3.8.2008 | 22:06
PISTILL ÓLAFAR NORDAL 31.JÚLÍ Í MBL.
Ég fletti auðvitað í gegnum öll dagblöðin eftir fríið mitt, og rakst meðal annars á þennan ágæta pistil Ólafar. Ég varð kát að sjá að kornung manneskja skyldi velta málefnum eldri borgara fyrir sér. Ólöf nefnir meðal annars að fólki finnist miserfitt að eldast, og skv. minni reynslu úr starfi mínu, eru það svo sannarlega orð að sönnu. Og sagt er að það fyrst reyni á manninn, þegar að því kemur. Ég er sammála Ólöfu um að allir vilji væntanlega eiga áhyggjulausa daga, en einhvernveginn held ég að það sé hreinlega ekki hægt að eiga áhyggjulausa daga þannig lagað. Eru ekki smááhyggjur merki um lifandi manneskju??, og er það ekki hinn venjulegi einstaklingur sem ber slíkar tilfinningar innra með sér??
Ólöf bendir á að maður á áttræðisaldri sé í forsetaframboði í USA, og ég held að brýna verði fyrir Íslendingum, að það er ekkert samasemmerki á milli eldri borgara og hálfvita. En ég verð að opinbera það hér, að stundum finnst mér framkoma við okkur, vera stundum í þeim dúr, þegar ég þarf að þiggja afgreiðslu og þjónustu hér og þar. Unglingadýrkunin hefur verið mögnuð, alveg ótrúlega, og það er vel skiljanlegt, þannig verður það.
Ólöf talar um að við séum eitt mikilvægasta pólitíska verkefni nútimans, og að reynt hafi verið að byggja upp velferðarkerfi, og reynt hafi verið að auðvelda okkur að halda áfram á vinnumarkaði áfram. Já við erum svo sannarlega pólitískt verkefni nútímans, og langar mig að vitna í grein Björgvins Sigurðssonar þann 14.júlí, þar sem hann talar um hið pólítíska loforð Samfylkingarinnar, þegar hún lofaði okkur 226.000 pr. mánuð í áföngum. Hvar eru þessar hækkanir? Eru ekki margir aldraðir og öryrkjar sem rétt hanga í 100.000 ? og eru ekki margir aldraðir og öryrkjar sem nú fá seðil frá Tryggingarstofnun þar sem einstklingar eru hreinlega beðnir um að skila, svona eins og nokkrum tugum þúsunda? Og varð ekki einhverjum öldruðum á að næla sér í einhverja aura, sem nú vinsamlegast hann er beðinn um að skila einnig, fyrir og utan ef einhverjum hefur tekist að vera með smá sjálfsbjargarviðleitni, þá er hann kyrfilega skammaður af almannatryggingakerfinu. Björgvin hefur þá skoðun að Samfylkingin eigi að slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn, þar sem þetta loforð hefur engann veginn verið efnt. Það hafa engar hækkanir að viti orðið, allavega ekki sem pólitískt loforð, það er þannig því miður. Það er ótrúlegur bútasaumsruglingur á almenna kerfinu. Og það er almanna tryggingarkerfið sem er að bæla eldri borgara niður, ég vildi óska að eldri borgarar væru ekki bara pólitískt verkefni, nokkurs konar punt frambjóðenda í kosningum, heldur værum við STERKT PÓLITÍSKT AFL...... ÁFRAM ELDRI BORGARAR..........
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.