9.1.2009 | 21:55
ÉG VAR............................
Tekin úr umferð, svona til að láta mig vita að veröldin snérist ekki öll í kringum mig, eða út frá mér, eða hvað sem ég á að segja.
Með þetta gibs var auðvitað ógerningur að fara á barnaball, því miður, að ég tali nú ekki um að láta negla mig fasta í nokkra daga, en maður lærir, hugsar og prjónar. En þegar að þessum fjólubláu umbúðum kom, með gylltu glimmeri, fór mér aðeins að skána. Barnabörnin´mín gátu svona rétt sem snöggvast setið fyrir á mynd, og allt hafðist þrátt fyrir hreyfihömlun mína um sinn.




Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)