19.3.2009 | 20:23
ÚR NEYTENDABLAÐINU.
Sígandi lukka er best
Þegar horft er til framtíðar telur Ólafur Darri að þrátt fyrir mikinn vanda sé margt jákvætt sem gleeti hjálpað okkur: Þrátt fyrir hrunið erum við ein ríkasta þjóð í heimi og búum yfir miklum auðlindum, við eigum fiskinn í sjónum, orkuna í fallvötnunum og jörðinni og mikinn mannauð. Við getum því verið fljót að vinna okkur út úr vandanum. Samhliða því að við tökumst á við aðsteðjandi bráðavanda verðum við að ákveða hvernig við ætlum að tryggja hér stöðugleika og byggja upp góð lífskjör og öflugt atvinnulíf til framtíðar. Eitt af ´því sem hrunið hefur kennt okkur er, að við getum ekki komið á hér stöðugleika með því að halda í krónuna. Við þurfum því að ákveða hvað kemur í stað krónunnar. Þar blasir við að innganga í Evrópusambandið og upptaka evru er langbesti kosturinn í stöðunni, EF VIÐ FÁUM VIÐUNDANDI UNDANÞÁGUR Í SJÁVARÚTVEGSMÁLUM- OG LANDBÚNAÐARMÁLUM.(leturbr. mín)
Þetta segir Ólafur Darri Andrason í grein í Neytendablaðinu mars s.l.
Athugasemdir
Útkjálkamenning - og hugsun okkar birtist m.a. í hræðslunni við ESB og evruna. Þetta er mér óskiljanlegt. Ég tel eins og fjöldi mætra mann á Íslandi að við eigum að vinda bráðan bug að þessu og hætta þessu rándýra hangsi. Við munum án efa geta samið að einhverju leyti (sem er viðunandi fyrir okkur) um kindur og þorsk. Áfram með okkur í bandalag annarra Evrópuþjóða - okkar líka!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.3.2009 kl. 13:12
HeyrHeyr, flott...........................
Sólveig Hannesdóttir, 21.3.2009 kl. 19:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.