PÓLYFONFÉLAGIÐ. PÓLYFONKÓRINN. AFMÆLISHÁTIÐ.

Kórinn  150sem stofnaður var fyrir 50 árum, fagnaði tímamótunum á Grand Hotel s.l. laugardag, sú hátið var afar óvenjuleg, og þá fyrir það að allir sem þar voru tóku virkan þátt í hátíðinni. Í rauninni var þetta 150 manna fjölskylda samankomin, með allskonar gleði í farteskinu.  Ættarhöfðinginn Ingólfur Guðbrandsson með alla sína fjölskyldu 150 manns.  Það voru einnig þessir afkomendur hans sem hylltu hann á ýmsan máta vegna afskipta hans af tónlistarmálum Íslenskra unglinga árið 1958, eða jafnvel fyrr.  Stofnaði sönghópa í Laugarnesskóla, var tónlistarkennari í Kvennaskólanum og flutti nokkra nemendur þaðan í kórinn í Laugarnesi.  Þarna var kominn maður, sem maður tók einhvernveginn mark á og hlýddi.  Þessi hópur fékk svo nafn 8.april 1958, Pólyfonkórinn, vegna þeirrar tónlistar sem verið var að kynna til leiks, og lagði alltaf áherslu á, fjölraddasöng, andstætt orðinu homofon.   Samhljómurinn í fyrirrúmi, laglína hverrar raddar í rauninni sjálfstæð, líkt og í keðjusöng, og ekki dugði að syngja óhreint, og mikið atriði að ná samhljómnum, pólifóníunni.

   En nóg um það, alveg er það sérstakt að sjá svona stóran hóp, brosandi útí eitt, syngjandi og kærleikurinn skein frá andlitum.

   Saga kórsins hefur verið gefin út í ágætri bók, þar eru rakin helstu stórvirki kórsins, og myndir á hverri síðu.  Upptökur hafa nú verið gefnar út á geisladiska, upptökur sem  gerðar voru af ríkisútvarpinu, í þessari bók eru m.a. myndir frá ferðum kórsins til annara landa, þar sem unnin voru talsverð stórvirki, fólk á öllum aldri lagði hart að sér, bæði við stífar æfingar, heima og erlendis, en það er stórkostlegt að það skuli hafa tekist að ná þessum stóra hópi, á öllum aldri.

   Svona ættarmót er ekki hægt að toppa.............................

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Frábær upplifun sem þetta hefur verið. Ingólfur er sannarlega stórkostlegur brautryðjandi. Já, polifónían er dásamlegt fyrirbrigði, sammála þér í því. Í söng og í lífi .....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 1.4.2008 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband