HÁTÆKNISJÚKRAHÚS.....HÁTÆKNIHJÚKRUN...HÁTÆKNILÆKNING.....

   Eru orð sem standa í mörgum manninum, og hafa gert síðan þetta var fyrst nefnt. En ég breyttist í sjúkling á hátæknideildum, og þurfti að þiggja þessa margþættu lækningu og hjúkrun. Ég komst að því að annað orð er ekki til yfir þær aðgerðir sem verið er að gera á LSH.  Mjög margir vilja svokallaða "Betri þjónustu", eins og við höfum oft heyrt, ofnotað orð, og væri þá gaman að velta því fyrir sér og öðrum, "Hvað er þjónusta"?, auðvitað eru flest störf þjónustustörf, við erum bara að þjónusta mismunandi verkefni, og eða þætti. Sjálf lít ég á flest verk sem þjónustu, ef svo er ekki, þá er fasismi í gangi. 

   Milli þess sem ég taldi fellingarnar í gardínunum milli okkar einstaklinganna sem inni lágu, og talið plastraufarnar í ljósakrónunni, og safnað mér saman, inná við, og reynt að muna. Svaraði ég spurningum sem ég hefi svo oft svarað og er eiginlega alveg að fara að steingleyma. Mér er fortíðin afskaplega fjarri, það er helst ef ég fer alveg aftur til bernsku, að hlutirnir skýrast, en svona er þetta bara. Stór spurning hvort að maður á í það heila að vera að halda í eitthvað, sem manni finnst ekki skipta máli í dag.

   Ég gat þó munað okkur sem unnum þessi störf á 7unda áratugnum, og borið saman við starfsmennina í dag. Og ég verð að segja það að við eigum mikinn MANNAUÐ í heilbrigðisstofnunum, ég held ég megi segja landsins alls. Ég hefi sjaldan séð jafnmikla fagmennsku í starfi sem ég sá á LSH.Ég hef að vísu ekki reynslu utan af landi, en hefi kynnt mér það lítilsháttar. ÞENNAN MANNAUÐ verðum við að vernda, annars missum við þau, í eitthvað annað. ÞESSI MANNAUÐUR á aðra starfsaðstöðu skilið, og önnur laun. Það var hver einasti starfsmaður sem vissi upp á hár hvað hann átti að gera, og taktföst teymisvinna, hafði ég á tilfinningunni.

   Eitt skil ég ekki alveg, af hverju Hátæknisjúkrahúsið var ekki byggt í Vífilsstaðalandinu, þar höfum við útsýni til allra átta, FYRIR STARFSFÓLKIÐ......, ennþá hef ég þá skoðun, að það þurfi útsýni fyrir starfsfólk, ekki sjúklinga, mín rök, eru fyrir hendi, en eru kannske soldið of grimm til að nefna hér. En þetta er skoðun mín. Tveir matsalir, til norðurs eða suðurs, starfsfólk gæti valið.  Fallegt gróið land. Vatn. Inni í hátæknisjúkrahúsinu væri vafalaust starfsmaður sem hefði mikla ánægju af að líta út um glugga.

   Í dag eru alltof mörg vaktherbergi gluggalaus.

   Í dag eru alltof margar stofur of litlar, lítið rými til að snúa sér við fyrir starfsmanninn.

   Í dag er ekki nógu mikið hugsað um starfsmanninn í hátækniumhverfinu.

   BREYTUM ÞVÍ.............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband