1.8.2007 | 15:55
Bazooka tyggjó út bókinni "Ég man.." eftir Þórarinn Eldjárn útg.1994
Ég man Bazooka tyggjó og litlu myndasögurnar um Bazooka Joe innan í pökkunum, segir Þórarinn Eldjárn. Líklegst muna börnin mín það einnig, en þetta minnti mig á mínar minningar um bleikt tyggjó. Það var á stríðsárunum, bleikar klessur um Njálsgötuna niðureftir henni allri. Hermennirnir gáfur okkur tyggjó þarna um svæðið. Þá var Njálsgata malbikuð, sem var alls ekki allsstaðar í Reykjavík. Það var mikið flott að fá gefins tyggjó þarna á svæðinu, og tuggði hvert barn sem gat, allavega þau sem ég þekkti. Stundum fengum við Wigley's, sem var einnig í miklu uppáhaldi hjá mér.
Það sem er nú heldur verra til frásagnar er að við skiptumst iðulega á tyggjói, jafnvel notuðum það í kaupskap, t.d. ef við vildum fá eitthvað lánað, sem ekki var falt hvenær sem er. T.d. lánaði ég það stelpu, sem ætlaði aldrei að hætta í rólunni einn daginn. Hún þáði tyggjóið og ég rólaði þar til ég gafst uppá rólunni, siðan var tyggjóinu skilað, og rólunni líka.
Þessar bleiku og ennfremur hvítuklessur á Njálsgötunni voru ennfremur notaðar i leikjum, við fórum þá í kapp niður Njálsgötuna, um hver gæti náð sem flestum klessum, og svo var bara einver tuggin, sem þótti sæmileg til tuggu.
En upp kom munnangurfaraldur og var ég tekin í landhelgi úti á tröppum heimilis míns að mömmu sjáandi. 'Eg hafði þegið tyggjó af Bubba vini mínum. Mamma hafði nú bara hringt í Katrínu Thor., lækni og var ég skoðuð þarna úti á tröppum. Katrín var klókur læknir. Krakkaskarinn sat þarna í einum hring, og þarna var mikið upplefelsi, nema ég varð að uppljóstra hegðuninni og ég held að þessi siður hafi lagst af þarna á þessu svæði Barónsstígsins. Þetta var ágætis reynsla, og ég man að ég hafði ekki vit á að skammast mín, heldur bara hætti þessu. Þetta var smart hjá mömmu og Katrínu.......
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.