27.6.2010 | 22:43
FLOKKADRÆTTIR
Ekki datt mér í hug að þetta ætti eftir að gerast. Og ekki þýðir fyrir neinn að ætla að segja mér það núna eftir þennan landsfund Sjálfstæðismanna að það sé ekki eitthvað mikið að á þeim bæ. Auðvitað var það auðfundið að þetta var að riðlast. Bjarni ekki nokkur maður til að standa í þessari formennsku, núna á þessum tímum, Pétur Blöndal fær þó þetta fylgi, en hann tilkynnti sig heldur ekki til kosningaslags fyrr en um morgunn kosninga. Flokkurinn er hruninn, það er augljóst. Það má svosem alltaf deila um úrsagnir, og finnst mér það svosem enginn hetjudáð að einhver einn segi sig úr undir svona kringumstæðum, eins og nú hefur gerst, en mjög margt gott ung fólk, er í þessum flokki sem ég hefði viljað sjá meira áberandi, og flokkurinn sjálfur hefði stutt sitt eigið besta fólk. En það verða mörg ár, áður en þessi stefna nær sér á strik, því miður. Þetta var góður flokkur í den, verð ég að segja. Það er liðin tíð, og gildir ekki í dag, að setja forystuna á einhvern einn einstakling, eða tvo. Mér er ekki nokkur leið að skilja hvaða hugur liggur á bak við atkvæðin sem féllu til Péturs, það er bara ljótur leikur hjá Sjálfstæðismönnum. Frú Norðdal, er flott kona, hún hlýtur að hafa einhverja sterka á bak við sig, einhverja vinnu hefur hún unnið fyrir flokkinn, en ímynd flokksins er alveg á floti, um þessar mundir.
Í dag er ég mjög fegin að Hanna Birna, fór ekki í þennan slag, það þarf að standa vörð um þá konu. Sjálfstæðismenn eru ekki neinir snillingar í því, þeir eru alltaf að leita að einhverjum sem á að fara á stallinn, samanber þessar hryllilega hallærislegu myndir sem birtar eru þegar sigur er unninn.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)