TVÖ KVÆÐI EFTIR ÞÓRARINN ELDJÁRN.

   Merki.

Á miðri blindhæð var skilti sem einhver hafði snúið smátt og smátt eins og stýri, líklega rangsælis, uns örin vísaði beint upp.  Ekki get ég neitað því að nokkurt fát kom á bílstjórann,en hann missti þó ekki tökin, heldur fór réttum megin við skiltið eins og ekkert hefði í skorist. Þá var hlegið aftast í rútunni. Ég leit um öxl og sá að það var drengur sem eitt sinn var með mér í sveit, Pétur Krapotkin fursti.

 

  Stytt upp.

Gatan er lakkrísborði

sem bílarnir sleikja

 

Þota spinnur

pípuhreinsara

á nýbláan himinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hrikalega flottar líkingar....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 4.9.2007 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband