AÐ KOMA Á ÞJÓÐARSJÓÐI.

Bitastæð frétt í Mogganum í gær, frá Björgólfi. Það eru akkurat svona menn sem eiga að taka að sér fjármál landsins, og mér er búið að finnast það í mörg ár. Maður með gífurlega reynslu, minnisstæður mér frá Hafskipsmálinu svokallaða, og svo er ekki hægt að láta manninn hafa garðinn umhverfis Fríkirkjuveg 11. Ég skil það ekki alveg, nema vera skyldi vegna bílapláss sem hann mundi vanta, og hvað með það. Ef ég treysti einhverjum, þá treysti ég Björgúlfi til að gera það á þann smekklegasta hátt sem einstaklingur mundi gera.  Hann hefur sýnt það.

   Ég veit ekki til þess að nokkur hafi styrkt (sponsorað), verkefni af listrænum, menningarlegum toga eins og hann.  Okkur vantar viðskiptamenn í stjórnun fjármála landsins, með mikla reynslu, en ekki einhverja dillidanta sem hafa verið að vinna sig upp í hinar og þessar stöður, og þær eru margar stöðurnar, og margir, mjög margir sem hafa grætt einum of mikið, og þá ekki vegna sinna eigin verðleika, heldur tækifæra sem líkjast lottói, eða bingói.

   ÞJÓÐARSJÓÐUR er eina vitið, til að geta tekið þátt í viðskipti við umheiminn, og sjálfstæðri efnahagsstjórn, eins og Björgólfur segir.  En stóra málið með okkur hér, að við viljum alls ekki leggja fyrir, og gerum stórt grín að Norðmönnum fyrir að eyða ekki olíusjóðnum sínum.  Olíusjóður Norðmanna er þeirra þjóðarsjóður, eins og við vitum, ef við viljum bara horfast í augu við það að við erum ekki þau klárustu í heiminum.  Gríðarlegur fjöldi af Norðmönnum fer á eftirlaun eftir nokkur ár, þá verður að taka af olíusjóðnum, annars geta þeir ekki greitt þau eftirlaun sem búið er að semja um við launþega, þegar vinnu sleppir.   Norðmenn hafa hækkað stýrivexti sína, þó ekki sé það nema brot af okkar.  Við verðum hreinlega að eignast þjóðarsjóð, margt tekjuhátt fólk er víða vinnandi, og ég er stundum að hugsa, hvar ætlum við að taka eftirlaunin sem búið er að semja um.   Þar er víða misrétti.

   Ég vil:   ´BJÖRGÓLF GUÐMUNDSSON Í FJÁRMÁLARÁÐHERRAEMBÆTTIÐ, OG ÞAÐ STRAX....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband