´MEIRA FRÁ HALLGRÍMI.........................

   Bls.61

   Ég er nett búinn á því. Ég finn hvernig áfengið leitar uppi þotuþreytuna og magnar hana upp. Dísus. hvað ætli vinir mínir góðu gestgjafar séu að bralla núna? Þau hljóta að vera mætt á sjónvarpsskjáinn.  Goodmoondoor hringdi aldrei. Ég ætla rétt að vona að amerisku sendiráðsfíflin hafi ekki náð að skjáfesta fésið á mér. Það hangir örugglega plakat af mér í öðru hverju herbergi þarna. Ég drap "þeirra ´mann". Reyndar á ég 67 krossa í bandarískum kirkjugörðum, þannig að ekki skortir þá ástæðu til að skella mér í götuna.  En auðvitað voru þessir 67 ekki allir grænakortshafar. Sumir voru frá Talíu, sumir rússneskir, þónokkrir voru Serbar og einn var sænskur eða norskur, ef ég man rétt.  Skringilegasti hreimurinn sem ég hef skrúfað fyrir. En flestir þeirra voru ferningsfésaðir og borgarabotnaðir sykurpúðamenn. Með svo marga dauða Ameríkana í vasanum ætti ég fyrir löngu að vera orðinn heiðursfélagi í Al Qaeda-samtökunum.

   Já. Ég er á listanum yfir eftirsóttustu glæpasveinana. Já. Ég verð að muna að ég er í útlegð. Já. Ég má ekki gleyma MMS-inu. Og já.  Ég heiti David Friendly.

  Greinilega mjög þjappaður.........................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Góða helgi  skilaðu kveðju til Hallgríms

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.12.2008 kl. 21:55

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Greinilega magnaður lestur ...

Heyrðu gæzkan, það vantar myndina af þér í prófílinn!!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.12.2008 kl. 21:57

3 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Einhver óáran komst í myndasafnið, og þurrkuðust út myndir, alveg óforvarendis. Villi tók síðan aðra af mér, sem er töluvert ábyrgari heimild, en hún er á leiðinni, þegar ég nenni í þann gír. 

Sólveig Hannesdóttir, 10.12.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband