Stefán Islandi

   Ég var svo lánsöm að kynnast þessum manni. Það var um 1969, kynntist honum þá sem heimfluttum manni, sem fékkst við kennslu. Kynntist einnig konu hans, Kristjönu, og áttum við mjög góðar stundir saman. Hann hafði mjög margt umfram aðra menn og konur. Kom frá Kaupmannahöfn, hafandi verið ráðinn þar við Óperuna þar til margra ára, og ég bar mjög mikla virðingu fyrir þessum manni, sem fluttist hingað til Íslands, eftir þessa löngu veru sína í Kóngsins Kaupmannahöfn. Stefán hafði framkomu sem var mjög heillandi, beinn í baki, án allrar tilgerðar, einlægur, en hafði ennfremur sterka sjálfsvitund.

   Eitthvað sem var svo lærdómsríkt. Hans vera í Kaupmannahöfn var mér kunnug, bara frá heimili mínu, eitthvað sem ég nam frá móður minni, við vissum alltaf systkinin hver þessi maður var, og vissum vel vegna hvers hans nafn var í hávegum haft á Íslandi.

   Þegar við Friðbjörn gengum í hjónaband, forðum daga, í Víðimýrarkirkju í Skagafirði, um sumarið 1969, var Stefán svaramaður annars hvers okkar, ég man ekki hvurs.... Skipti engu máli, en alla vega var hann meðal okkar sem svaramaður. Höfðum við mætt honum á Sauðárkróki, þar sem hann spurði okkur hvert erindi okkar væri á Króknum, vorum við ekki lengi að svara, en jafnframt tilkynntum honum, að okkur vantaði svaramann, var okkar maður ekki lengi til, lyftist allur, og bauð sig fram.  Þeir vinirnir Eyþór Stefánsson og Stefán Íslandi, voru miklir vinir, þekktum við Friðbjörn hann Eyþór fyrir.   ´Við Víðimýrarkirkju hittum við Stefán, og gekk brúðkaup í garð.... Það varð óskapleg veisla því miður treysti ég mér ekki til að birta hana hér á bloggi, en ég veit að margir muna hana, og læt ég það nægja........ Alla vega í bli...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gaman að þessu. Ég þekki Sigrúnu, dóttur Stefáns, vann með henni. Hún var (og er örugglega enn) einstakur húmoristi. - Já, maður man nú þegar Víðimýrarbrúðkaupið var haldið, þó ekki væri maður aldinn að árum .... Skemmtilegar pælingar þínar um Skagfirðinga. Ég vinn með einum og hann er einmitt svona, alveg gersamlega blátt áfram og svona einhvern veginn þægilegur og einlægur. Hverju skyldi þessi mismunur á fólki eftir landshlutum sæta, fyrir utan gena-einangrunartilhneigingar?? Hef oft hugsað um mismuninn á Austfirðingum og Vestfirðingum t.d. Þar er ógnarmunur á ferð. Ræðum þetta næst .... :)

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.2.2008 kl. 18:34

2 identicon

Sæl Sólveig.

Já,það hefur verið fengur að kynnast svona Heimsmanni sem hann var.

Fyrir  utan sönginn.

Kveðjur.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 05:18

3 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Sæll Þórarinn,  er ekki alltaf fengur að kynnast góðu fólki. Stundum eru einar minningar sterkari en aðrar, er það ekki.  Takk fyrir innlitið. SH

Sólveig Hannesdóttir, 2.3.2008 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband