Þorbjörg Halldórs., frá Höfnum......

En það var nefnilega nafnið á henni Þorbjörgu kennaranum mínum í Kvennaskólanum sem kenndi mér véritunina, eins og hún var kölluð (er annars ekki þetta orð vélritun komið úr málinu)?, en það var í den, eins og margt annað hjá mér, eiginlega er alltsaman í den...

   Hún var óskaplega "lekker", eins og notað var ´í den, lágvaxin og flott, enþað fór ekki fram hjá neinum þegar hún opnaði hurðina á skólastofunni, í den. Frú Þorbjörg, kenndi mér einnig ensku, sem er ekki neitt sérstaklega orð á gerandi en ég var haldin króniskum hiksta þennan vetur sem kom í köstum. Það mátti heyra saumnál detta í tímunum hennar, eiginlega var hún eini kennarinn sem gat haldið uppi aga. Nema ef ég fékk hiksta hjá Þorbjörgu var það frekar pínlegt, þögnin varð ennþá sterkari, og alltaf endaði þetta á sama veg. Þorbjörg ávarpaði mig ævinlega eins "Fröken Sólveig, viljið þér gjöra svo vel að lesa næst", hikstinn lagaðist, besta ráðið er að hrökkva í kút. En það var ótrúlegt hversu langt var hægt að ganga í þéringunum og ávörpunum í Kvennaskólanum maður var kannske rekin úr tímum, með ávarpi sem þessu, "Fröken Sólveig, viljið þér vera svo vænar að fara út", það kom fyrir mig, ég held oftar en einu sinni, ég þarf, að reyna að muna það,. Otrúlegt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Skemmtileg lýsing á þessari merkilegu og umdeildu konu. Fyrr má nú vera kurteisin. Ég missti af þéringum, nema hjá honum Dr. Jóni sem var skólameistari Verzlunarskólans. Hann þéraði mann: Viljið þér fara með allar latnesku beygingarnar á orðinu hestur enn einu sinni, Guðný Anna? Upgrade your email with 1000's of cool animations
Upgrade Your Email - Click here!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.8.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Margeir sagði mér einmitt fra sinum skólastjóra í Verzló., sem hafði viðurnefnið lærer, man ekki hvað hann heitir, en einhverntíma var verið að taka pilta á teppi, og voru þeir eitthvað þunnir eftir helgina, nema Siggi lærer 'avarpaði einn þeirra "Sveinn, þér stinkið", þótti honum hann lykta of mikið frá gærdeginum. Meira seinna.

Sólveig Hannesdóttir, 14.8.2007 kl. 15:07

3 Smámynd: Hannes Heimir Friðbjörnsson

Fyrsta og eina árið mitt í Menntaskólanum í Kópavogi kenndi mér þáverandi skólameistari,Ingólfur. Hann þéraði eins og hann ætti lífið að leysa, ég fékk mig fullsaddann og flutti mig til villinganna í Fjölbraut í Breiðholti!

Hannes Heimir Friðbjörnsson, 15.8.2007 kl. 19:00

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hahahaha! Frábærar sögur.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.8.2007 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband