AUSTURHEIMURINN

   Er mér ekki nógur kunnugur nema í gegnum hinar daglegu fréttir, sem oft eru einsleitar. Einhvernveginn snúa hliðar upp sem okkur eru hreinlega skammtaðar.  Ég bjarga mér stundum með því að fara inná erlend dagblöð, og þá á meginlandinu.

   En það er nú samt þannig, að ég hefi einhvernveginn heillast af bókmenntum fjarlægra landa, og byrjaði það með lestri bókarinnar THE HARAFISH" eftir NAGUIB MAHFUZ Egyptann, sem fékk Nobelinn einhverntíma eftir ´'95.  Harafish er þýdd á ensku 1992 í USA.

   Ég heillaðist við lestur þessarar bókar, sem látin er gerast í Landi Eyðimarka og þróun samfélags. Langt aftur í fyrndinni. Í Persíu og þar í kring. Þess má geta að ég vildi endilega að góður vinur minn læsi þessa bók, en hún hentaði honum ekki.

   Þessi bók olli forvitni minni austur eftir. Ég hefi lesið nokkrar síðan, frá Afganistan, Kína, og er núna að lesa bókina sem verið var að gefa út af JBV útgáfunni  Í LANDI KARLMANNA.  Ég er mjög stutt á veg komin svo ég dæmi hana ekki.   En ég vil helst ekki lesa nema eina á ári. Ástæðan er sú að þær valda mér alltaf einhverri sorg í hjartanu og verð ég hálfpirruð að lesa um hluti, í heiminum mínum, sem eru að gerst seint á 20. öldinni, og núna meðan ég sjálf lifi í eiinhverskonar forréttindalandi. Við erum forréttindafólk hér á Íslandi, ég er sannfærð um það, en ég tek ekki alveg undir þær yfirlýsingar okkar að við séum best, og alltaf best í öllu. Stundum hefur fólki fundist ég vera fara með helgispjöll þegar yfirlýsingar mínar í garð þjóðar minnar eru sem mest sterkastar.

   Í LANDI KARLMANNA er landið Lýbía, undir ógnarstjórn Gaddafhis, sem er samtímamaður okkar.

   Gaddafhi sjálfur er lifandi, býr í einhverju tjaldi í Lýbíu, við alsnægtir, hugsað er um hann og afkvæmi hans hafa stundað nám í Oxford, svo karlinn er svosem ekkert ílla haldinn þrátt fyrir allt.

   En ég held áfram að lesa þessa tilfinningamiklu bók, meðan við látum myrkrið angra okkur, sem gengur mjög fljótt yfir. Við vitum svo lítið um hvað er að búa við ógnarstjórn...............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband