3.10.2008 | 00:07
VÍÐA KREPPA
Ég var síst að skilja í því í dag að sjá ungþrestina sitja bara og horfa á reyniberin, minntist orða mágkonu minnar að þeir ætu ekki reynniberin fyrr en frosin væru. En ´mikið voru þeir í miklum viðbragðsstellingum í dag. Þeir fara alveg að komast í þetta, datt mér í hug þegar að það snjóaði. Ég minnist þess ekki að hafa séð snjó á laufguðum trjám , en óneitanlega fannst mér þetta fallegt kvöld. Líklegast geta þrestirnir birgt sig upp næstu daga. En ég lauk ekki við að setja niður túlipanana.
Athugasemdir
Hvaða haustlaukaniðursetningarleti er þetta frænkan mín fríð, fróð og fróm? Eitthvað annað en hér, þar sem er ekki enn farið að bera á sumarhúsgögnin ...
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.10.2008 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.