2.10.2008 | 20:17
SPURNING TÍMANS..
Þó forseti hafi verið góður í gær er ég bara ekkert viss um að þetta land eigi að hafa forseta. Við höfum ekkert síður en aðrir mikla þörf fyrir að hafa einhvern einn til að líta upp til, og við erum, þrátt fyrir allt, með alveg eins mikið af tilbeiðslugeninu og aðrar þjóðir. Sem til dæmis hafa kónga eða drottningar. Ég hef alltaf verið veik fyrir Danmörku, og hefði ekkert haft á móti því að vera undir Dönsku krúnunni, er semsagt konungssinni. Af praktískum ástæðum, er ég alveg að hallast að Norsku krúnunni, en góður Norðmaður sagði mér, að þeir væru ekkert æstir í það, þeir hefðu bara nóg með sig.
Gagnvart forsetaembættinu erum við alveg eins og aðrar þjóðir gagnvart konungsdæmum, ég se´ekki neinn einasta mun. Og svei mér þá ef kveðjan sem Jóhann lögreglustjóri fékk, minnti mig bara ekki á her í ýmsum löndum, og þá sérstaklega í USA, og þá er ég ekki á móti Jóhanni, alls ekki. Það er nauðsynlegt að eiga lögregluhóp, en svei mér þá, maðurinn var nú bara að hverfa úr starfi, það var ekkert sorglegra en það, þeir gátu ekki starfað saman, Björn og hann. Þurfti þetta vera svona gífurlegt, þetta var eins og heiðursvörður jarðarfarar. Greinilega höfum við þörf fyrir svona embættissýningar, ég persónulega er gífurlega á móti þeim, í landi sem þessu. En er með þeim, ef við værum með konungs- og herhefð. En oft er tvískynungur hjá þjóðinni.
En þar með er ég ekki að segja að ég sé ekki með því að eiga góða Víkingasveit.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.