3.9.2008 | 22:12
JA HVERNIG Á NÚ AFTUR AÐ FARA AÐ ÞVÍ.'?
Ég hef auðvitað enga hugmynd um það, og ætlaði mér ekki að reyna það, var eiginlega bara að láta hugann reika aftur í tímann, þegar ég var stödd á þeim tímapunkti, sem aðstandandi aldraðra, og sem starfsmaður í þeim geira um skeið.
Ég stóð mig að því oftar en einu sinni, hvað það gat verið erfitt að flytja inn á öldrunarstofnun, ´jafnvel þó sú ráðstöfun einstaklingsins hafi verið að hans eigin vilja, strax frá byrjun, jafnvel fyrr en fjölskylda einstaklingsins átti von á. Ég minnist þess að hafa rætt við konu sem einna erfiðast átti með að "Leysa upp heimilið sitt", ég hefi alltaf átt erfitt með að heyra þessa skoðun, og staldraði við þegar ég heyrði hana, ég á nefnilega erfitt með að heyra hana, og þá helst vegna þess, ég hef þá verið að velta fyrir mér, "Hvað er heimili?", og síðan að þurfa að "Leysa upp heimili". Því er ég að hallast á þá skoðun, að nauðsynlegt sé að gera það upp í tíma, að svona upplausn á heimili, eru yfirleitt hlutir, sem við erum að ríghalda í. Sjálf rígheld ég í einhverja hluti, og finn svo sannarlega að ég verð að taka mig taki. Það tekur tíma, sérstaklega þegar maður hefur verið á fáum stöðum í lífinu, sem ég fer að halda að sé manni ekki hollt. Hvernig er þá að fara frá þessu fyrir fullt og allt, ef það er svona erfitt að losa sig??
EIN YNDISLEG KONA, sem ég þekki, og er óhemju skemmtileg, hafði og hefur óskaplega gaman að fallegum hlutum, mjög fallegum hlutum.., og oftar en ekki kvartaði hún undan hvað þetta væri mikið verk að hugsa um þetta alltsaman, hún "væri blátt áfram að kafna í kristal", en góð lausn kom frá börnum hennar með hennar samþykki auðvitað. Hún var send í útilegu, í fylgd systur, og mátti ekki koma heim fyrr en eftir tvo daga. Meðan tók fjölskylda hennar allt í gegn, gott ef þau máluðu ekki líka, og grisjuðu silfrið og kristalinn og allt sem henni hafði ákotnast í gegnum árin.
OG VEISTU ÞAÐ SOLLA, ÉG TÓK EKKI EINU SINNI EFTIR ÞVÍ.............................................
Athugasemdir
Sæl vinkona, mikið er þetta flott saga. Margir mættu lærdóm af henni draga, (ég held að ég ætti að vera þar fremstur í flokki). Með beztu kveðju.
Bumba, 3.9.2008 kl. 22:25
Takk fyrir að deila þessari sögu
Anna Ragna Alexandersdóttir, 3.9.2008 kl. 23:23
Akkúrat. Við verðum samdauna því sem safnast í kringum okkur og þurfum oft hjálp við að fara uppúr farinu .... Frábært.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.9.2008 kl. 23:55
Solla mín, mig langar til að segja þér smásögu frá því um daginn. Systir mín ein hringdi í mig og spurði hvort ég ætti ekki eitthvað af fötum, sparifötum, sem ég notaði ekki lengur og gæti hugsað mér að losa mig við. Þetta var stuttu áður en ég fór út. Hún ætlaði að gefa þetta í söfnun hennar Jóhönnu Kristjónsdóttur. Jæja, til að gera langa sögu stutta, þá tók ég saman FIMM stóra poka af sparifötum, kjólfötum, smókiningum, svörtum jakkafötum, jakkafötum úr silki og nefndu það bara, um 70 skyrtur og vesti, stakar buxur, blazers, tæmdi næstum þvi fataskápinn. Þetta voru margra ára birgðir, um að bil með 50 kílóa margin, hehehehe. Burt með þetta allt saman. Mér leið svo vel að ég veit þú trúir því ekki. Núna þegar ég kom heim til Amsterdam, þá lét ég mála íbúðina hátt og lágt, pússa parkettið og lakka það uppá nýtt meðan ég var í burtu. Um leið lét ég náttúrulga flytja alla búslóðina í burtu. Þegar hún kom til baka þá gaf ég 4 stóla, gamlan útskorinn hægindastól, sófaborð úr stáli, fataskáp, rúm og flest fötin sem í honum var, skápnum það er að segja. Og núna þegar ég er að hugsa um þetta núna, hvernig hafði ég pláss fyrir þetta allt saman? Sakna þess ekki eitt augnablik. Ákvað að segja þér frá þessu en mikið má ef duga skal. Með beztu kveðju.
Bumba, 4.9.2008 kl. 07:31
Nonni minn, ertu ekk í lagi, ég sem safna??????? Hvaða útskorna stól settirðu bara út á götu si svona!!!!!!!!! Ég hefði bara viljað komast í þessa poka, þú sem ert alltaf, eða varst svo flottur í tauinu þarna í Malaga, þegar við vorum með Pólyfonkórnum!!!!!
Meina það, bara si svona, ég ætla bara að vona að þú hafir ekki selt kamínuna í Hólskoti???????? Þá færðu á baukinn..............
By the way: Hvaða liti notaðir þú stofurnar þínar?????
Er þetta kannske óperusöngvaragenið, sem kann að sjá ekki eftir?
Kannske að gera sér grein fyrir að sá tónn, sem farinn er verður ekki bættur????
Mér datt það svona í hug. Kysstu alla í Amsterdam frá mér.......
Sólveig Hannesdóttir, 4.9.2008 kl. 22:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.