Sjálfstætt fólk, Gulla Rún, Villi, Jóhanna.

Það er annars ótrúlegt hvað hversdagurinn getur breyst. Ég í mínum óskaplegu rólegheitum, er alltíeinu farin að þvo 3 uppþvottavélar per dag. Það er eins og eitt venjulegt aðfangadagskvöld, ég sagði venjulegt aðfangadagskvöld. Gulla er komin, með álíka stemningu og þegar heil rúta kom í sveitina og allir fóru út á hlað að vinka.  Rythminn hefur aldeilis tekið mikinn kipp hér í Hlégerðinu, margir eiga afmæli á þessum tíma, og við erum bara orðin mjög mörg, þegar við komum saman. Svo mikið var haft í dag að ég pantaði Gunnar Jónasson hjá barna og fjölskylduljósmyndum ehf., ég gat ekki verið heppnari með ljósmyndara. Hérna lét hann sig hafa það að taka myndir af frekar kraftmiklum 7 krökkum í garðinum. Ég er ekki í vafa um árangurinn. Við erum öll óskaplega sjálfstæð, og kemur það mjög sterkt inn þegar eitthvað stendur til "allir stjórna öllum", síðan er mikil rekistefna og miklar umræður um hver eigi nú eiginlega að stjórna hverjir eigi að stjórna.   Það er þá þegar sú kreppa kemur að ég fer að taka úr uppþvottavélinni og setja í hana, það er óskaplega góð ástæða til flótta frá einhverju veseni sem alveg er að koma upp, eins og þetta, stjórnendur fara að hafa skoðun á hverjir eigi að stjórna.   Ég er nátturulega alfarið á móti því að ég fái ekki að stjórna, og er með mjög intimar skoðanir á því. Þessvegna til að bjarga mér undan algeru tapi í þessari baráttu fer ég að raða í uppþvottavélina, og svo sannarlega var mikið að gera í dag.

   Við erum í ca þrem grúppum hér á þessum bæ. Á fínu máli heitir það teymi, það eru þrjú teymi hér í húsinu.  Það eru a) systkinin Hanna og Hannes, b) undirrituð og Gulla Rún, c) Friðbjörn maðurinn minn og dóttir okkar Soffía Huld.  Þar sem ég er eins og sauðkindin, leiðist ílla í hóp, þe teymi, dreg ég mig útur og svík lit, það vita allir hinir. Svona er þetta, en allt gekk þetta vel í dag. Ég vona bara að arfinn sem´ég átti að vera búiin að taka, og allt það hér í kring sjáist ekki mjög vel á myndunum.   En ef arfinn sést þá er það bara vegna þess að ég er frekar óreglusamur karakter, og soldill slóði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú lýsir þessari skemmtilegu, karakterríku og yndislegu fjölskyldu allverulega sæmilega og skemmilega, kona góð. Mér finnst það yfirmáta stjórnkænska að draga sig útúr manngerinu þegar "vel" stendur á og fara að bauka við að taka úr eða setja í uppþvottavélina. Eins og maður geti ekki haft sterkustu áhrifin þegar maður er ekki alveg í miðjunni sjálfur.... Hlakka til að sjá myndirnar, þær heldég séu ekki af verri endanum. Enda myndefnið af hinum betri.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.8.2007 kl. 21:27

2 Smámynd: Hannes Heimir Friðbjörnsson

Fyrst þú dregur þig svona út mamma mín er þetta þá ekki bara tveir hópar? þeas a) ég,Gulla og Hanna og svo b) Pabbi og Soffía. Svo máttu flakka á milli að vild, svona eins og þú gerir svo snilldarlega í pólitíkinni frk Reykás. ;o)

Hannes Heimir Friðbjörnsson, 17.8.2007 kl. 23:00

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Dúddeelídú...............Upgrade your email with 1000's of emoticon icons allir saman nú.....
 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.8.2007 kl. 02:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband