6.11.2008 | 21:57
PATTSTAÐA.......
Það er greinilega pattstaða í landinu. Það eru hreint út sagt hörmulegur fréttaflutningur í fjölmiðlum, sem segir mér það, að það er bara ekkert í fréttum hér í heiminum, til okkar annað en þessi óværa. Æsingur í einstaka spyrlum sjónvarpsins, þannig að halda mætti að við verðum fyrir sprengjuáras ekki bara á morgunn, heldur strax, og spyrill á góðri leið með að fá asthmakast í beinni.
Ég er ekki að segja að ríkja eigi þöggun í fjölmiðlum, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera, það er ekki verið að gefa þeim einstaklingum sem mest þurfa á að halda núna, neina einustu bjartsýni, akkurat enga, það er allt kjaftað í kaf, algerlega. Ástandið er slæmt, og biðtími núna afarslæmur fyrir skuldsett ungt fólk. Ég upplifði kastljósið í kvöld ótrulega "simpilt". Hvaða stigi erum við á??????
Í pattstöðu verðum við að vona, allavega reyna að verið sé að bæta eitthvað með viðræðum hingað og þangað, ég vil allavega reyna að trúa því í dag. Auðvitað er búið að koma okkur á kaldan klakann, í orðsins fyllstu, en ég fyllist einhverjum kvíða þegar ég finn að unga fólkið er enn svona vonlaust og reitt, ekki bættu tölfræðilegar upplýsingar kvöldfrétta fyrir ýmsum í kvöld.
Þessi pattstaða er allsstaðar, og eiginlega staða sem við verðum einnig að fara öll í, ef fólk á að hafa þetta af, þá er ég enn að vísa til yngri kynslóðarinnar, sem því miður er enn á reiði og áfallsstiginu. Það er skiljanlegt, "Hefur hún tíma til að bíða?????" Eða hvað????
Ég kom á hárgreiðslustofuna mína í dag, og hitti mínar yndislegu konur, sem spurðu um leið og ég kom inn "Hvað segirðu gott??" Og ég svaraði þeim til "Að ég segði bara allt gott", nú það var eins og þær hefðu ekki heyrt þannig tilsvör í marga daga, og ég sjálf var bara búiin að gleyma ástandinu, það var flott veður, og svo margt sem var í lagi, sem afvegaleiddi mig frá pattstöðu sem ég gat engan veginn ráðið við, og verð að vera í, að mínu mati.
Auðvitað hefur unga kynslóðin engan tíma til að bíða lengi í þessari pattstöðu, hún þarf jákvæðar upplýsingar einnig, hún á kröfu á það, ekki bara að allt sé að fara fjandans til.
Að gleyma á þessu stigi ferlisins, og ætlast til þess að fólk gleymi, er óréttlátt, og virðingarleysi, við megum til með að muna, og halda áfram að muna þessi ósköp. Unga kynslóðin er ábyrg kynslóð, og hún á ekkert að gleyma strax hvernig komið er fram við hana. Ég þekki ekki óábyrgt ungt fólk, og ég eiginlega finn soldið til sektar gagnvart henni, að ég skyldi einmitt vera af þeirri kynslóð, sem olli þessum ósköpum, og eins og margir trúði og treysti. En hún verður að fara í pattstöðu um sinn.
En það sem mér fannst slæmt að heyra að Jón Ásgeir ætlaði að kaupa svona stóran hlut í Árvakri.
Ekkert almennilegt pólitískt blað er til, vantar Þjóðviljann, Tímann, og eiginlega vantar alveg Morgunblaðið líka.
Svona var þetta víða, til dæmis á Spáni og Portugal endur fyrir löngu, svona hreinsunarstefnu hjá dagblöðum.
Athugasemdir
Ég hélt ég yrði aldrei afturhald...en ég vil endurvekja Þjóðviljann, Alþýðublaðið og Alþýðuflokkinn.Svo vil ég vinstri stjórn, strax í gær (en það kemur afturhaldinu svosem ekkert við... það er púra framsýni, skynsemi og ýmis önnur sýni og semi..)
Takk fyrir þennan pistil, elsku frænka. Ég fæ astmakast við að horfa á Kastljós. Ég horfði reyndar ekki á það í kvöld. Eins gott, enda er ég mun betri af Kastjóss-astma-og ofnæmisheilkenni mínu. Ég ÞOLI sérdeilis illa spyrlana í þeim þætti. Ullabjakk.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.11.2008 kl. 23:09
Þetta var aldeilis styrkjandi, já það vantar öll þessi almennilegu blöð. Og almennilega flokka, og ég veit ekki hvað, en lifandis ósköp er ég fegn að þú tekur undir., hjá mér.
Sólveig Hannesdóttir, 7.11.2008 kl. 13:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.