26.4.2008 | 18:36
ENN ATHUGASEMD VIÐ HUGMYND BJÖRGÓLFS.
Morgunblaðið hefur talað við hagfræðinga, sem meta hugmynd Börgólfs þannig að útfæra þurfi hugmyndir um svokallaðan þjóðarsjóð áður en hægt er að taka afdráttarlausa afstöðu um ágæti hugmyndarinnar...(leturbr mín.),
Ég hef áður skrifað færslu varðandi hugmynd Björgólfs, en er svosem ekki hissa á að hagfræðingar komi með skoðanir sem þessar, og allt í lagi með það, en afhverju hafa hagfræðingar ekki komið með athugasemdir sem gætu tildæmis eitthvað leyst í fjármálum landsins.
Rætt er um að útfæra þurfi hugmyndina betur, til að segja til um ágæti hennar, og þar fram eftir götunum.
Það er vitað mál, þetta gerist ekki á einum degi. En afhverju grípum við ekki fegins hendi þessa hugmynd Björgólfs, og segjum bara " Takk fyrir Björgólfur", "það var mikið".
Á að leggja þessa hugmynd til samþykkis nefndar, sem ekki hefur sagt neitt sérstaklega stórtækt undanfarin ár, alla vega hefi ég ekki orðið vör við það.
Einhvernveginn finnst mér þetta hallærislegt, og sem fyrr eitthvað heimóttarlegt, að svara með þessu móti, eitthvað vandræðalegt, eins og "það er auðvelt að vera vitur eftir á......"
Er viðskiptadeild háskólans svona lengi í kaffi eða hvað??????
Það er semsagt ekki hægt að stofna svona sjóð "Í augnablikinu"...........
Megum við vera að því að bíða?????, útfæra þarf hugmyndina strax.....
Bendi á grein Bjarna Ólafssonar í Mbl. í dag. ágæt grein.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.