1.9.2008 | 22:58
GLIMRANDI DAGUR.....
Við vinkonurnar fórum á laugarvegs- og skólavörðustígsrölt í dag, í blíðviðrinu sem öllum er kunnugt. Minn uppáhaldstími minn er haustið, og hefur alltaf verið. Það versta með mína vinkonu að hún vildi ganga sólarmegin götunnar, en það eru fleiri, eiginlega mjög margir. Og eiginlega er þá of heitt fyrir mig. Við drukkum kaffi og með því í miðbænum, og gerum við þetta alltof sjaldan. En það var þessi góða jarðarför sem rak okkur af stað.
Við fórum í sitthvora áttina á heimleið þar sem ég ætlaði í Bónus á Laugavegi og hún á fund að hitta aðrar konur. Með Bónuspokann settist ég á bekkinn, beið bíls. Vorum við þar þrjú, tveir menn og ég. Annar var öldungur, en hinn fastagestur á bekknum. Það má segja að gætt hafi ,útlitslega séð, gríðarlegur mismunur. En þó einhvert samræmi, eftir á að hyggja, við fórum nefnilega að tala saman um hluti sem brann á okkar vörum, og við vorum bara heilmikið sammála. Öldungurinn var elztur, reffilegur karl, ég svona semi-öldungur, síðan sá yngsti sem var á óræðum aldri, en hann var greinilega fastagestur þarna. Fastagesturinn var með vökva með sér í kókflösku, sem ilmaði, síðan var hann með trefil, til vonar og vara, öldungurinn var uppáklæddur eins og sagt er í dag, og ég líka, stungum við töluvert í stúf við hvort annað. Ég fann að þetta var góður selskapur sem ég var í og við ræddum eins og við hefðum sést í gær, sá yngsti var eiginlega skýrastur af okkur þrem, ég veit ekki hvert okkar skemmti sér best, maðurinn með kókflöskuna, konan með bónuspokann, eða öldungurinn, bíllinn var lengi á leiðinni, og var ég eiginlega fegin. En mikið hefði verið gaman ef ég hefði verið með myndavél, þó ekki hefði verið hægt að fanga hið andlega augnablik, hefði þetta orðið góð mynd...................
Athugasemdir
Sæl vinkona. Falleg frásögn og er sko synd að ekki skyldi vera myndavél nálægt. Hlakka til að hitta ykkur hjónin þegar ég verð næst á Fróni. Með beztu kveðju.
Bumba, 1.9.2008 kl. 23:10
Þetta hefur verið unaðsstund í Kjörgarðssól á Laugavegi. Sé ykkur í anda og langar helst að festa ykkur á trönurnar; þær liggja bara brotnar niðrí bílskúr. Geymi myndina í huganum, festi hana kannski síðar .....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.9.2008 kl. 22:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.