18.8.2007 | 20:56
Kúluna á kofana.............
Hvað ég var ánægð með að sjá og lesa þessa grein eftir Guðjón sagnfræðing, sem hann skrifaði í Lesbók Mbl.,við verðum að halda vöku okkar með Laugaveginn, og það strax. Guðjón nefnir verktaka og fjármálamenn í byrjun greinar og finnst mér mjög gott að báðar þessar stéttir séu með annars verður ekkert gert þarna. Við þurfum bara vera með reglur um það hvernig við ætlum að byggja þennan veg upp. Guðjon talar líka um spekulanta, en þurfum við ekki á þeim að halda við spekulationirnar um Laugaveginn? En ef spekulantarnir skilja ekki menningarsöguleg verðmæti í okkar gömlu húsum, verðum við, þá borgin, að hafa mjög skýran ramma um þessa götu. Þegar eru einhverjir spekkulantar farnir að tala um "moll", það á allsekki að vera leyfilegt. Þessi litlu hús sem við veginn standa falla mjög til þess, sem Guðjón er að segja, litlar verslanir, gallery, fyrir ýmsar listir okkar. Sjálf er ég óskaplega hrifin af hvernig Norðmenn hafa leyst þetta í Osló, það var það sem ég var hrifnust af þar í borg þegar ég kom þar fyrst. Dönum hefur ekki tekist að passa upp á miðbæinn sinn nema að halda honum í því horfi sem hann var. Þannig lagað.
Ég sé fyrir mér þessi gömlu hús sem byggingarlistamenn og sagnfræðingar velja.Rífa bakskúrana sem nóg er af á þessum slóðum. Byggja þessi litlu hús sem ganga inní önnur sem reist myndu verða bakvið og þá að hafa gler sem aðalbyggingarefnið. Þetta sér maður í Osló. Þar sem ekki yrðu byggð hús t.d. úr gleri, mætti hafa litla garða yfirbyggða. Framhlið ætti að vera sem líkust því sem var. Búið er að eyðileggja útlit mjög margra húsa með allskonar klæðningum, smekklausum, og útúrstinga glugga. Ég hefi ekki séð svona aðferðir í öðrum löndum, nema í Kaupmannahöfn, t.d. í Studiestræde, þar eru tvö alveg hræðileg hús, sem þyrfti að hamfletta. Við þurfum bara að hamfletta nokkur hús. Og við þurfum líka að setja nýja framhlið til dæmis á Kjörgarð, og annað hús sem er alveg eins, þar eru mistök í skipulagningu.
Stofnum nú ný Torfusamtök, númer tvö !!!!!!!!
Athugasemdir
Skráðu mig sem meðlim nr 2 - á eftir þér -

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.8.2007 kl. 02:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.