KK, í Kópavogi í gær.

Það var húsfyllir í salnum, og alveg gríðarleg stemning, í gærkvöldi á konsert KK, magnað stuð, og KK tókst að toppa sjálfan sig eina ferðina enn, og var með úrvalsið með sér í gær. Sessunautur minn sem er trymbill, tjáði mér að Kristján væri svo magnaður kassagítarleikari, að hann léti kassann allan hljóma, gæti ennfremur alveg eins verið án trommuleikara þar sem hann hefði svo fullkominn rythma, og hljóm.   Sagði ennfremur að KK væri að öllum líkindum besti kassagítarleikari landsins.

Sjálf varð alveg upptendruð af þessu öllu saman, allri þessari gleði, og frábærum ljóðum Kristjáns, það er eiginlega langt síðan ég hef hlustað á jafnguðfræðilegan texta frá þessum geira tónlistarinnar.   Ekta blues, bluegrass, rokk og rokkaður jass.   Allt á einu kvöldi, því tónleikarnir voru langir, og þeir félagar tóku ekki langt hlé.

Kristján í útliti eins og þjóðvegasöngvari í útliti, og eiginlega mjög svipuð týpa og Clint Eastwood leikari, og var það ekki verra, fyrir minn smekk, ég veit samt ekki til þess að Clinti hafi reynt fyrir sér á tónlistarsviðinu, en sama alúðin lögð við það sem verið er að vinna með.

KK er greinilega ekta listamaður, sem bætir við sig hvert ár.

DISKUR KOM ÚT Í GÆR, SEM HEITIR : SVONA ERU MENN.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég elska KK. Það hefur verið gaman fyrir ykkur trymbilinn að upplifa þetta saman. Hann var líka mjög hrifinn, las ég. Guðfræðilegir textar, hmmm, athyglisvert, þetta verð ég að kanna.

Þú kommenteraðir við Foucault hjá mér; það er þó höfundur sem þú ættir að lesa, frænka mín góð, uppfullur af djúpum pælingum og snilld. Eins og sumir. 

Góðanótt!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.10.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband