11.3.2008 | 10:51
IVANOV............BRÚÐGUMINN
Dugnaður okkar hjóna var mikill um helgina, .þannig lagað, enda hið besta ferðaveður úr Kópavoginum til höfuðborgarinnar. En við áttum miða á IVANOV og var ég alveg hugfangin og er enn í dag þriðjudag. Ekkert, verð ég að segja hvílir mig jafnmikið og að fara í leikhús. Að vísu er ég ekki gagnrýnin, þar sem ég er eiginlega alæta á þessa hluti, og hef verið lengi. Kannske er ástæðan sú að fara í leikhús, vekur upp gamlar og góðar minningar, en ég var svo lánsöm að vera sætavísa í sal þjóðleikhússins, sem ung manneskja á sjötta áratugnum.
En IVANOV svíkur engann, leikmyndin alveg stórkostleg, og ég gat ekki séð nokkurn einasta veikan hlekk í sýningunni, ég hef verið að hræra í mínum heila og ekki getað fundið neitt sem vert er að benda á allavega ekki á prenti. Að vísu getur eitthvert smáatriði pirrað mann, en þarna var svo mörgu komið áleiðis. Mannlegar pælingar djúpar, en settar fram á léttan hátt, og einfaldaðar fyrir okkur sem viljum einfalda til að skilja.
IVANOV sem sorgbitinn maður í höndum Hilmis Snæs, eru ógleymanleg atriði. Ég verð að segja eins og er, þó enginn leikari vilji kannske láta miða sig við næstu kynslóð á undan, en þarna sá ég Gunnar Eyjólfsson fyrir mér einnig í leikritinu "Horfðu reiður um öxl", leikur Hilmis í IVANOV er jafn minnisstæður og áðurnefndur leiku Gunnars á sjötta áratugnum. Það segir mér mikið. Leikmyndin ótrúlega vel leyst.
Ekki var verr að skella sér daginn eftir á brúðgumann í annað sinn, (Soldið dýrt.... en), sem að mínu mati toppar allar íslenskar myndir, þegar allt er tekið með. Ég er mjög hrifinn af húmornum í þessari mynd, fullkominn farsa og aulahúmor, unnin af fagmönnum. Hárfín atriði sem koma manni á óvart, að ég tali nú ekki um, hvernig mannlegum þáttum er skilað í hverri persónu.........FÁDÆMA GOTT FÓLK SEM VIÐ EIGUM.
Athugasemdir
Oh, hvað verður gaman, ég á þetta alltsaman eftir!!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.3.2008 kl. 18:36
Dríbbbðu þig............................
Sólveig Hannesdóttir, 14.3.2008 kl. 22:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.