7.8.2008 | 19:34
HLAUPABÓLA
Salvör Sesselja brá útaf venjulegri hegðun, og fór að verða ergileg og lystarlaus. Skýringin var hlaupabóla sem út kom um allan skrokk.
Hún var fljót að hrista af sér slénið, og brá á það ráð að setja upp þetta svitaband sem hún hirti upp einhversstaðar í íbúðinni. Við héldum henni inni í nokkra daga, en dvöldum úti á svölum í mátulegum hita, með þokuslæðingi, og var alltaf sami krafturinn í henni.
Við ýmiskonar tiltektir, hér og þar.




Athugasemdir
Vona að hlaupabólan hafi hlaupizt á brott ( .... ohhh, svo sniðug ....)
Búin að lesa færslur og skoða myndir frá Kanarí, þetta er greinilega alger upplifun með ungviðinu. Góða kveðjur til ykkar allra!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.8.2008 kl. 22:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.