SUMARDAGURINN FYRSTI.......

  • svei mér þá var ekki bara sumardagsfyrstaveður í dag, gott ef ég komst ekki í gríðarlegastemningu og stuð, lágskýjað, rok, og grámygluleg. Eins og svo oft er.Ég er alveg ákveðin að mæta kappklædd út og með fána og hitt og þetta, dugar ekkert annað en að leika leikritið, SUMARDAGURINN FYRSTI, ...
  • Ég rauk út í garð í dag með poka og réðist að skriðsóleynni sem virðist vera eina plantan sem fattar þessi tímamót, tók gamla stöngla sem óprýði er að  tók til að framan verðu. Jújú það eru að koma upp fjölær blóm, en ósköp er nú jörðin köld, einhvernveginn var þetta samt auðveldara þar sem ég gallaði mig í rauðan galla og hvít stígvéli, til að lífga upp á þetta litaleysi tilverunnar í dag.
  • Fór auðvitað á kaffihús og sat lengi eftir ósköpin,  En eitthvað lítur þetta nú betur út hjá með eftir moksturinn, og einhverjir túlípanar kíkja nú bjartsýnir upp, það er gott, en eru samt gamlir laukar svo ekki er víst með blómstrunina.
  • Horfi útum gluggann....... jú það sést soldill munur, sem betur fer og nokkrir pokar eru komnir.
  • Best finnst mér þó að geta flúið landið mitt á þessum árstíma, til að upplifa hita, svo ég dríf mig bara til Spánar um helgina, svona aðeins á meðan gróðurinn er að taka sig það er svo erfitt að bíða eftir honum.
  • Hann er allavega kominn þar, og ég get prominerað strandveginn, og kannske gengið í fjöruborðinu, og hlustað á öldurnar þar, sem eru mér mikils virði, að finna þær brjótast á löppunum mínum, og þá fæ ég sand milli tánna, þetta er einhver fílingur sem hentar mér.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndisleg færsla. Til hamingju með sumarið elsku frænka og takk fyrir bloggsamskiptin í vetur!  Gaman að vera í svona skriflegu sambandi!

Góða ferð til Spánar og sprikklaðu vel í sandinum! 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.4.2008 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband