MINNISVARÐI Í NARVIK, NOREGI, sem ekki voru í lífeyrissjóði.......

skann0002Þessar konur eru á leið að bryggjunni, til að taka á móti sínum mönnum, sem tóku að sér það erfiða starf að vera fiskimenn á sjó, þær áttu allt sitt undir atvinnu manna sinna, skyldu þeir koma, alla vega hafa þessar konur séð sína menn, gleðin er slík í myndinni.

   Þessar konur voru örugglega ekki í lífeyrissjóði, þær hafa ennfremur ekki getað verið í námi með sinni vinnu, þeim var ekki einu sinni skammtað á efri árum, og þess vegna ekki hægt að draga af þeim aftur.

   Þær voru ekki í neinu stéttarfélagi, þessvegna útilokað að fá út úr ríkiskassanum fé til óábyrgra athafna.

   Þær hafa örugglega ekki verið í bæjarstjórn.

   Þær eru greinilega ekki í fötum sem keypt eru út á krít, ríkiskassans.

   Ég geri ekki ráð fyrir því, að þær hafi haft efni á að borga sig inná öldrunarstofnun, hvað þá geta valið um stað þess eðlis.

Ég geri fastlega ráð fyrir að þær hafi ekki getað séð fram á ævikvöld án áhyggna. 

En ég er einhvernveginn svo viss um að þær eltust með reisn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær lýsing

Anna (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband