17.11.2007 | 21:49
Meira um árstíðirnar.
Held ég hafi nefnt ársíðaleysið á Íslandi, búum við ekki við árstíðaskipti? Ég er ansi hrædd um það, þau eru heimatilbúin. Núna til dæmis er Jólavertíðin að fara í gang, dagblöðin þyngjast, og komast vart í póstkassann hjá okkur allavega. Og eitthvað losnar um budduna hjá okkur. ´Hún er nú svosem frekar laus teygjan á minni, en ég fór í byggingarvöruverslun í gær til að skoða eldhúsvask, það var löng leið. Þar gekk ég fram hjá ymsum hlutum, bollastellum, skrúfjárnum, málningarrúllum (vel að merkja á útsölu), ryksugum og sleifum. Ég staðnæmdist við gjafakassa, óskaplega fallegan, gott ef ég hefi bara ekki séð svona kassa í gamla daga, sem innihélt karamellur eða eitthvað góðgæti þess háttar. Ég stóð rígnegld við körfuna, í þessum skrautlega málmkassa var borvél, svei mér þá ef mig bara vantaði ekki borvél við þessa sýn, það yrði nú aldeilis gaman að eiga svona kassa með svona actionsgrip í. Ég komst einhvernveginn framhjá þessum ósköpum, og gekk út án vasks. Labbaði mér í nærliggjandi verslun, þar fengust einungis hreinlætistæki, allt saman mjög fallegt, hvert öðru fallegra, ég skoðaði auðvitað alltsaman þarna inni, baðkör, krana handlaugar og ég veit ekki hvað. Vildi athuga nánar með vaskinn, en var með þessa jólainnkaupstilfinningu sem kemur yfir suma, og var eiginlega mjög heppin með að geta ekki gengið út með þessar vörur sem ollu ofbirtu í augum mínum........ Ég er ekki enn búin að ákveða vaskinn, þar sem ég á kost á öðrum gefins, svo ég er ekki alveg sjálfri mér alveg samkvæm á þessum árstíma, þe jólavertíðarárstíðinni.
Athugasemdir
María Anna P Kristjánsdóttir, 18.11.2007 kl. 18:24
Ó, hvað ég skil þig, að labba vasklaus útúr svona ógnarofframboðsdótabúð. Ferðu ekki bara til Jensen&Bjarnason? Fínir vaskar og fín þjónusta.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 18.11.2007 kl. 21:59
Ég var nú bara búin að gleyma honum, ég hefði örugglega keypt bara sápuskál þar á baðherbergið sem ég kem allsekki fyrir...
Sólveig Hannesdóttir, 19.11.2007 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.