10.8.2007 | 23:26
"ÉG MAN FLUGFÉLAGSTÖSKURNAR" úr bókinni "Ég man" eftir Þórarinn Eldjárn.
Ég er nú aldeilis hrædd um það, þetta var nú heldur en ekki stíll, að vera með eina svona á hliðinni á leið til Lundúna árið 1957, í þessari líka glænýju flugvél. Í dag er þetta bara eins og að horfa á gamla bíomynd eftir Hitchcok, bestu sort. Einhvernveginn notaði ég þessa tösku lítið sem ekki neitt, nema í fluginu á leið utan, og einu sinni í Lundúnaborg þetta sumarið.
Ljótt er að segja frá því en þarna gerðist ég þjófur og við stöllurnar báðar, ekkert flóknara en það, ekki voru það freistingar beinlínis, heldur ótrúlegur prakkaraskapur sem kom upp í okkur. Við fórum í Woolworth, þar sem allt fékkst í þessu stóra magasíni, sem líklegast væri sem lítil hverfisbúð í dag þannig lagað, ef miða á við minni, og tíma.
Við Helga ákveðumað ræna þarna búðina, að vísu ekki alla, en eitthvað, og ég tek þarna mjög ódýran og ómerkilegan hlut, hring með bláum steini. Mér leið bara mjög illa með þetta, en fæ líklegast smá adrenalínskast og við gerum þetta stöllurnar undir þeim áhrifum.
Ég var með þessa flugfélagstösku sem fór ævinlega í taugarnar á mér eftir þetta atvik. Við drifum okkur út, en í ljós kemur að okkur eltir maður, við búnar að setja niður hringana, og maður í gráum fötum (tek það fram að það voru langflestir í gráum fötum á þeim tíma.), en fötin voru ótrúlega grá. Helga sem rataði um allt þarna, stjórnaði ferðinni, og við auðvitað herðum gönguna út úr magasíninu, sem ætlaði nátturulega aldrei að enda. Við komumst út að lestarstöð, og nær maðurinn okkur þar. Við stóðum þarna dæmdar og dagar okkar voru hreinlega taldir sem heiðarlegar konur, nema þessi blessaði gráklæddi maður, brosir og segir við okkur "Are you from Iceland"?,........úff, þetta var óskaplegt spennufall. Ég skildi töskuna eftir í London, fyrir utan það að mér fannst þær frekar hallærislegar eftir þetta. Kannske það hafi verið einhver óþægileg sektarkennd sem kom upp, maður veit það aldrei, en ég man hvernig ég var klædd þann daginn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.