12.8.2007 | 21:47
Þá riðu hetjur um héröð..........
'Eg er nú bara að reyna að slá um mig með þessari setningu, þar sem ég hefi aldrei getað lært eitt einasta kvæði, og man aldrei hendingar. Þessa man ég öruglega úr Kvennaskólanum eins og margt annað smávegis, og aldrei get ég lofsamað nóg mikið hana Frú Þorbjörgu, fyrir að kenna mér vélritun.... En mér datt þessi setning bara í hug þegar sonur minn skráði sig sem bloggvin hjá mér, móður sinni, það finnst mér hetjuskapur, og eiginlega finnst mér að hann hefði fremur átt að velja þann kostinn að kannast ekki við mig í þessu hlutverki.
En ég þekki líka aðra hetju, það er pabbi hans, ætli þeir séu ekki þessar typisku islensku héraðshetjur, sem eru svo stórkostlegar í umgengni, eins og egg...kraftur alveg útí skurn.
SH
Athugasemdir
Velkomin á bloggið, elskulega frænka og vinkona, sálufélagi og lífskúnstner! Það verður gaman að fylgjast með þér í þessu; nú er ég búin að óska formlega eftir að verða bloggvinur þinn.
Rosalega gaman að færslunum þínum!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.8.2007 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.