Og ég átti afmæli þarna 15. júlí, var mikið tilstand á mér og Sólveigu Önnu, það var mikið mál að kaupa réttar serviettur, kökur og ístertu. Pabbi eldaði svo kvöldmatinn, og fengu þær systur mais, sem ógrynni er til á Canarieyjum, þar sem þeir rækta hann mikið.Salvör var bara státin, en eitthvað smástúrin þegar líða tók á kvöldið.um kvöldið lukum við svo við afmælistertuna. Salvör sofnuð, var eitthvað slöpp, en Sólveigu tókst að klára Mikka Mús af marsipaninu. Það hafði verið takmarkið hjá henni.