16.8.2007 | 00:14
Fleiri hverfi.... Njálsgata-Barónsstígs hringurinn
Ef tala á um pólitískan trúnaðarbrest, þa´er honum best lýst í þessum máli Rvíkurborgar, sem er borginni til mikils vansa. Þarna eru búnar að vera heilmiklar umræður, og skyndilega er alger þögn um málið. Þarna var virkilega farið á bak við bæjarbúa þessa hverfis. Bæði Borgarstjóra og fleirum hafa verið skrifuð mörg bréf og engin svör hafa komið. Stofnað hefur verið til tveggja til þriggja funda, sem voru svona einhvernveginn þannig að manni fannst að verið værið að róa hópinn, eins og um einhver ólæti í skóla væri um að ræða. Svona, svona krakkar mínir verið þið nú góð, og svo framvegis síðan bara dauðaþögn og málið svæft, ekki bara smávegis heldur kyrfilega.
Það er verið að tala um Gunnar Birgisson sem skrifli og fleiri nöfn hafa honum verið gefin. Ég er ekki að taka upp hanskann fyrir hann þarna, enda ópólitísk manneskja sem ég er, en greinilega eru Reykvíkingar mildari í gagnrýni sinni en við Kópavogsbúarinir á Kársnesinu, ég hefi ekki heyrt nein svona uppnefni nefnd við Vilhjálm Borgarstjóra varðandi sjúklingaheimilið á Njálsgötu 74, sem er mjög óhugsað og fljótfærnislega gert, engum til sóma.
Það er langt síðan að mér fannst að Borgin ætti að kaupa hús Norska málarans og nota það fyrir þessa sjúklinga, úrþví hann seldi, en ég hugsa að það hafi bæði verið of fínt og dýrt fyrir þessa sjúklinga sem ekki eiga í neitt í að vernda, en það hefði verið hægt að taka fleiri.......
Það hefði verið betri aðstaða fyrir starfsfólk, og það hefði verið algerlega í miðbænum þar sem þeirra issue var að hafa það í miðbænum. Kærar kveðjur til beggja borgarstjórannna. sh.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.