24.4.2008 | 18:18
KRISTJÁN 100 ÁRA
Gríðarleg stemning var í götunni í morgunn kl 1030, hluti af skólahljómsveit Kópavogs mætti í götuna til Kristjáns, sem býr "ská á móti" okkur hér. Það var auðvitað Erla vinkona mín sem stóð fyrir að þetta yrði gert. En það var fallegt að sjá þennan aldna mann, svona vel á sig kominn. En hann hugsar sjálfur um garðinn sinn, sem er einn snyrtilegasti garðurinn í okkar götu, Hlégerðinu í Kópavogi. Gatan hefur eiginlega alltaf verið kölluð fyrir ofan brekku og í brekku, eiginlega tvær götur í huga fólksins í götunni. Bragi maður Erlu sagði nokkur orð.
Undirrituð keypti ódýrar munnhörpur handa smáfólkinu sínu og kastaníettur, svo hægt væri að framleiða fleiri hljóð. Vöfflur hjá okkur á eftir. Eftir stækkun fjölskyldunnar (4 fluttu heim frá Portugal) hefi ég eiginlega ruglast eina ferðina enn á uppskriftarstærðum, en það er alveg að koma, ég hef gott af því að endurhugsa smáhluti í heilanum mínum.
Eftir erilsaman vetur er gott að halda á suðlægari slóðir, og eiginlega óskaplegur luxus að geta veitt sér það. Ég verð að segja eins og skáldið T.S. Elíot, (man ekki hvar, get þessvegna ekki tilvitnað), en hann sagði að apríl væri erfiðasti mánuðurinn í hans huga. Ég tek undir það, en ég hélt að enginn hefði þessa hugsun. Mér líður ekki vel þegar jörðin er ber, og köld, og hrjóstrug, eftir veturinn. Þessvegna hefi ég valið þennan tíma mjög oft.
Seinustu ár hef ég plantað út reiðannar ósköp af túlípönum, eitthvað minna setti ég niður í haust, en mér sýnist þetta vera að skila sér. Þegar ég kem heim sé ég hvaða litir eru, og þeir gefa mér ómælda ánægju þar til annað lifnar við.
Mæli með allskonar laukjurtum fyrir þá sem hafa hvorki garð né svalir, hafa nógu mikið t.d. af Amaryllis í pottum, helst fleiri en 3 potta.
Túlípana í marga potta á svalirnar, þar sem eru svalir.
100 túlípana þar sem er garður.
Sumarkveðjur til allra, jafnvel þó rigning verði. Nú er það bara álpappírinn í svefnherbergisgluggann fyrir okkur sem sofum ekki í sumarbirtunni, það dugar eiginlega ekkert annað, þó ekki sé það fallegt......
Athugasemdir
Sá þetta í fréttunum, frábært framtak.
Bið að heilsa öllu familíuliðinu!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.4.2008 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.