þetta sjálf, og það er það sem er svo sorglegt, að ekki hafa verið sendar út til okkar almennilegar fréttir.

   Það er skömm að því að við skulum þurfa að fara inná erlendar blaðasíður, til að vita hvernig ástandið í fjármálum er hér, og........hvernig á að leysa það.   Það snertir þjóðarvitund mína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hannes Heimir Friðbjörnsson

Já svo talar Geir um að það eigi ekki að fara í kosningar því þá sé landið stjórnlaust á meðan! Það var engin stjórn við störf í 5 vikur á meðan jólafríinu stóð, svo ég held að við getum alveg haldið út 6 vikna kosningabaráttu! Svo hefur nú landið verið meira og minna stjórnlaust síðustu 12 ár eða svo. Nú eru þeir byrjaðir að stama, því þeir vita að ef þeir missa stólinn sinn á alþingi þá er litla vinnu fyrir þá að hafa, því þetta er ónýtt fólk! HANANÚ! afsakið. Þinn sonur H.

Hannes Heimir Friðbjörnsson, 22.1.2009 kl. 09:26

2 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Já tek undir það, þetta er komið á vðkvæmt stig, eins og maður átti von á ef farið yrði af stað, en þannig er það bara.

Það var rosaleg krisa í þjóðfél. uppúr 1980, svo gengum viðí gegnum myntbreytinguna, flokkaveldið búið að fera alltof mikil í gegnum árin, þetta er eiginlega komið nóg, við þurfum stjórnarfarsbreytingu, við verðum að hlusta á Njörð P. Njarðvík, farðu inná Silfur Egils þar sem rætt er við Njörð.

Það bara ekki hægt að vera að þessu vakli lengur.

Sólveig Hannesdóttir, 22.1.2009 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband