5.3.2009 | 23:05
ÞAÐ KEMUR MÉR Á ÓVART.....................................
Hversu húsbóndaholl við erum, ég vil ekki trúa því á þjóð mína að hún ætli að styðja Sjálfstæðisflokkinn í þessum kosningum, við getum ekki verið þekkt fyrir það, við getum ekki verðlaunað þessa stjórn sem hefur hegðað sér með þeim eindæmum sem hún hefur gert.
Sjálfstæðisflokkurinn verður að bíða afhroð, og það mikið, svo hann skilji hversu óánægðir margir eru. Ef Sjálfstæðisflokkurinn bíður ekki afhroð, er það aldeilis saga til næsta bæjar. Við erum búin að gera okkur að fíflum, og tapa trausti, og höfum öðlast vorkunnsemi hjá þeim þjóðum sem vilja okkur best. Það er núna sem við verðum að ganga að kosningakössunum, með minningar liðinna mánuða í huga. Það er stundum ekki hægt að fyrirgefa, og alls ekki á þessu stigi hinnar sálfræðilegu kreppu fólksins okkar.
Athugasemdir
Hef því miður þá óþægilegu tilfinningu að við eigum mörg eftir að skammast okkar niður í .......... eftir næstu kosningar. Ef Sjálfstæðisflokkurinn tapar ekki stórt í kosningunum held ég að það væri full ástæða til að afsala okkur líðveldinu.
Helga Jónsdóttir, 5.3.2009 kl. 23:15
Já er þetta ekki týpískt? ég hef ansi illan grun....
Bína (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 15:17
Fór inná bloggið þitt er ekki enn búin að ná tökum á Gúgglinu........................ En mikið er það gott að hún þorir að skella hurðinni á mömmu sína, hún er efnileg hún Sunna.....................
Sólveig Hannesdóttir, 7.3.2009 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.