1.10.2008 | 22:33
Æ HVAÐ ÞETTA VAR NÚ ANNARS ÁGÆTT......
Hjá forsetanum okkar, ég hreinlega komst við, það hefði einhvernveginn ekki verið nógu gott ef hann hefði farið hina leiðina. Það er gífurlegur kvíði í ungum landsmönnum, og í fréttum útvarpsins kl. 1800, voru álíka þrúgnar æsingi, og fréttaflutingarnir frá Viet Nam stríðinu. Þetta er að verða heldur leiðinlegt, og jaðrar við lágmenningu að vera að staglast á þessu endalaust. Það veit hver heilvita maður að gífurlega hefur þrengt að fólki, illa framkvæmanlegt hjá mörgum fjölskyldum að skera niður hjá sér, þar sem börn eru. Eina og hálfa millionin sem sóknarkonan var búin að öngla saman í gegnum ævina, og var eiginlega ánægð með, er nú heldur betur rýr.
Það væri kannske ekki úr vegi að hækka launin allverulega hjá Eflingarstarfsmönnum (fyrrum Sókn), hækka alla aukavinnu hjá þeim sem unnin er umfram 40 stundir. Mér hefur oft sýnst þegar starfsmaður leggur á sig aukavaktir, tekur svona smárispu, afkastar hann betur, þó það sé ekki rétta hugsunin, þá minnist ég þess. Starfsmaðurinn er í stuði, veit sjálfur að hann er betur launaður, og duglegur starfsmaður vill ævinlega skilja eftir sig eitthvað aukalega þegar hann tekur að sér umframvinnu, og þetta skilar sér til stofnunarinnar, margskilar sér.
En þetta var gott hjá forsetanum, en ég veit líka að fleiri hefðu farið þessa leið, og Davíð hefði einnig skilað þessu vel.
En það hlaut að koma að þessari dýfu, og verst er hún fyrir unga fólkið, eins og margoft hefur verið talað um, en kannske þarf hún að fara í gegnum þetta eins og aðrar kynslóðir. Og dettur okkur þá ekki í hug draumurinn um mögru kýrnar sjö osfrv.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.