ÁFRAM STELPUR...

   Já það er þetta með þreytuna, sem eiginlega er orð sem er tabú. Oft heyrir maður fólk tala um að hafa verið þreyttur á hinum og þessum tíma, en ekki meðan á þessari þreytu stendur. Það er bara í eðli þjóðarsálarinnar að standa meðan stætt er.

   Ég er bara á móti því, að ekki sé litið á þreytuna, sem eðlilegt ástand, og hún sé af hinu góða. Ekki eitthvað óeðlilegt ástand, eða sé merki um veikleika einstaklingsins. Hamagangurinn er slíkur, og enginn maður með mönnum nema hannn geti sagt "frá hversu mikilvægur hann sé", gert er lítið úr þreytunni, hún kölluð ýmsum niðurbrjótandi nöfnum, að einstaklingur sé þungur núna og svo frv.,   Nú er ég svona aðeins að nálgast það sem ég hefi svo óskaplegan áhuga á en það er hvíldin, hversu nærandi hún er, og þá ekki með því að geysast um hálfan,   heiminn, í skíðaferð, í sólbað, í etta og í hitt, heldur að hvíla sig innra með sér, leita inná við, og viðurkenna þörfina.

   Hvíld er hlé, viðurkenning á þreytu, og framkvæmd hvíldar, hugar og líkama.  Kornabarnið endurnærist við svefn, Móðir mjólkar betur ef hún nær þeirri kunnáttu að hvílast.   Sem þá líklegast er lærdómur, og ásetningur.  Dagleg vinna.

   Margir geta ekki náð slökun öðruvísi, en að hafa gengið frá heimili, algerlega í reglu, og líður  vel þannig, ég held aftur á móti að þessu sé öfugt farið, held að málið sé að láta sér standa á sama þó einhver óreiða sé á hlutum, þannig lagað, greina í sundur gildin, hvað sé tildæmis fysta mál þessa og þessa stundina.  Og virkilega koma auga á það sem búið er, og vel gert, og gefur okkur tilefni til slökunar, osfrv...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Sannlega, sannlega segi ég: þú hefur lög að mæla Sólveig. Skrifa seinna lengra svar til þín; nú eða bara spjalla við þig yfir tebolla!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.6.2008 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband