Færsluflokkur: Lífstíll
27.9.2008 | 23:25
v/VELVAKANDAGREINAR varðandi Breiðavíkurmennina.
Já Þorhallur Hróðmarsson, það eigum við svo sannarlega að gera. Við sem kölluð erum fórnarlömb þessa samfélags, sem ég er heldur ekki sammála sem skilgreingar, við berum sameiginlega ábyrgð á þessum "fárra ára misþyrmingu". Við berum ábyrgð á því, hvað annað?. Ég er fegin að þetta kom fram í Velvakanda, ég er fegin að þetta kom aftur inn í blaðið, vegna þess að mér hefur ekki staðið á sama hvaða þögn hefur verið núna undanfarið.
Ég hef þó verið vongóð vegna bíomyndarinnar, og ætlar sá listmiðill einu sinni enn að skola glýjuna úr augum okkar, hvað varðar mörg mál. Það er samfélagslegt vandamál að eiga ekki íbúðina sína, og vonandi tökum við á því, en það er einni samfélagslegt vandamál að drengir sem sendir voru langt út í ras..................., þar sem ekkert eftirlit var, og stjórnendur þar, engan veginn færir um að taka drengina að sér, þetta er sorglegra en tárum taki. Hvað er fárra ára misþyrming??? Er misþyrming talin í árum?, Á kannske að setja þetta upp í tölfræðiútreikning, svona eins og þetta og þetta mörg vandarhögg pr. hvað þá spyr ég?
Misþyrming verður ekki bætt, það þarf mikla fyrirgefningu til, og ekki hægt að ætlast til að þetta verði fyrirgefið, þannig lagað. Breiðamerkurmennirnir hafa fyrir löngu fyrirgefið, annars hefðu þeir ekki rúllað í gegnum þetta líf, en þeir eiga fullan rétt á sárabótum, og eiga að fá það sem þeir hafa beðið um, og ekkert múður. Ef við getum ekki greitt þessum mönnum sómasamlega og það án allra undankomuleiða, þá erum við fyrst að verða algerir aumingjar. Einhverji húðarjálkar hafa lúbarið þessa menn og þaðan af verra, og ekki gátu þeir strokið.Þeir komust ekki undan vegna einangrunar hússins, ég tek ekki uppí mig orðið heimili. Sárabót er eitthvað sem við verðum að gera. Hlutir eins og sögur Breiðavíkurmanna, erfast, sorgin erfist frá manni til manns, frá foreldri til barns, og mergsýgur sig inní afkomendur sem högg, sem allir muna. Þórhallur skrifar að sumir hafi vafalaust lent þar að ófyrirsynju, ég segi þá bara "þess þá heldur".
Ég vona svo sannarlega að samúðin með Breiðavíkurmönnum hafi ekki dvínað.........
Hvernig er það? Ætluðum við ekki að taka fleiri mál fyrir? Það væri alveg nauðsynlegt til að fá samanburð, til dæmis góðan samanburð, því sem betur fer var ekki allt alslæmt.
Förum að dæmi Norðmanna, þeir hafa greitt, og haft miklar umfjallanir, og greiðum í topp...........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2008 | 19:55
SUMAR Á ÝMSUM STÖÐUM...............................................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dótturdóttir ein kom í heimsókn í morgunn, og var með hjarta um hálsinn vel að merkja, úr gulli, mér fannst það undurfallegt og vakti athygli á hversu flott hálsmen hún bæri um hálsinn.
jÁ, HÚN SELMA GAF MÉR ÞETTA Í AFMÆLISGJÖF, OG VEISTU ÞAÐ? þAÐ VORU KUBBAR MEÐ!!!!!!!!!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.9.2008 | 17:29
ÚR HUGSANABÓK GUÐBERGS BERGSSONAR.
Frelsið eyðir vináttu manna. Í því eru allir
frjálsir, líka til þess að vera vinir eða óvinir.
Í ófrelsi eru menn óvinir eða vinir vina sinna.
Í stríði er svipaða sögu að segja, annaðhvort
eru menn samherjar eða ekki.
Í friði verða menn hvorki vinir né óvinir
heldur hvort tveggja og hvorugt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2008 | 22:40
GULLKORN (AÐ MÍNU MATI)...........................
ÞAÐ ER ÓHJÁKVÆMILEGT AÐ VERÐA FYRIR SORG EF
MAÐUR ER Á LÍFI.
AÐ NJÓTA ´SIN, ER ÞAÐ AÐ HAFA ÓBRENGLAÐ ÁLIT
Á SJÁLFUM SÉR, EN UMFRAM ALLT HEMIL.
ÉG DÁIST AÐ HESTUM. ÞEIR GETA SKITIÐ Á HLAUPUM,
ÞAÐ GÆTI ÉG EKKI, ÞÓTT´MÉR VÆRI BORGAÐ FYRIR ÞAÐ.
HERRA BERGSSON 2002.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2008 | 15:17
"HEIMILI LÝKUR REYNSLUTÍMA"............RÚNARP. mbl.
Tíminn er alltaf jafnfljótur að líða greinilega, en ég hef verið alveg mátulega í því að vera með færslur tengdar Njálsgötuheimilinu. Ég vil benda á þær færslur, sem ég vona að séu skiljanlegar þó þær séu ekki beinskeyttar.
Hefur verið send út könnun meðal okkar í hringnum????? Ég hef ekki orðið vör við það.
Höfum við verið beðin um að tilkynna einhverjum ef hlutir sem við finnum, og höldum að séu tengd heimilinu????Og þá hverjum???
Hverjir hafa verið að hringja á lögregluna???
Höfum við verið beðin um að hafa sérstaklega samskipti við lögregluna????,
Það er með eindæmum hvernig er fjallað er um þetta mál, NÝJUFÖTINKEISARANS keimur að fréttaflutningnum. Ég verð samt að segja eins og er að ég er hjartanlega sammála Kristínu Káradóttur sem býr gegnt húsinu, ÞEIR TRUFLA EKKERT MEIRA EN AÐRIR, en ég verð að segja eins og er, að vitneskjan um þá, því miður veldur börnum sem ég þekki ónæði, og ég veit um börn sem eru hrædd. Við á Barónsstíg 41, höfum orðið fyrir verulegum truflunum, en við höfum ekki kvartað, og meðan ekkert er kvartað er bara allt í lagi, og "reynslan alveg dásamleg".............
Ég hefi bent á hér í blogginu, að bæði bjór og sterkur spíri hafi fundist í grasinu. Ég hefi líka bent á að bletturinn hjá okkur hefur verið notaður sem reyksalur, ég hef bent á að menn hafa komist inn í okkar hús, og fengið sér þar gistingu yfirdrukknir, án eftirlits., ég hef bent á að aldrei höfum við séð lögreglumenn ganga sundið. Það hefur verið svakalegt ónæði af þessu heimili, en það er enginn sem er að biðja um að það verði fjarlægt, það verður bara vera undir þeirri pressu áfram að hafa það áfram á reynslutíma.
"Allt í rólegheitum þarna"?????, segir ein á móti, ekki verður sagt að sú kona sé fúl á móti, en hvað eru rólegheit, það eiga að vera rólegheit, erum við að bíða eftir einhverjum hasar? Á eitthvað að gerast svo eftirlit sé eitthvað, að ég tali nú ekki um gott eftirlit.
Ég vil nú ekki vera að hártogast með hin og þessi hverfi. Persónulega er allt í lagi að hafa heimilið þarna, en öryggiseftirlit verður að herða, það er ekki í lagi þarna, og það er truflun þarna á kvöldin, og það er eðlilegur hlutur. Heimilið er komið til að vera, en sjálfsagt er, að segja sínar skoðanir, hvað varðar veru þess þarna, og við eigum það öll sameiginlegt að vera manneskjur. Ég vil hafa þá þarna, og hefi enga trú á að heimilismennirnir valdi usla, heldur er það halinn sem á eftir þeim er, og þessi varnagli að eiga lager úti á grasi, verður bara starfsfólk á númer 74, að eiga við. Okkur finnst þetta óþægilegt sem búum á fyrstu hæð. Börn geta tildæmis ekki átt sín svefnherbergi þar, og eiginlega ekki búið þar, því miður, allavega finnst mér að það eigi að koma fram, eftir þennan reynslutíma. Þessvegna gagnrýni ég að hafa ekki fengið að svara einhverri könnun, sem senda hefði mátt til okkar.
EF EFTIRLIT VÆRI BETRA ÞARNA, ÞÁ VÆRU¨" ÞESSIR AÐRIR", EINS OG ÞEIR ERU KALLAÐIR UNDIR EFTIRLITI, ÞAÐ ER HLJÓÐBÆRT ÞARNA, OG ÉG ER EKKERT VISS UM AÐ MEIRA SÉ UM PARTÝ ÞARNA EN ANNARSSTAÐAR, EN EF SVO ER, ÞÁ MÁ LÍTA EFTIR ÞVÍ Í LEIÐINNI, OG ÞAÐ ER AÐHALD Í ÞVÍ............
Við verðum að rýna í þessi mál, annars erum við léleg. Það sem Pétur Gautur segir í Mogganum í dag er bara einfaldlega akkurat það sama og ég hefi upplifað, og við sem rýnum í þessi mál, viljum bara að betur sé litið eftir þessum góða NJÁLSGÖTUHRING, og ég vil endilega hafa þetta heimili, en ég segi bara í ég veit ekki hvaða skipti, MEIRA EFTIRLIT
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.9.2008 | 15:57
ÞJÓNUSTA VIÐ GEÐFATLAÐA........MBL.
Mikið gleðiefni var að sjá í Mbl., að undiritaður hefur verið þjónustusamningur milli ríkis og borgar varðandi stoðþjónustu við geðfatlaða einstaklinga, sem eins og greinarhöf., nefnir, er fyrsta skrefið, þarna er von, og gott að geta hugsað til þeirra straumhvarfa sem vonandi eru að gerast. Áætlun um framkvæmdir hefur verið flýtt um eitt ár, að sögn, og vonandi gengur það eftir. Allavega er búið að undirrita.
Það er undravert hvað kringumstæður hafa breyzt, hjá geðfötluðum, og þá með stuðningi frá hinu opinbera annarsvegar og hinsvegar frá geðfötluðum sjálfum, rosalegur dugnaður hefur verið í þessum hópi manna og kvenna, ég leyfi mér að fullyrða það.
Að hverfa frá sambýlum, gerist loksins nú, þessi herbergjasambýli sem áttu að leysa allt, þegar þau voru stofnuð út um allt, og voru gríðarlega kostnaðarsöm, og frekar leiðinleg. Skyldur sveitarfélaga gætu aukist, og er það gott mál, spurning hvort ekki á að dreifa þessum skyldum sveitarfélaga á annan hátt, til dæmis að vera ekki með kostnaðarsama spítala út um allt land...........
Búsetukjarnahugtakið er eitthvað svo spennandi, ef hægt er að koma því af stað í okkar þjónustugeirum samfélagsins, hvort sem er fyrir hóp geðfatlaðra, eða aldraðra, og eiginlega allra þeirra sem það þurfa. Við eigum nóg af einstaklingum, með sjúkdóma, sem ekki geta búið t.d. alveg einir, eiga ekki heima á stofnun, eru á vergangi milli stofnana, þetta og þetta langan tíma í senn. Eru ekki á aldri öldrunarstofnunar, enda ekki 35 ára einstaklingi það bjóðandi. Það er af nógu að taka, en ég vona að þjónustusamningur þessi frá 11. júni, standi, og það fór vel á því að þessi grein skyldi koma í blöðin samtímis minningardegi sjálfsvíga, þessa dagana. Takk Jórunn...........
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2008 | 20:56
HÁTÆKNISJÚKRAHÚS.....HÁTÆKNIHJÚKRUN...HÁTÆKNILÆKNING.....
Eru orð sem standa í mörgum manninum, og hafa gert síðan þetta var fyrst nefnt. En ég breyttist í sjúkling á hátæknideildum, og þurfti að þiggja þessa margþættu lækningu og hjúkrun. Ég komst að því að annað orð er ekki til yfir þær aðgerðir sem verið er að gera á LSH. Mjög margir vilja svokallaða "Betri þjónustu", eins og við höfum oft heyrt, ofnotað orð, og væri þá gaman að velta því fyrir sér og öðrum, "Hvað er þjónusta"?, auðvitað eru flest störf þjónustustörf, við erum bara að þjónusta mismunandi verkefni, og eða þætti. Sjálf lít ég á flest verk sem þjónustu, ef svo er ekki, þá er fasismi í gangi.
Milli þess sem ég taldi fellingarnar í gardínunum milli okkar einstaklinganna sem inni lágu, og talið plastraufarnar í ljósakrónunni, og safnað mér saman, inná við, og reynt að muna. Svaraði ég spurningum sem ég hefi svo oft svarað og er eiginlega alveg að fara að steingleyma. Mér er fortíðin afskaplega fjarri, það er helst ef ég fer alveg aftur til bernsku, að hlutirnir skýrast, en svona er þetta bara. Stór spurning hvort að maður á í það heila að vera að halda í eitthvað, sem manni finnst ekki skipta máli í dag.
Ég gat þó munað okkur sem unnum þessi störf á 7unda áratugnum, og borið saman við starfsmennina í dag. Og ég verð að segja það að við eigum mikinn MANNAUÐ í heilbrigðisstofnunum, ég held ég megi segja landsins alls. Ég hefi sjaldan séð jafnmikla fagmennsku í starfi sem ég sá á LSH.Ég hef að vísu ekki reynslu utan af landi, en hefi kynnt mér það lítilsháttar. ÞENNAN MANNAUÐ verðum við að vernda, annars missum við þau, í eitthvað annað. ÞESSI MANNAUÐUR á aðra starfsaðstöðu skilið, og önnur laun. Það var hver einasti starfsmaður sem vissi upp á hár hvað hann átti að gera, og taktföst teymisvinna, hafði ég á tilfinningunni.
Eitt skil ég ekki alveg, af hverju Hátæknisjúkrahúsið var ekki byggt í Vífilsstaðalandinu, þar höfum við útsýni til allra átta, FYRIR STARFSFÓLKIÐ......, ennþá hef ég þá skoðun, að það þurfi útsýni fyrir starfsfólk, ekki sjúklinga, mín rök, eru fyrir hendi, en eru kannske soldið of grimm til að nefna hér. En þetta er skoðun mín. Tveir matsalir, til norðurs eða suðurs, starfsfólk gæti valið. Fallegt gróið land. Vatn. Inni í hátæknisjúkrahúsinu væri vafalaust starfsmaður sem hefði mikla ánægju af að líta út um glugga.
Í dag eru alltof mörg vaktherbergi gluggalaus.
Í dag eru alltof margar stofur of litlar, lítið rými til að snúa sér við fyrir starfsmanninn.
Í dag er ekki nógu mikið hugsað um starfsmanninn í hátækniumhverfinu.
BREYTUM ÞVÍ.............
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2008 | 23:11
ÞESSI VIÐSKIPTAHUGMYND..............................
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)