12.8.2007 | 02:41
Hinsegin dagurinn í dag.
Ótrúlegt stuð í bænum. Þessir félagar ættu að markaðssetja allar útiátíðir bæjarnis og næstu bæja t.d. á 17. júní, sem er nú bara alveg að fokkast upp. Þó varð ég að ígrunda þetta talsvert, af hverju er þetta svona mikið mál að gera svona mikið? Og svona mikið úr þessu, vera með svona allt sér, samkynhneigðir eru þeir og hinir við. Ég fór í gegnum það í dag. Ég vil, gjarnan fá að vera í svona hóp, svona einhverjum hóp sem er svona sér. Það er alltaf eitthvað spes í gangi. Það lá við að ég öfundaði þá í hópnum. Ég á svo marga kunningja sem í þessari hreyfingu eru. Alveg stórkostlegi strákar,og afherju eru þeir oft svona skr... skemmtilegir, þessir strákar sem eru ekki streightarar, ég botna bara heldur ekkert í því.
Ég er ekki einu sinni í mótmælahóp, nema Kársneshópnum, sem mótmælir með rauðum borðum útum allt. Svo er´ég líka í Njálsgötu 74, hópnum, sem hefur verið að reyna að mótmæla,en ég get ekki sagt að æþeir séu skemmtilegir, allavega hafa engar skrúðgöngur verið hvorki hér á Kársnesinu, eða mótmælagöngur, ég held nú síður. Við í Njálsgötuhópnum höfum verið að nöldra bara bréflega í borgarstjórn, ekki haft nein hljóðfæri með, og þaðan af síður verið svarað þannig lagað. En dagurnn í dag var stórkostlegur hjá hinsegin, sem ég vil nú frekar kalla aðalhópinn, hlakka til næst, og tek þátt í öllu með. Kveðja Solla.
Athugasemdir
Akkúrat, hvað er svona merkilegt við það að vera kaaaaaarlmaður? Hvað er svona merkilegt við það að vera hiiiiiiiiiiiinsegin???
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.8.2007 kl. 22:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.