15.10.2007 | 18:41
ORKUVEITAN......
Það voru slæmar fréttir til Berlínar að heyra frá stjórnarbyltingunni í Reykjavíkurumdæminu, ég var eiginlega mjög fegin að vera í Berlín. Bara si svona, flokkurinn felldur. Alger skipti innan stjórnar. Ekki er annað sjáanlegt að allir séu voða kátir með að vera komnir með völdin í sínar hendur. Snýst kannske pólitík um það eitt að vinna, sigra andstæðinginn, svona rétt eins og í kappleik, hvaða kappleikur sem það er, og er ég ekki að finna að keppnisanda. Bara fella þá og taka svo við.
Það veit sá sem allt veit að ég hefi fulla samúð með nýrri stjórn, það getur ekki verið neitt varið í það að taka við undir þessum kringumstæðum, en ekki er það að sjá á nokkrum manni, skv. myndum, allir í banastuði yfir lottóvinningnum.
Ég hefi ekki hundsvit á pólitík, því miður, eiginlega alltaf öfundað þá sem um hana geta rætt með góðum og gildum rökum á báða bóga, Er mjög oft sammála síðasta ræðumanni, og vil helst kjósa alla eftir þeirra ræður þegar á eldhúsdagsuræður er hlustað.
Kannske er það þessvegna sem maður er bara allsekki sama, hallærislegt að henda út stjórn, sem átti eftir að sanna sig, og missa Dag úr stjórnarandstöðu, sem stóð sig mjög vel...... að mínu mati, tek enn fram að ég hefi ekki vit á þessu. Dagur fínn þar sem hann var og Vilhjálmur þar sem hann var.
EN ég verð að gera orð góðs vinar míns að mínum HVERS VEGNA ER ORKUSTOFNUN Í SVONA ÚTRÁSARHUGLEIÐINGUM Í ÞAÐ HEILA, Á HÚN EKKI BARA AÐ HUGSA UM SITT FRUMHLUTVERK? Og ætla bara ekki leikskólarnir að huga að útrásarmöguleikum, þeir eru hvort eð er reknir með halla, leikskólakennarar eru hvort eð er svo ílla launaðir, að það mundi margborga sig að athuga útrásarmöguleika þar, og bjóða síðan kennurunum að gerast hluthafar, og taka þátt í leiknum, matadorinu. Skiptir ekki máli með krakkana, þau koma hvort eð með að leggja útrásar stefnuna á oddinn, hvað annað, það getur ekki verið að það þurfi að kenna þeim neitt bull, þau geta bara lært matador og það almennilega......
Það verða að koma einhver mörk, stórkostlegt hvað okkur hefur tekist hvað varðar útrásina og vonandi höldum við lygnum sjó í framtíðinni, hvað varðar þau mál. En verndum vatnið okkar og orku og hinn almenni vísitöluíslendingur greiðir bara alltof mikið fyrir þessa orku, og við höfum ekki efni á þessari útrás, og hryllingur til þess að hugsa ef þessi orka færist yfir á nokkra einstaklinga.
PS Skyldi skúríngakonan hafa fengið tilboð um að eignast hlut í OR???????????
Athugasemdir
--------- og svo heldurðu því fram, að þú sért ekki pólitísk og hafir ekki hundsvit á pólitík....??
EN: Vertu velkomin heim, elsku frænkan mín, gott að þið eruð komin heilu og höldnu. Maður fylgist með sínu fólki. Það er mín pólitík!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.10.2007 kl. 21:39
Ég vona að þú vitir að ég keypti þrenna skó. Einn bloggari góður nebbnilega ræddi um kaup okkar Íslendinga erlendis. Ég er alltaf svo veik fyrir búðum, en þarna voru þessir líka vönduðu skór á akkurat helmingi lægra verði, svei mér þá ef ég hefði bara ekki gert stærri verzlun ef ég hefði þorað, ég er stundum svo varkár í þeim efnum, og oftast nær á vitlausum stundum. Takk elskan, það var synd, að þú skyldir ekki vera þarna...........
Sólveig Hannesdóttir, 15.10.2007 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.